Hliðarbisness alþingismanna

Hliðarbisness alþingismanna

Nokkr­ir al­þing­is­menn sinna laun­uð­um verk­efn­um sam­hliða þing­störf­um og enn fleiri eiga fé­lög í ým­iss kon­ar við­skipt­um, eins og Berg­þór Óla­son. Sum­ir hafa þeg­ið arð­greiðsl­ur frá fé­lög­um sem þeir eiga að miklu eða öllu leyti.

Alþingismenn eiga margir hverjir stóra eignarhluti í félögum sem eru í fullri starfsemi þó að þeir sitji hvorki í stjórn né framkvæmdastjórn. Fjöldi þeirra á hlut í skráðum bréfum félaga, til að mynda í sjávarútvegi, fjármálaþjónustu og flugrekstri. Enn aðrir sinna aukastörfum meðfram þingmennsku.

Heimildin greindi frá því nýverið að Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, ætti hlut í fjölda félaga í byggingariðnaði og kæmi beint að einhverjum verkefna þeirra. Félögin eru í eigu Bergþórs og föður hans, en kröfuhafar hafa farið fram á nauðungarsölu á þremur lóðum félags þeirra, Render Centium, í Mosfellsbæ. Slaga kröfurnar hátt upp í milljarð króna.

Í samtali við Heimildina staðfesti Bergþór að hann hefði komið að kaupunum á lóðunum en sagðist hvorki þiggja laun frá fjölskyldufélögunum né arðgreiðslur. „Þetta er ekki tímafrek aðkoma,“ sagði hann.

Bergþór hefur aðeins skráð eitt félaganna í hagsmunaskrá, móðurfélagið Byggingalausnir, en engar af …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Hagsmunafélagið Alþingi er svo rekið af íslensku þjóðinni, af því er víst engin hagnaður en gott utanumhald og aðstaða til fyrirmyndar. Sama gildir um forseta lýðveldisins, þokkalega launað, allar heimsóknir til vina skráðar sem ristna og smá arður vegna hlutdeildar í einhverjum félögum. Sannleikurinn sagna bestur þó hann sé ekki alltaf sannur (tilvitnun í stjórnmálamann)
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár