Þegar ný menningarmiðstöð gyðinga var opnuð í gamla Framsóknarhúsinu við Hverfisgötu þann 7. júlí síðastliðinn, mátti sjá mynd á miðlinum chabad.org þar sem Eugene nokkur Shvidler klippir á rauðan borða. Á sama miðli má lesa að kvöldinu hafi lokið með þökkum til styrktaraðila sem „með örlæti sínu hafi byggt miðstöðina, þar á meðal Eugene Shvidler, sem með framtíðarsýn, forystu og örlæti, hafi hjálpað til við að þróa miðstöðina úr hugmynd í byggingu sem fólk gæti raunverulega gengið inn í og fagnað gyðinglegu lífi.“
Ekki kom fram að Eugene Shvidler er á svörtum lista breskra yfirvalda vegna tengsla hans við Rússland og eignir hans þar voru frystar, þar á meðal annars sveitasetur, íbúðir og flugvél.
Heimildin leitaði svara við því hver hefði fjármagnað miðstöð gyðinga á Íslandi, meðal annars kaup á húsnæði og fyrirhuguðum endurbótum. Rabbíninn, sem svaraði hvorki símtölum né hringdi til baka eftir að skilaboðum hafði verið komið áleiðis, sagði þó skriflega að „gyðingamiðstöðin á Íslandi hefði verið fjármögnuð með einkaframlögum frá fólki sem býr á Íslandi og fólki sem hefur heimsótt Ísland“, en neitaði að gefa upp hverjir styrkjendurnir væru. „Við virðum friðhelgi einkalífs styrktaraðila okkar og birtum ekki upplýsingar um framlög þeirra án leyfis þeirra.“
Kölluðu eftir framlögum
Miðstöðin sem kennd er við Shvidler var keypt árið 2024, af félagi rabbínans Avrahams Feldman, LG50. Húsnæðið er um 1.000 fermetrar og í fréttum RÚV kom fram um daginn að kaupverðið hafi verið um 325 milljónir og Avraham sagði það vera fjármagnað með einkaframlögum.
Á síðu miðstöðvarinnar jewishiceland.com má lesa að kaup og endurbætur útheimti 3,6 milljónir Bandaríkjadala, eða um 455 milljónir króna. Þar segir: „Þú getur hjálpað okkur að ná marklínunni!!“ Og fram kemur, með kökuriti, að nú hafi um 96 prósent safnast, sem þýðir að 437 milljónir króna hafi safnast.

Þarna er að finna marga valmöguleika, vilji fólk styðja við miðstöðina með drjúgum hætti. Fólk sem gefur veglega getur fengið veglegan platta með nafni sínu. Hægt er að velja ýmsar leiðir. Fá hraunplatta ef gefnir eru 2500 Bandaríkjadali. Fyrir 5000 dali fæst hveraplatti. Geysisplattan má fá fyrir 10.000 dali, Jöklademantsplatta fyrir 18.000 dali, Norðurljósaplatta fyrir 36.000 dali og fyrir 54.000 Bandaríkjadali verður nafnið sýnilegt á Arctic Mezuzah-platta.
Á íslenskru útgáfu síðunnar jewishiceland.com má svo lesa að miðstöðinni sé ekki stjórnað af neins konar aðalskrifstofum og eins að 100 prósent af öllum framlögum renni til gyðingasamfélagsins á Íslandi.
Hins vegar er farið fram á að greiðslur séu stílaðar á Chabad of Iceland, sem skráð er í Brooklyn í New York-borg í Bandaríkjunum.

„Við virðum friðhelgi einkalífs styrktaraðila okkar og birtum ekki upplýsingar um framlög þeirra án leyfis þeirra“
Kennir gyðingleg gildi
Rabbíninn Avraham Feldman, fyrsti rabbíninn með fast aðsetur á Íslandi, kom til hingað til lands ásamt eiginkonu sinni, Mushky Feldman, árið 2018 í því skyni að skapa ný tækifæri fyrir samfélag gyðinga. Þau voru send af Chabad-hreyfingunni til að koma sér upp fastri viðveru.
Rabbíninn tilheyrir Chabad-Lubavitch söfnuðinum.
Rabbíni Feldman útskrifaðist frá Rabbínaháskóla Ameríku, auk þess að hafa þjónað gyðingasamfélögum í Bandaríkjunum, Evrópu og Ástralíu og jafnframt starfaði sem rabbíni og forstöðumaður Gyðingastúdentamiðstöðvarinnar í Berlín áður en hann settist að á Íslandi. Á enskri kynningarsíðu má lesa að Rabbíni Feldman kennir gyðingleg gildi, sögu og hefðir í samfélaginu, við staðbundna háskóla og á samfélagsmiðlum og fréttamiðlum.
Þá hefur rabbíninn sagt að húsið muni gegna margþættu hlutverki. Tímabært sé orðið að hafa fastan stað fyrir samfélag gyðinga sem hefur búið á Íslandi í meira en 100 ár. Í fréttum frá 2018 má lesa að eftir að Feldman-hjónin fluttu hingað ásamt börnum sínum, hafi þau stofnað hópfjármögnunarsíðu fyrir flutningana og um sex milljónir króna safnast á aðeins hálfum sólarhring.
Nokkrar spurningar
En hver er Eugene Shvidler?
Nafn hans er grafið á nýrri plötu á vegg hússins, svo ætla má að framlag hans hafi verið rausnarlegt. Þess má geta að menningarhúsið heitir í höfuð Shvidler: Beit Shvidler Jewish Center of Iceland. Beit Shvidler þýðir Hús Shvidler.
Eftir að hafa árangurslaust reynt að ná símsambandi og hitta rabbínan Avraham Feldman til að spyrja hann um uppruna þess fjármagns sem fékkst til að styðja við stofnun menningarmiðstöðvar gyðinga í Reykjavík, sendi Heimildin skriflegar spurningar:
Hvernig er miðstöðin fjármögnuð, hverjir eru fjármögnunaraðilar hennar og hvaða upphæðir hefur hver styrktaraðili lagt til?
Hvaða fjárframlög hefur Eugene Shvidler lagt til miðstöðvarinnar og hvers vegna ber miðstöðin nafn hans?
Hefur miðstöðin einhver bein eða óbein tengsl við Ísrael?
Hefur Chabad-Lubavitch hreyfingin einhver bein eða óbein tengsl við Ísrael?
Hver er afstaða rabbínans til stríðsins í Palestínu?
Seldi fyrir 13 milljarða
Þar sem svar rabbínans er skriflegt og því beint að nokkrum ólíkum spurningum, má lesa það í heild undir lok greinarinnar. Fyrst ber þó stikla á ýmsu sem tendraði áðurnefndar spurningar.
Eugene Shvidler þessi er auðkýfingur, fæddur í fyrrum Sovétríkjunum, og hefur verið svartlistaður í Bretlandi vegna tengsla sinna við Roman Abramovich, rússneskan ólígarka og auðkýfings, fyrrum eiganda Chelsea FC og landstjóra Chukotka í átta ár, héraðs í norðurhluta Rússlands. Árið áður en Abramovich hætti sem landstjóri hafði Pútin hafnað beiðni hans um að segja af sér og beðið hann um að halda áfram, sem hann samþykkti.

Árið 2005 hafði Abramovich selt hlut sinn í olíufélaginu Sibneft aftur til hins ríkisrekna olíufélags Gazprom fyrir 13 milljarða dollara. Upphæð sem er sögð hafa myndað grunninn að auðæfum hans. Fram kemur í rannsókn Stofnunar um rannsóknarblaðamennsku (The Bureau of investigative journalism) að Eugene Shvidler hafi persónulega fengið lánaðar 637 milljónir Bandaríkjadala frá Abramovich, eða um 80 milljarða króna, og þar af hafi minnst 545 (69 milljarðar króna) virst vera í reynd gjöf til fjölskyldu hans.
Abramovich neyddist til að selja Chelsea FC þegar breska ríkisstjórnin, í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu, beitti refsiaðgerðum gagnvart honum, í mars árið 2022, þar sem sýnt þótt að hann væri einn af fáum fámennisstjórnendum frá tíunda áratugnum sem áfram væru áberandi undir stjórn Pútíns. Þá hefur hann mótmælt svipuðum refsiaðgerðum innan Evrópusambandsins og talið sig fremur vera skotmark vegna frægðar en tengsla sinna við Pútín. Þess má geta að hann er með rússneskan, portúgalskan og ísraelskan ríkisborgararétt.
Fjármagnar líka yfirtöku heimila Palestínumanna
Viðskiptafélaga Abramovich, Eugene Shvidler, hefur heldur ekki tekist að fella úr gildi viðskiptaþvinganir sem breska ríkisstjórnin lagði á hann eftir innrás Rússa í Úkraínu sem hluta af aðgerðum gegn fámennisstjórnendum og embættismönnum tengdum Rússlandi. Raunar var dómur Hæstaréttar þar ytra talinn vera prófraun fyrir viðskiptaþvingunarkerfi Bretlands.
Shvidler hefur mótmælt að hann sé ekki nógu tengdur Abramovich til að það réttlæti aðgerðirnar en hann hefur setið í stjórn fyrirtækja í eigu Abramovich.
Shvidler er þekktur alþjóðlegur styrktaraðili Elad (Ir David-sjóðsins) – sem meðal annars hefur keypt upp eignir Palestínumanna í Austur-Jerúsalem til að umbreyta þeim í heimili fyrir gyðinga – en sjóðurinn rekur hið umdeilda fornleifasvæðið Borg Davíðs og eflir byggð gyðinga í hverfinu Silwan í Austur-Jerúsalem. Hann hefur líka verið öflugur styrktaraðili gyðingaskóla og menntamiðstöðva og á vef The The Jewish Chronicle má lesa eftirfarandi í grein síðan í mars árið 2022:
„Velgjörðarmaður gyðingaskóla í London sem ber nafn hans er á nýjasta lista yfir rússneska fámennisstjórnendur sem refsað hefur verið af bresku ríkisstjórninni. Eugene Shvidler var aðalgjafinn að nýju heimili Beit Shvidler fyrir 10 árum, sem áður hét Edgware Jewish Primary School. Stjórnvöld sögðu að Shvidler, sem er metinn á 1,2 milljarða punda, hefði „náin viðskiptatengsl“ við Roman Abramovich, sem sjálfur var settur á refsilistann fyrir tveimur vikum.“

Snekkjan lá við Reykjavíkurhöfn
Í frétt á Vísi síðan í júní árið 2021 má svo lesa um skipakomur. Þar segir að tvær lúxussnekkjur rússneskra auðjöfra séu við Reykjavíkurhöfn. Annars vegar snekkjan Sailing Yacht A og hins vegar glæsifleyið Le Grand Bleu. Þá segir:
„Hin skútan, Le Grand Bleu, er í eigu rússneska olíubarónsins Eugene Shvidler. Snekkjan er 113 metrar á lengd og var sú 36. lengsta sinnar tegundar í heiminum árið 2019, samkvæmt Wikipedia-síðu snekkjunnar.“ Þar kemur jafnframt fram að Shvidler hafi eignast hana er hann vann veðmál við fyrri eiganda, samlanda sinn Roman Abramovich.
Aftur kom Shvidler til landsins þegar menningarhúsið var opnað á dögunum. Og Shvidler vígði það.
„Ég er ekki fulltrúi Ísraels né tala fyrir neina ríkisstjórn“
Skipulagt gyðingalíf ekki til staðar
En spurningarnar voru fleiri, eftir að rýnt hafði verið í fjölmiðla í Ísrael og lesið um opnun menningarhússins þar.
Í ísraelska fjölmiðlinum The Times of Israel má lesa nýlega frétt með fyrirsögn á þá leið að minnsta gyðingasamfélag Evrópu hafi fundið sér heimili. Um sé að ræða rúmgóða byggingu í Reykjavík sem áður hafi hýst krá en þjóni nú sem fyrsta varanlega miðstöð gyðingalífs í borginni og sé nú leiðandi í því að vera nyrsta Chabad-hús heims.
Fréttin hefst á þessa leið: „Þar til nýlega var þessi borg, sem er staðsett nálægt norðurheimskautsbaug, einn fárra staða í Evrópu þar sem skipulagt gyðingalíf var ekki til staðar — engin samkunduhús, engin helgiböð, engin sameiginleg bygging. Það breyttist í þessari viku þegar gyðingasamfélagið á Íslandi opnaði Beit Shvidler gyðingamiðstöðina á Íslandi, fyrstu gyðingamiðstöð landsins.“
Svipaða frétt má finna í The Jerusalem Post, í formi viðtals með fyrirsögninni Hjón í Chabad breyta litlum draumi í sögufræga fyrstu gyðinga-menningarmiðstöð Íslands. Og „Fyrsta forgangsverkefni okkar var einfaldlega að tengjast fólki á persónulegu stigi, einstaklingsbundnu, og komast að því hvað fólki finnst vanta,“ sagði rabbíni Feldman.

Skrifa íslenska kaflann
Í miðlinum The Jewish Star má svo lesa fréttaskýringu með fyrirsögninni: „Á Íslandi dreifir Chabad ljósi Hashems á hátindi heimsins.“
Í niðurlagi greinarinnar má lesa:
„Opnunin hlaut viðurkenningu frá æðstu stjórnvöldum á Íslandi. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, sem hefur verið gestur viðburða gyðingasamfélagsins áður, sendi bréf þar sem hún lýsti miðstöðinni sem „mikilvægum áfanga fyrir gyðingasamfélagið og fyrir samfélag Gyðinga“ og lýsti von um „áframhaldandi samstarf milli gyðingasamfélagsins og ríkisstjórnar Íslands.“
„Saman erum við að skrifa íslenska kaflann í sögu gyðingaþjóðarinnar“
Í greininni er einnig greint frá því að Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, hafi skrifað sérstaklega til að minnast tilefnisins. Kvöldinu hafi lokið með þökkum til þeirra sem með örlæti reistu miðstöðina, þar á meðal Eugene Shvidler, sem með framtíðarsýn og örlæti hjálpaði til við að þróa miðstöðina frá hugmynd í byggingu sem fólk gæti raunverulega gengið inn í og fagnað gyðinglegu lífi, góðgerðarmannanna Isaac og Tovah Cohen, George og Pamelu Rohr, Shmuel Isaac og Miriam Popack sjóðsins og Dovid og Rivku Feldman.
„Saman erum við að skrifa íslenska kaflann í sögu gyðingaþjóðarinnar,“ er svo vitnað í rabbínann Feldman.
Þar er einnig fjallað um að Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, hafi verið viðstaddur en á Facebook sagði hann sjálfur frá því að hann hefði lesið ávarp forsætisráðherra og flutt stutta tölu. Í greininni er meðal annars vitnað í þau orð hans að nýja miðstöðin sé „lifandi skólabrú.“
Samningur við Ísraelsher
Ætla má að margskonar starf eigi sér stað innan miðstöðva kenndra við Chabad-Lubacitch. Miðstöðvar Chabad-Lubacitch eru meira en 5.000 talsins og eru starfræktar í meira en 100 löndum, þar á meðal í öllum ríkjum Bandaríkjanna.
Í Ísrael er hreyfingin með tengsl við ísraelska herinn, styður við trúarlega starfsemi hersins og veitir hermönnum stuðning sem og hugmyndafræði „Stór-Ísraels“. Skuldbinding Chabad við Ísrael, þar í landi, byggist á þeirri trú að landið sé miðlægt í lífi gyðinga, þó að þeir snúi sér almennt frá stjórnmálaflokkum og einbeiti sér í staðinn að trúarlegri og félagslegri þátttöku. Á síðu höfuðstöðvanna kemur fram að Chabad-Lubavitch veiti yfirmönnum, hermönnum og fjölskyldum þeirra sem eru gyðingar og staðsettir um allan heim huggun og leið til að viðhalda andlegri tengingu við gyðingdóminn.
Þá má lesa á mizrachi.org um samning við ísraelska herinn þess efnis að koma á fót fjöldaráðningum yeshiva-nemenda í herinn. Samkvæmt fréttum sem birtar eru í Maariv mun Ísraelsher leyfa Chabad-fylgjendum að yfirgefa landið í tvö ár – til að stunda fræði í New York, eins og hefð er fyrir, og síðan snúa aftur til Ísraels, stofna heimili, stunda nám í annað ár í kirkju og ganga síðan í herinn.
Í Ísrael veitir hreyfingin ísraelska hernum (IDF) víðtækan stuðning, jafnt andlegan og hagnýtan. Þar er safnað peningum fyrir Ísrael, þá sérstaklega í átökum. Innan Chabad-Lubacvitch í Ísrael virðist vera vaxandi samstaða með hægrisinnaðum ísraelskum stjórnmálamönnum á borð við þjóðaröryggisráðherrann Itamar Ben-Gvir sem leitt hefur öfga hægriflokkinn Gyðingavald (Otzma Yehudit) – en hugmyndafræðileg tengsl virðast fléttast saman í gegnum harðlínuhreyfingar hægri manna og þjóðernissinnaðra aðila innan Chabad-Lubavitch hreyfingarinnar.
Varaði við afsali á svæði gyðinga
Í svörum rabbínans Avraham Feldman segir hann að þau séu innblásin af sýn Lubacitcher-rabbínans Menachem Schneerson en hann var einn áhrifamesti leiðtogi Chaband-Lubavitch hreyfingarinnar.
Sé aftur vitnað í The Jerusalem Post, grein síðan í júlí, má lesa að af þeim mörgu orrustum sem rabbíni sá háði fyrir hönd Gyðingaþjóðarinnar séu skoðanir hans varðandi shleimut ha'aretz – varðveislu landhelgi og landamæra Ísraels – meira viðeigandi en nokkru sinni fyrr „… fyrir þá stöðu sem við búum við í dag.“ Þá segir að leiðtogi Chabad-hreyfingarinnar hafi trúað og haldið því eindregið fram að afsal á hvaða svæði sem væri undir stjórn Ísraels myndi stofna lífi Gyðinga og annarra í hættu. „Þetta er augljóslega afar viðeigandi fyrir atburði síðasta árs og þær ákvarðanir sem Ísrael tekur nú og á næstu dögum, vikum og mánuðum.“
Ein eins og áður sagði er hreyfingin fjölþjóðleg og leiða má líkum að því, í ljósi þess hversu útbreidd Chabad-Lubavitch-hreyfingin er, að miðstöðinni á Íslandi muni takast að fjármagna sig ágætlega, auk sinna bakhjarla, sem áður hefur verið um getið.
„Ég er ekki fulltrúi Ísraels“
Rabbíninn, Avraham Feldman, svaraði öllum spurningunum Heimildarinnar skriflega á þessa leið:
„Gyðingamiðstöðin á Íslandi hefur verið fjármögnuð með einkaframlögum frá fólki sem býr á Íslandi og fólki sem hefur heimsótt Ísland. Við virðum friðhelgi einkalífs styrktaraðila okkar og birtum ekki upplýsingar um framlög þeirra án leyfis þeirra.
Það er nokkuð algengt að gyðingamiðstöðvar veiti styrktaraðilum viðurkenningu með því að gefa þeim nafn sitt á skilti og minnisplötum. Við höfum einnig mörg nöfn inni í húsinu.
Tilgangurinn með menningarhúsi gyðinga er að þjóna samfélaginu á staðnum. Við erum ekki hér til að vera fulltrúar annarra landa. Markmið okkar er að vera hluti af samfélaginu og leggja okkar af mörkum á hvaða jákvæðan hátt sem við getum.
Sem aðalrabbíni á Íslandi er hlutverk mitt að þjóna samfélaginu á staðnum. Ég er ekki fulltrúi Ísraels né tala fyrir neina ríkisstjórn. Ég einbeiti mér að mennta-, menningar- og samfélagsstarfi.
Við biðjum daglega fyrir varanlegum friði og fyrir öryggi og velferð allra saklausra einstaklinga.
Markmið Chabad Lubavitch er að gefa öllum tækifæri til að kanna og fagna gyðinglegri arfleifð sinni og tengjast gyðinglegri sjálfsmynd sinni. Þetta var það sem Lubavitcher-rabbíninn (rabbíninn Menachem Schneerson 1902-1994) barðist fyrir og við erum innblásin af þeirri sýn og umhyggju sem hann sýndi hverjum einstaklingi, bæði gyðingum og öðrum.
Við leggjum áherslu á að þjóna staðbundnu gyðingasamfélagi, sem og að miðla gyðinglegri menningu og menntun til almennings.
Í húsinu opnum við brátt „Safn um líf gyðinga á Íslandi“, sem verður fastasýning á sögulegum ljósmyndum, skjölum og sögum sem spanna meira en 100 ára gyðingalíf. Þetta verður frábær leið fyrir Íslendinga til að læra um hvernig íslensk saga og gyðinga saga skarast á einstakan hátt, sem og að læra um líf gyðinga á Íslandi í dag.“

















































Athugasemdir (2)