„Í dag eru liðin 5 ár síðan líf mitt breyttist að eilífu“

Alexandra Ada Hilmars Sigurjóns­dóttir minnist þess að fimm ár séu liðin frá því henni var nauðgað. Hún kærði en maðurinn svipti sig lífi. Foreldrar hans kærðu hana fyrir rangar sakar­giftir en hún var sýknuð.

Alexandra Ada Hilmars Sigurjónsdóttir
Alex­andra Ada Hilmars Sig­ur­jóns­dóttir Alex­andra birtir færslu á Facebook til að gera upp það sem hún upp­lifði síð­ustu fimm ár.

„Í dag eru liðin 5 ár síðan líf mitt breyttist að eilífu. Fyrir fimm árum var mér nauðgað.“

Þannig byrjar Facebook-færsla sem Alexandra Ada Hilmars Sigurjóns­dóttir birti á laugardag.

„Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa. En það sem tók við á eftir varð að löngu og sársauka­fullu ferðalagi sem ég hefði aldrei getað ímyndað mér,“ skrifar hún.

„Á meðan kærumálið mitt var enn í gangi svipti gerandi minn sig lífi,“ bætir hún við.

Alexandra lýsir því í færslunni, sem hún gaf Heimildinni leyfi til að fjalla um, hvernig hún fylltist af reiði við að maðurinn þyrfti aldrei að mæta fyrir dóm. En sjálfsvíg hans hafi orðið umfjöllunar­efni í frétta­miðlum.

„Stuttu síðar birtust fréttir um sjálfsvíg hans á Vísi, mbl , DV og Mannlífi,“ skrifar hún. „Þar var fjallað um að hann hefði svipt sig lífi eftir ásakanir um kynferðis­brot …

Kjósa
52
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár