Erfiðara fyrir ungt fólk að fá vinnu

Aukið atvinnu­leysi á meðal ungs fólks vekur athygli. Á meðan ungt fólk lýsir áhyggjum af tækifærum til framtíðar segjast atvinnu­rekendur hafa brennt sig á yngstu kynslóðinni, sem sé alin upp við önnur gildi og taki vinnu ekki jafn alvarlega. Þeir hvetja ungt fólk þó til að gefast ekki upp.

Með auknu atvinnu­leysi síðastliðin ár og mánuði hefur fjölgun atvinnu­lausra á meðal ungs fólks vakið sérstaka athygli. Nýjar tölur úr vinnu­markaðs­rannsókn Hagstofunnar sýna að meðal fólks á aldrinum 16 til 24 ára mældist árstíðar­leiðrétt atvinnu­leysi í maí 13 prósent, eða um 5.000 manns. Þetta hlutfall er veruleg aukning frá maí síðasta árs þegar 4,9 prósent, eða um 2.000 manns á sama aldri, voru án atvinnu.

Þessi þróun sést einnig þegar horft er til lengri tíma. Atvinnu­leysi meðal 16 til 24 ára fólks mældist 8,1 prósent árið 2024, 12,2 prósent á fyrsta ársfjórðungi 2025 og 18,0 prósent á fyrsta ársfjórðungi 2026. Þrátt fyrir að ungu fólki í atvinnu­leit fjölgi jafnan á vorin þegar skóla­haldi lýkur gefa tölurnar skýra mynd af versnandi stöðu ungs fólks á vinnu­markaði.

Þegar litið er á alla aldurs­hópa þá er klár fjölgun atvinnu­lausra, en staða ungs fólks sker sig sérstak­lega úr. Á fyrsta ársfjórðungi …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár