Kapphlaupið um krúnudjásnið Marel

Uppsögn for­stjóra, veð­kall, greiðslu­stöðvun, ásak­anir um óbil­girni og óheið­ar­leika banka, fjár­festar sem liggja undir grun um að vilja lauma sér inn bak­dyra­megin á und­ir­verði, óskuld­bind­andi yfir­lýs­ingar um mögu­legt yfir­tökutil­boð, skyndi­leg virð­is­aukn­ing upp á tugi millj­arða króna í kjöl­farið, höfnun á því til­boði, harð­ort opið bréf frá erlendum vog­un­ar­sjóði með ásök­unum um hags­muna­á­rekstra og nú mögu­legt til­boðs­stríð. Þetta hefur verið veru­leiki Marel, stærsta fyr­ir­tækis Íslands, síð­ustu vikur.

Kapphlaupið um krúnudjásnið Marel
Stjórn­endur Árni Oddur Þórð­ar­son var einu sinni stjórn­ar­for­maður Marel, áður en hann tók við starfi for­stjóra sem hann gegndi í ára­tug. Hann er í dag, ásamt föður sínum, stærsti hlut­haf­inn í stærsta eig­anda Marel. Árni Sig­urðs­son tók við for­stjóra­starf­inu af honum og Arnar Þór Másson hefur setið sem stjórn­ar­for­maður frá árinu 2021. Hann var vara­for­maður stjórnar frá 2013. Mynd: Heimildin / Tómas

Í bók­inni „Ævin­týrið um Marel“ eftir Gunnar Þór Bjarna­son, sem kom út fyrr á þessu ári, er rakið hvernig hug­myndin að fyr­ir­tæk­inu fædd­ist í jóla­boði sem haldið var í litlu ein­býl­is­húsi að Melgerði 16 í Kópavogi árið 1977. Þar sett­ust á tal Rögn­valdur Ólafsson og Þórður Vig­fús­son og ræddu hvernig nýta mætti nýj­ustu tækni til að bæta hrá­efn­is­vinnslu og fram­leiðni í fisk­vinnslu. Í bók­inni segir: „Brátt voru þeir alveg nið­ur­sokknir í sam­ræð­urnar og krot­uðu minnis­p­unkta og tölur á serví­ettu milli þess sem þeir sötr­uðu heitt súkkulaði og gæddu sér á öðrum kræs­ingum. [...] Þarna kvikn­aði neisti sem með tím­anum leiddi til þess að fyr­ir­tækið Marel var stofnað.“

Það gerð­ist form­lega árið 1983 og til að byrja með voru starfs­menn­irnir tveir. Í dag er Marel stærsta fyr­ir­tæki lands­ins, fjöldi starfs­manna er um átta þús­und og starf­semin teygir sig til yfir 30 landa. Því hefur verið lýst sem krúnu­djásni, sprot­anum sem …

Kjósa
33
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingimundur Bergmann skrifaði
    Það er verulega leitt ef þetta tæknifyrirtæki fer úr landi og ég a.m.k. vona að svo fari ekki.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár