Viljum að fólk upplifi náttúruna og hafi gaman

Fjalla­vinir fagna 15 ára afmæli í ár og verða með sér­staka afmæl­is­ferð eftir versl­un­ar­manna­helgi að Græna­hrygg. Fram undan eru alls konar skemmti­legar ferðir.

Farnar verða þrjár ferðir í ágúst sem nefn­ast Græni­hryggur, Skalli og Laugar. Um er að ræða dags­ferðir en gengið verður að Græna­hrygg og komið niður í Land­manna­laugar. Lita­dýrðin á svæð­inu er ein­stök og upp­lifunin sömu­leiðis enda leiðin sér­stök með öllum sínum fjöl­breyti­leika, sér­stæðu og lita­dýrð. Fjalla­vinir munu bjóða upp á fleiri ferðir, meðal ann­ars á Herðu­breið, nokkuð sem göngu­fólk þarf að upp­lifa, segir Þórður Ingi Mar­els­son, en hann er eig­andi Fjalla­vina ásamt konu sinni, Fríðu Hall­dórs­dóttur.

Vel geymd perla

Þórður Ingi segir að Græni­hryggur og svæðið þar í kring sé vel geymd perla. Þetta er fremur krefj­andi hálend­is­ganga sem tekur sex til átta klukku­stundir. Farið er af stað úr Reykja­vík klukkan sex að morgni og komið í bæinn aftur um mið­nætti.

Græni­hryggur dregur nafn sitt af litnum sem er á honum en hann er túr­kís­grænn og áber­andi í lands­lag­inu. Græni­hryggur er innan við Land­manna­laugar á Torfa­jök­uls­svæð­inu, en …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár