Faðirinn á Íslandi og leitar sona sinna

Barns­faðir Eddu Bjarkar Arn­ar­dóttur er kom­inn til Íslands og leitar nú sona sinna. Lögmaður hans kallar eftir því að sá eða sú sem hýsir þá stígi fram. „Ég skil það þannig að yfir­völd viti ekki einu sinni hvar synir hans eru,“ segir lög­mað­ur­inn.

Faðirinn á Íslandi og leitar sona sinna
Lög­reglan „Þeir hafa skapað sér líf í Noregi. Þeir munu snúa þangað aftur, þeir hafa varið meiri­hluta ævinnar í Noregi,“ segir Sjak um dreng­ina. Hann hvetur þau sem vita hvar þeir eru til þess að láta lög­regl­una vita. Mynd: Bára Huld Beck

„Sá sem hefur tekið þessi börn eða er með þau hjá sér, hann mun finn­ast. Hann ætti að vakna á hverjum degi og bíða þess að yfir­völd banki á hurð­ina hjá honum,“ segir Sjak R. Haaheim, lög­maður barns­föður Eddu Bjarkar Arn­ar­dóttur. 

Faðirinn er nú hér á landi og leitar sona sinna. 

Edda Björk var á þriðju­dag færð í gæslu­varð­hald á Hólms­heiði vegna kom­andi rétt­ar­halda yfir henni í Noregi. Hún var síðan flutt með valdi af lög­reglu­mönnum frá Hólms­heiði fyrr í dag og er útlit fyrir að hún sé nú á leið til Noregs. Dag­setn­ing fyrir rétt­ar­höldin hefur ekki verið gefin út.

Ástæða þessa er for­sjár­deila sem Edda og barns­faðir hennar standa í vegna þriggja sona þeirra. Norskir dóm­stólar hafa kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að þeir eigi að búa hjá föður sínum en Edda fór þrátt fyrir það með syni sína til Íslands fyrir um einu og hálfu ári síðan og hér hafa þeir búið síðan þá. Edda hefur verið kærð fyrir að nema dreng­ina á brott. Lengsti mögu­legi fang­els­is­dómur sem hún gæti fengið hljóðar upp á sex ár.

Nú eru drengirnir í felum, óljóst er hver tók ákvörðun um að fela þá og hvar þeir eru nið­ur­komnir. Fjöl­skylda Eddu hefur sagt þá vera örugga og að þeim líði vel. 

„Umbjóð­andi minn ætlar að vera á Íslandi þangað til börn­unum er komið með öruggum hætti aftur heim [til Noregs],“ segir Sjak. „Ég skil það þannig að yfir­völd viti ekki einu sinni hvar synir hans eru.“

Sá sem hýsir börnin eigi að stíga fram

Faðirinn kallar eftir því að hver sá sem veit hvar synir hans eru nið­ur­komnir láti lög­regl­una vita, segir Sjak sem telur að mann­eskjan sem nú hýsi börnin gæti verið að fremja lög­brot. 

LögmaðurSjak R. Haaheim.

„Við búumst við því að sá sem er með börnin stígi fram innan sól­ar­hrings,“ segir Sjak. 

Hann telur að fram að þessu hafi verið ein­blínt um of á rétt­indi móð­ur­innar Eddu og tími sé til kom­inn að setja hag drengj­anna í for­grunn. „Þeir búa í Noregi,“ segir Sjak. 

En nú eru þeir á Íslandi? 

„Lagalega séð búa þeir í Noregi,“ segir Sjak sem ætlar að kalla eftir því að drengirnir fái rétt­ar­gæslu­mann. „Við rétt­ar­höldin í Noregi mun sér­fræði­vitni bera vitni um það hvaða skaða valdið börnum að taka þau frá vinum sínum og úr skóla með því að fela þau ein­hvers­staðar.“ 

En nú hafa drengirnir skapað sér líf á Íslandi, gæti það ekki skaðað þá að fara aftur til Noregs? 

„Þeir hafa skapað sér líf í Noregi. Þeir munu snúa þangað aftur, þeir hafa varið meiri­hluta ævinnar í Noregi.“ 

Hvað ef þeir hafna því að fara aftur? 

„Þeir hafa ekki neitað því að fara. Múgur hefur reynt að koma í veg fyrir fram­gang rétt­læt­is­ins. Það er ekk­ert til að vera stoltur af. Börnin vilja fara heim en þeim hefur verið neitað um aug­ljós rétt­indi sín.“ 

Aðspurður segir Sjak að fað­ir­inn hafi ekki kallað eftir hand­töku Eddu, það hafi verið aðgerðir á vegum norskra og íslenskra yfir­valda. Aftur á móti segir hann að erfitt hafi verið að fá íslensk yfir­völd til sam­starfs. „Norð­ur­löndin ættu að vinna saman í svona málum,“ segir Sjak. 

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Árni Guðnýar skrifaði
    Lýtur Ĝóða Fólkið í gras fyrir lögum
    -1
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Eru börnin réttlaus?
    Barist um eins og hverna annan varning!
    7
  • Kristín Magnúsdóttir skrifaði
    Mikil harka í þessu máli og dapurlegt á sjá hvernig stjórnvöld hafa tekið þátt í að glæpavæða fjölskyldumál.
    1
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Ekki hægt að taka afstöðu til þessa máls enda vitum við ekki forsendur málsins. Hefðu Íslendingar brugðist öðruvísi við ef við snérum málinu við, pabbinn komið með drengina hingað eftir að móðurinni hefði verið dæmd forsjá?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mál Eddu Bjarkar

Forræðisdeila Eddu Bjarkar og barnsföður hennar: Hvað gerðist eiginlega?
GreiningMál Eddu Bjarkar

For­ræð­is­deila Eddu Bjarkar og barns­föður hennar: Hvað gerð­ist eig­in­lega?

Deilur íslenskra for­eldra, sem hafa staðið yfir í fimm ár, hafa verið dregnar fram í ærandi skært kast­ljós fjöl­miðla á síð­ast­liðnum mán­uði. For­eldr­arnir, Edda Björk Arn­ar­dóttir og barns­faðir hennar, eiga saman fimm börn og hafa deilur þeirra farið fram svo oft frammi fyrir dóm­stólum að tvær hendur þarf til þess að telja skiptin.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár