Erfiðara fyrir ungt fólk að fá vinnu

Aukið atvinnu­leysi á meðal ungs fólks vekur athygli. Á meðan ungt fólk lýsir áhyggjum af tæki­færum til fram­tíðar segj­ast atvinnu­rek­endur hafa brennt sig á yngstu kyn­slóð­inni, sem sé alin upp við önnur gildi og taki vinnu ekki jafn alvar­lega. Þeir hvetja ungt fólk þó til að gef­ast ekki upp.

Erfiðara fyrir ungt fólk að fá vinnu

Með auknu atvinnu­leysi síð­ast­liðin ár og mán­uði hefur fjölgun atvinnu­lausra á meðal ungs fólks vakið sér­staka athygli. Nýjar tölur úr vinnu­mark­aðs­rann­sókn Hag­stof­unnar sýna að meðal fólks á aldr­inum 16 til 24 ára mæld­ist árs­tíð­ar­leið­rétt atvinnu­leysi í maí 13 pró­sent, eða um 5.000 manns. Þetta hlut­fall er veru­leg aukn­ing frá maí síð­asta árs þegar 4,9 pró­sent, eða um 2.000 manns á sama aldri, voru án atvinnu.

Þessi þróun sést einnig þegar horft er til lengri tíma. Atvinnu­leysi meðal 16 til 24 ára fólks mæld­ist 8,1 pró­sent árið 2024, 12,2 pró­sent á fyrsta árs­fjórð­ungi 2025 og 18,0 pró­sent á fyrsta árs­fjórð­ungi 2026. Þrátt fyrir að ungu fólki í atvinnu­leit fjölgi jafnan á vorin þegar skóla­haldi lýkur gefa töl­urnar skýra mynd af versn­andi stöðu ungs fólks á vinnu­mark­aði.

Þegar litið er á alla ald­urs­hópa þá er klár fjölgun atvinnu­lausra, en staða ungs fólks sker sig sér­stak­lega úr. Á fyrsta árs­fjórð­ungi …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár