Hlutur lífeyrissjóða í kísilverinu á Bakka færður niður í núll krónur

Félag sem heldur utan um eign­ar­hald líf­eyr­is­sjóða og Íslands­banka í kís­il­veri PCC á Bakka býr sig undir verstu sviðs­mynd, gjald­þrot kís­il­vers­ins. Engin starf­semi hefur verið í því í rúmt ár.

Hlutur lífeyrissjóða í kísilverinu á Bakka færður niður í núll krónur
Kísilver PCC á Bakka 80 manns misstu vinn­una í júlí í fyrra þegar starf­semi var stöðvuð. Mynd: PCC

Félagið Bakka­stakkur, sem stofnað var utan um fjár­fest­ingu líf­eyr­is­sjóða og Íslands­banka í kís­il­ver­inu PCC á Bakka við Húsavík, hefur fært virði hlutar síns í kís­il­ver­inu niður í núll krónur.

Þetta kemur fram í nýjum árs­reikn­ingi félags­ins vegna árs­ins 2025, sem Við­skipta­blaðið greindi fyrst frá.

Bakka­stakkur tap­aði tæpum 1,7 millj­arði króna í fyrra en tæpum 4,9 millj­örðum árið 2024. „Mark­aðs­að­stæður voru erf­iðar árið 2025 eins og nokkur fyrri ár, m.a. vegna inn­flutn­ings á ódýrum kís­il­málmi frá Kína til Vest­ur­heims,“ segir í árs­reikn­ingnum. „Þróun í byrjun árs 2025 var nokkuð hag­stæð en í kjöl­far óróa á alþjóða­mörk­uðum, m.a. vegna óvissu í tolla­málum, lækk­uðu verð skarpt þegar leið á fyrri hluta þess árs.“

Félagið Bakka­stakkur var stofnað 2014 til að fjár­festa í PCC á Bakka og á um 34,6% hlut í kís­il­ver­inu. Hlut­hafar í félag­inu eru helst líf­eyr­is­sjóðir og Íslands­banki, sem fer með 18,25% hlut. Gildi á 19,43%, Stapi 14,84%, …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Ofterfallvöltgæfanilífinu
    0
  • Stefán Agnar Finnsson skrifaði
    Þetta er ekki bara saga um misheppnaða fjárfestingu. Hana verður einnig að skoða í samhengi við kvótakerfið, framsal aflaheimilda og þá misheppnuðu byggðastefnu sem fylgdi í kjölfarið.

    Þegar aflaheimildir færðust úr byggðunum og söfnuðust á færri hendur urðu til gríðarleg einkaverðmæti. Samfélögin sem misstu störf og atvinnugrundvöll þurftu hins vegar nýja atvinnuuppbyggingu. Þá komu ríkið, sveitarfélögin, orkufyrirtækin og loks lífeyrissjóðir almennings að borðinu.

    Arðurinn af sameiginlegri auðlind var að miklu leyti einkavæddur, en áhættan af því að bæta þær afleiðingar sem sjávarbyggðirnar máttu þola vegna kerfisins var samfélagsvædd. Nú situr almenningur uppi með tapið í gegnum lífeyrissjóðina.

    Bakki er því ekki aðeins dæmi um vonda fjárfestingarákvörðun. Hann er líka afleiðing af stefnu þar sem verðmætin sem áður héldu uppi sjávarbyggðunum færðust til fárra sægreifa, en ábyrgðin og áhættan af kerfisbreytingunni lenti á almenningi.
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár