Hefur gengið á eftir Ástþóri í 19 ár vegna ógreidds reiknings

Árið 2005 sendi Steinþór Grímsson athafna­mann­inum Ástþóri Magn­ús­syni reikn­ing upp á rúmar 30 þús­und krónur á þávirði. Hann hefur ekki enn feng­ist greiddur þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir í áranna rás. Ástþór þver­tekur fyrir að skulda mann­inum, sem og öðrum, nokkuð.

Hefur gengið á eftir Ástþóri í 19 ár vegna ógreidds reiknings
Ástþór Magn­ús­son lætur sig hverfa fyrir utan þá mán­uði sem hann stendur í kosn­inga­bar­áttu, að sögn við­mæl­anda. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Árið 2005 mun athafna­mað­ur­inn og for­seta­fram­bjóð­and­inn Ástþór Magn­ús­son hafa lent í tölvu­vand­ræðum. Maður að nafni Steinþór Bjarni Grímsson kom og gerði við tölv­una hans. Hann vildi fá 31.125 krónur á þávirði greiddar fyrir þriggja tíma vinnu. 

Ástþór hefur hins vegar þrá­ast við að greiða Stein­þóri og þver­tekið fyrir að hann hafi unnið nokkuð fyrir sig. Reikn­ing­ur­inn er því enn ógreiddur tæpum tveimur ára­tugum síðar. 

„Ég sendi honum reikn­ing­inn og hann bara hverfur,“ segir Steinþór í sam­tali við Heim­ild­ina. „Því hann kemur bara á fjög­urra ára fresti til lands­ins. Þá næ ég ekk­ert í hann til að rukka þetta. Þetta er ekki það há upp­hæð – mér finnst bara leið­in­legt að gefa alveg eftir.“

 Steinþór segir að fjár­hæðin sem Ástþór skuldi sér sé um 85 þús­und krónur á gengi dags­ins í dag. En það mun vera and­virði um þriggja tíma vinnu að núvirði. „Ég er ekk­ert að reikna …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PK
    Pétur Kristjánsson skrifaði
    Tæpar 30,000 kr á tímann?
    0
  • Magnús Mörður Gígja skrifaði
    Áfram Steinþór!
    Þú átt stuðning margra vísan, og kannski að þetta verði hvatning til annara sem eiga inni pening hjá Ástþóri til að stíga fram.
    Þetta endar kannski í hópmálssókn.
    3
  • Steinþór Grímsson skrifaði
    Svo er það annar forsetaframbjóðandi sem ég seldi mótorhjól 1981 og sem hefur aldrei borgað hjólið þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til þess að rukka hann, mörghundruð skipti þar sem ég og fleiri reyndum að rukka hann um hjólið eða greiðslu frá 1981, í 43 ár. Hann er núna kominn í forsetaframboð með slagorðin: "... er með mikla réttlætiskennd ...“ :)
    0
  • Steinþór Grímsson skrifaði
    Ég þakka Ragnhildi og Heimildinn fyrir þessa grein.
    Þess má geta eftir að þessi grein var skrifuð, að Gunnar hjá islandus.com hafði samband við mig á fimmtudaginn þann 11. og bar skilaboð á milli Ástþórs og mín í nokkrum símtölum. Þar bauðst Ástþór til að borga upphaflega reikninginn og ekkert annað. Gunnar bætti um betur og bauð 50.000 með VSK til þess að ljúka málinu en ég bauð honum á móti að það væri 50.000 plús VSK. Gunnar fór með það til Ástþórs en hann neitaði. Þannig standa málin í dag. Það kemur ekki nægilega skýrt fram í greininni en ég er með staðfestingu frá Ástþóri að hann ætlaði að borga reikninginn á sínum tíma og einnig hafði bókari hans sem er hætt núna, staðfest að ég ætti að senda reikninginn á Álftarborgir ehf. en ekki Frið 2000 eins og Ástþór gaf mér upphaflega upp en leiðrétti síðar. Gunnar sagði líka að Ástþór bað um að reikningurinn yrði stílaður á Íslandus núna síðast. Ég er búinn að senda alla söguna sem ég á í tölvupóstum á Ástþór, tvisvar sinnum fyrir nokkrum árum en hann er farinn að kalka. En sagan lengist.
    Upphaflega hafði sameinginlegur kunningi okkar samband við mig vegna þess að strákur sem hafði verið að vinna fyrir Ástþór og kannski ekki fengið greitt, lokað og læst server sem Friður 2000 átti og rak upp í Vogarseli. Ég fór með þessum kunningja okkar upp í Vogasel og komst inn á serverinn og opnaði hann. Með ferðum og vinnu var þetta um 3 tímar. Á meðan drukku Ástþór og kunningi okkar kannski kaffi en ég gerði það ekki, ég drekk bara te.
    10
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár