Drengirnir voru með tannskemmdir og sýkingar í tannholdi

„Það leit út eins og það hafi ekki verið burstaðar í honum tenn­urnar í hálft ár,“ segir Edda Björk Arn­ar­dóttir sem sótti syni sína til Noregs. Hún lýsir meðal ann­ars atburða­rásinni sem átti sér stað þegar hún sótti börnin.

Drengirnir voru með tannskemmdir og sýkingar í tannholdi

Stundin greindi nýverið frá máli þar sem móðir þriggja drengja sótti þá með einka­flug­vél til Noregs og flutti til Íslands, þvert á úrskurð norskra yfir­valda sem dæmt hafði föður þeirra fullt for­ræði yfir drengj­unum, en fað­ir­inn býr í Noregi.

Móðirin, Edda Björk Arn­ar­dóttir, stígur nú fram í við­tali hjá Eddu Falak í þætt­inum Eigin Konur. Þar lýsir hún meðal ann­ars atburða­rásinni sem átti sér stað í Noregi þegar hún sótti börnin þrjú. Edda Björk á fimm börn með mann­inum, dætur hennar tvær eru í hennar umsjá en syn­irnir þrír voru í umsjá föð­ur­ins í Noregi.

Tannheilsa barnanna mjög slæm

Í við­tal­inu segir Edda Björk að tann­heilsa drengj­anna þriggja hafi verið afar slæm. Samkvæmt gögnum sem Stundin hefur undir höndum sést að þeir hafi allir þurft miklar tann­virð­gerðir sökum mik­illa tann­skemmda og sýk­inga í tann­holdi. Svo miklar að svæfa þurfti einn drengj­anna fyrir aðgerð.

„Hann er með tann­skemmdir, kemur í ljós …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (7)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigurður Sigurðsson skrifaði
    Þetta lítur alltaf ver og ver út fyrir föðurnum og yfirvöldum.
    3
  • MÁ
    Margrét Ásgeirsdóttir skrifaði
    Erfitt a taka afstöðu til máls frá annarri hlið. Hinsvegar er hægt að taka afstöðu með systkinum og tengslum þeirra. Furðuleg eigingirni af hálfu föður að ætla systkinum að alast upp hjá sitthvoru foreldrinu eins og um sé að ræða skipti á eignum. Mikilvægt er fyrir systkini, sem þurfa að upplifa skilnað foreldra, að fá að alast upp saman á heimili. Þess vegna er sameiginlegt forræði regla á Íslandi og systkini fylgjast að milli tveggja heimila. Afstaða norskra barnaverndaryfirvalda sem krefjast þess að norska sé töluð á íslensku heimili lýsir sýn þeirra á erlenda ríkisborgara sem búa í Noregi og vanþekkingu á mikilvægi móðurmáls í tengslaneti fjölskyldu.
    2
  • Hafdís Hauksdóttir skrifaði
    þessi maður er ekki í lagi😡
    4
  • Auður Leifsdóttir skrifaði
    Frábært viðtal við hugrakka og sterka konu! Svona mál eiga erindi við almenning og nauðsynlegt innlegg í umræðuna um kynjað ofbeldi.
    9
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Er Stundin að fara yfir strikið?
    -8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mál Eddu Bjarkar

Forræðisdeila Eddu Bjarkar og barnsföður hennar: Hvað gerðist eiginlega?
GreiningMál Eddu Bjarkar

For­ræð­is­deila Eddu Bjarkar og barns­föður hennar: Hvað gerð­ist eig­in­lega?

Deilur íslenskra for­eldra, sem hafa staðið yfir í fimm ár, hafa verið dregnar fram í ærandi skært kast­ljós fjöl­miðla á síð­ast­liðnum mán­uði. For­eldr­arnir, Edda Björk Arn­ar­dóttir og barns­faðir hennar, eiga saman fimm börn og hafa deilur þeirra farið fram svo oft frammi fyrir dóm­stólum að tvær hendur þarf til þess að telja skiptin.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár