„Ég elska þig á íslensku“ – endurreisnarmaður íslenskunnar

„Fáir ef nokkrir lista­menn hafi haft jafn mikil áhrif á íslenska tungu í sam­tím­anum og Bubbi Morthens,” segir lærður við­mæl­andi í grein þess­ari af til­efni sjö­tugs­af­mælis hans. Annar segir hann vera mik­il­vægan end­ur­reisn­ar­mann íslensk­unnar. Þennan lista­mann þjóð­arsál­ar­innar sem ýmsir smætt­uðu þó í upp­hafi sökum meintrar skrif­blindu.

„Tungu­málið hefur gert mig ríkan. Andlega ríkan, ver­ald­lega ríkan. Tungu­málið hefur í raun­inni verið minn vett­vangur og við megum ekki gleyma því að þegar ég byrj­aði þá var bara sagt: „Bubbi er ekki talandi á íslensku, hann er skrif­blindur, getur ekki skrifað, hann getur ekki þetta, hann getur ekki hitt,“ sagði Bubbi Morthens á Bylgj­unni í við­tali, þann 17. októ­ber, árið 2025, stuttu eftir að hann hafði sent frá sér neyð­ar­kall til varnar íslensk­unni, grein­ina Hern­að­ur­inn gegn tungu­mál­inu.

Í þessu við­tali á Bylgj­unni, í kjöl­far grein­ar­innar, sagði hann jafn­framt: „Ég bara er að senda S-O-S, neyð­ar­kall til íslensku rík­is­stjórn­ar­innar og þeirra ágætu kvenna sem fara þar með völd og flokka og stjórn­ar­and­stöðu. Að stjórn­ar­and­staðan og rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir setj­ist saman og geri sér grein fyrir því að við erum að renna út á tíma.“

Tímamótamaður

Árið 1980 geyst­ist Bubbi með slag­krafti inn á íslenska tón­list­ar­senu þegar hann gaf út …

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Afi sagði við pabba, þú ert kominn af alþýðufólki og vertu stoltur af því. Bubbi þorir og er stoltur af því. Oftast er gott að geta skilið hlutina, en þá er að þora.
    0
  • Sólveig Ásgrímsdóttir skrifaði
    Það verður að taka mark á því sem Bubbi er að segja um tungumálið okkar
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár