Valdablokkir í Matador um Marel

Valdablokkir í Matador um Marel

Það geisar stríð í íslensku við­skipta­lífi. Stærstu eig­endur stærsta fjár­fest­inga­fé­lags lands­ins, Eyris Invest, telja einn stærsta banka lands­ins, Arion banka, vera að reyna að tryggja Samherja og Stoðum yfir­ráð í Marel. Enn vakna spurn­ingar um hvort eðli­legt sé að hefð­bundin banka­starf­semi og fjár­fest­inga­banka­starf­semi, eigi yfir­höfuð saman. Leik­fléttan felur í sér næt­ur­fundi, veð­kall, afsögn og á end­anum greiðslu­stöðvun sem ætlað er að kaupa tíma fyrir þá sem gripnir voru í bólinu.

Eyrir Invest hefur lengi verið eitt stærsta fjár­fest­inga­fé­lag lands­ins. Snemma á öld­inni var félagið kjöl­festu­fjár­festir í tveimur íslenskum félögum sem hugðu á mik­inn alþjóð­legan vöxt, Össur og Marel. Árið 2011 seldi Eyrir allan eft­ir­stand­andi hlut sinn í Össuri til að ein­beita sér að einni kjarna­eign, Marel, en Eyrir hefur verið stærsti hlut­hafi þess félags síðan 2005. Umfang Marels óx gríð­ar­lega á þessum árum, meðal ann­ars með yfir­tökum á fyr­ir­tækjum utan Íslands. Í dag er félagið í far­ar­broddi á heims­vísu í þróun og fram­leiðslu tækja, hug­bún­aðar og þjón­ustu fyrir mat­væla­vinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Marel hafði lýst því yfir að félagið stefndi að tólf pró­sent með­al­vexti á ári á tíma­bil­inu 2017 til 2026. Þar af átti innri vöxtur að vera fjögur til sex pró­sent og fimm til sjö pró­sent átti að koma í gegnum fyr­ir­tækja­kaup. 

Sumarið 2019 voru hluta­bréf í félag­inu tekin til við­skipta í Euronext kaup­höll­inni í …

Kjósa
141
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (9)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • LBE
    Lára Brynhildur Eiríksdóttir skrifaði
    Alveg mögnuð grein, skildi ekki heilminginn en lærði ótrúlega mikið, Þetta er það sem almenningur þarf að lesa, Fólk þarf að fara að oppna augun,
    1
  • Endurtekið efni frá hruni og sami mannskapur í brúnni. Takk fyrir greinargóð skrif.
    0
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Er Samherji að taka yfir öll fyrirtæki landsins?
    2
  • Jóhannes Baldvinsson skrifaði
    Hvernig er plottið hjá Arion Banka í sambandi við að afhenda Samherja og Stoðum ,,þynntan" hlut í Eyri Invest? Þessi grein vekur hjá mér fleiri spurningar en hún svarar.
    0
    • MGÁ
      Marteinn Gísli Árnason skrifaði
      Sammala þer,vandamalið er ef maður spyr spurninga fær maður ekki svör.

      Rifjum upp "sma" mal þegar rikisstjorn Islands akvað að loka uppl.,i smb., við hrunið
      til u.þ.b. 100 ara otrulegt en satt.
      0
  • MGÁ
    Marteinn Gísli Árnason skrifaði
    'Uff,maður skilur ekki nema 1% af þeassari grein.Þeir felagar sem rituðu þessa grein hafa augljoslega lagt mikla vinnu i þetta eg treysti þeim algjörlega,þetta eru menn asamt öðrum hja Heimildinni sem ÞORA að tala og lata ekki bugast þott ÖFLIN geri allt til að knesetja þa.

    Gat svosem verið að Samherji væri með lukurnar slimugu i þessu alveg otrulega osvifnir naungar.
    8
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Ætli sagnfræðingar framtíðar eigi eftir að kalla okkar tíma "Samherjaöldina" líkt og við tölum um þrettándu öldina sem " Sturlungaöld. Það er ástæða til að poppa og fylgjast vel með þegar höfðingjarnir fara að vega hvern annan.
    6
  • BGH
    Bardur G Halldorsson skrifaði
    Mjög greinargott og varndað.
    8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár