Árni Oddur fékk 322 milljónir króna frá Marel í fyrra

Fyrr­ver­andi for­stjóri Marel, sem hætti skyndi­lega störfum í fyrra­haust eftir ára­tug í stöð­unni, var með 14,9 millj­ónir króna á mán­uði í laun í fyrra. Hann fékk auk þess ein­skipt­is­greiðslu upp á 158 millj­ónir króna.

Árni Oddur fékk 322 milljónir króna frá Marel í fyrra
Hættur eftir ára­tug Árni Oddur Þórð­ar­son steig til hliðar sem for­stjóri Marel í fyrra­haust eftir að Arion banki hafði gert veð­kall hjá honum. Mynd: Aðsend

Árni Oddur Þórð­ar­son, sem hætti sem for­stjóri Marel snemma í nóv­em­ber í fyrra eftir ára­tug í því starfi, fékk alls greiddar 2.159 þús­und evrur, tæp­lega 322 millj­ónir króna, í laun og aðrar greiðslur frá félag­inu í fyrra. Hann fékk um 1,1 milljón evra, um 163,5 millj­ónir króna, í laun, liíf­eyr­is­sjóðs­greiðslur og bónus, sem var 210 þús­und evrur eða 31,3 millj­ónir króna. Það þýðir að laun Árna Odds, að bón­u­snum með­töldum, voru 14,9 millj­ónir króna að með­al­tali á síð­asta ári, miðað við að hann starf­aði hjá Marel í ell­efu mán­uði. 

Til við­bótar við þetta fékk Árni Oddur greidda rúma milljón evra, 1.062 þús­und slíkar, í það sem kall­ast „Extra­or­din­ary items“, um 158,3 millj­ónir króna. Þar er um að ræða ein­skipt­is­greiðslur sem tengj­ast því að hann hætti störfum. Árni Sig­urðs­son tók við af Árna Oddi sem for­stjóri Marel.

Marel, sem er næst verð­mætasta félagið í íslensku kaup­höll­inni, er metið á um 375 millj­arða króna. Félagið skil­aði 31 milljón evra, um 4,6 millj­arða króna, hagn­aði á árinu 2023. Það er næstum helm­ingi minni hagn­aður en Marel skil­aði ári áður. 

Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands segir að „ó ljósi áskor­ana í ytra efna­hags­um­hverfi og starfs­um­hverfi við­skipta­vina, sem og óvissu um hvenær vænta má við­snún­ings á mörk­uðum, hafa stjórn­endur Marel end­ur­skoðað áætl­anir félags­ins bæði fyrir árið 2024 og til með­al­langs tíma.“

Þar segir að félagið geri ráð fyrir tekju­sam­drætti og lægri afkomu á fyrsta árs­fjórð­ungi yfir­stand­andi árs sem skýrist af lágri stöðu pant­ana­bókar, sem sam­svarar 34 pró­sent af tekjum síð­ustu tólf mán­aða, og lágu hlut­falli pant­ana fyrir stærri verk­efni á síð­ustu árs­fjórð­ungum.

Barátta um yfirráð í Marel

Mikil drama­tík hefur verið í kringum Marel síð­ustu mán­uði. Stærsti eig­andi Marel er Eyrir Invest sem á tæp­lega fjórð­ungs­hlut í Marel. Þangað til fyrir skemmstu áttu feðgarnir Þórður Magn­ús­son og Árni Oddur Þórð­ar­son 38,5 pró­sent í Eyri Invest. Arion banki fram­kvæmdi hins vegar veð­kall á lánum til Árna Odds í lok októ­ber í fyrra og leysti til sín hluta af eignum feðganna. Það veð­kall leiddi til afsagnar Árna Odds sem for­stjóra Marels. Feðgarnir eru þó áfram sem áður langstærstu eig­endur Eyris Invest.

Heim­ildin greindi frá því í ítar­legri umfjöllun í haust að hörð átök væru um yfir­ráð í félag­inu á bak­við tjöldin. Hópur í kringum feðgana taldi að Arion banki hefði með athæfi sínu verið að reyna að tryggja Sam­herja og fjár­fest­inga­fé­lag­inu Stoð­um yf­ir­ráð í Mar­el á miklu und­ir­verði.

Árni Oddur, var um tíma í greiðslu­stöðvun á meðan að unnið var úr hans málum þessu tengd. 

Í milli­tíð­inni hafði hann beina aðkomu að því að fá John Bean Technologies Corporation (JBT), banda­rískt fyr­ir­tæki með höf­uð­stöðvar í Chicago, að því að leggja fram óskuld­bind­andi vilja­yf­ir­lýs­ingu um taka yfir Marel. Hann kom að mál­inu sem ólaun­aður ráð­gjafi og Eyrir Invest hefur gert sam­komu­lag við JBT um stuðn­ing við yfir­tök­una. 

Mun verða tvískráð

Eftir að hafa hafnað fyrstu til­boðum JBT sam­þykkti stjórn Marel að ganga til frek­ari við­ræðna við fyr­ir­tækið í síð­asta mán­uði eftir að það hækk­aði til­boð sitt í annað sinn. Það var gert á grund­velli til­boðs um að greiða 538 krónur á hlut, sem er 14,3 pró­sent hærra en það sem JBT bauð upp­haf­lega og 9,5 pró­sent hærri en núver­andi mark­aðsvirði Marels. 

Í skil­mál­um og fyr­ir­vör­um vilja­yf­ir­lýs­ing­ar­ JBT kom meðal ann­ars fram að fyr­ir­tækið myndi greiða fyr­ir hluti í Mar­el geti verið með reiðufé, með hlut­um í JBT, eða með blöndu af reiðufé og hlut­um í JBT. Gert er ráð fyr­ir að hlut­haf­ar í Mar­el muni eign­ast um 38 pró­sent hluta­fjár hins sam­ein­aða fé­lags, en það er skráð á markað í New York í Banda­ríkj­un­um.

Verði að komi að sam­ein­ingu mun fé­lagið bera nafnið JBT Mar­el Corporation og vera bæði skráð í Banda­ríkj­un­um og í ís­lensku Kaup­höll­inni. Sam­einað fé­lag muni starf­rækja evr­ópsk­ar höf­uð­stöðvar og tækni­þró­un­ar­set­ur í Garðabæ, en höf­uð­stöðvar fé­lags­ins verða í Chicago í Banda­ríkj­un­um.

Árni Oddur stofn­aði fjár­fest­inga­fé­lag utan um eft­ir­stand­andi 14 pró­sent hlut sinn í Eyri Invest fyrr á þessu ári. Það félag heitir Sex Álnir ehf., og stofn­hlutafé þess er fjórir millj­arðar króna. Sjálfur er Árni Oddur stærsti hlut­hafi félags­ins með 38,5 pró­sent hlut en aðrir hlut­hafar eru meðal ann­ars Bogi Þór Sig­urodds­son og Linda Björk Ólafs­dóttir í gegnum Bóksal ehf., Kristján Loftsson í gegnum Hval hf., Guðbjörg Matth­í­as­dóttir, stærsti eig­andi Ísfé­lags­ins og félag í eigu Jakobs Valgeirs útgerð­ar­manns.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár