Heimilislaus með ígerð í báðum handleggjum - „Þú veist hvernig þetta er“

Njáll Skarp­héð­ins­son er þreyttur á því að vera heim­il­is­laus. Hann þráir að vera í stöðu til að hitta börnin sín og barna­börn, að bjóða þeim í heim­sókn. Nýverið bland­aði hann sér óvænt í mót­mæli á Aust­ur­velli þar sem fólk gaf honum pen­ing til að fara. Pen­ing­inn ætl­aði hann að nota til að kaupa dóp. „Ég er að verða örmagna,“ segir hann.

Heimilislaus með ígerð í báðum handleggjum - „Þú veist hvernig þetta er“
Njáll Skarp­héð­ins­son er 62 ára gam­all og á hvergi heima. Mynd: EH

„Ég er ekki búinn að fara í bað í marga mán­uði. Þegar maður býr í gisti­skýl­inu er maður oft svo búinn á því. Ég meika ekki einu sinni að éta,“ segir Njáll Skarp­héð­ins­son sem er heim­il­is­laus. Hann er staddur á Aust­ur­velli sem oftar, og bendir á stytt­una af Jóni Sig­urðs­syni með orð­unum: „Hann sagði: „Hér stend ég og get ekki annað.“ En ég stend hér og get annað,“ segir Njáll. 

Honum er mikið niðri fyrir. Heldur á bjór og sígar­ettu. Kappið hefur þó borið hann ofur­liði þennan dag því það var alls ekki Jón Sig­urðs­son, bar­áttu­maður fyrir sjálf­stæði Íslend­inga hvers fæð­ing­ar­dagur var síðar gerður að þjóð­há­tíð­ar­degi, sem sagði þetta heldur Marteinn Lúther, sá er lút­erska kirkjan er kennd við. Það var árið 1521 sem þýski munk­ur­inn Marteinn Lúther kom fyrir þingið í Worms, mælti fyrir sið­bót sinni og sagði: „Hér stend ég og get ekki annað, svo hjálpi mér guð, …

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Heimilisleysi

„Þetta eru tíðindi“ í málefnum heimilislausra
FréttirHeimilisleysi

„Þetta eru tíð­indi“ í mál­efnum heim­il­is­lausra

Vel­ferð­ar­svið Reykja­víkur hefur sam­þykkt beiðni Samtaka sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um samn­inga­við­ræður vegna þjón­ustu við heim­il­is­laust fólk. Reykja­vík hefur borið hit­ann og þung­ann af þess­ari þjón­ustu og varið um millj­arði í hana það sem af er ári. Borgin hefur ítrekað kallað eftir því að fleiri sveit­ar­fé­lög komi að borð­inu.
Saka meirihlutann um „þöggunartilburði“ og „lítilsvirðingu“ við málefni heimilislausa
FréttirHeimilisleysi

Saka meiri­hlut­ann um „þögg­un­ar­til­burði“ og „lít­ils­virð­ingu“ við mál­efni heim­il­is­lausa

Sam­fylk­ingin gagn­rýndi meiri­hluta Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar í Hafn­ar­firði þegar kemur að mál­efnum heim­il­is­lausra á síð­asta bæj­ar­ráðs­fundi. Beiðni fjöl­skyldu­ráðs um aðgang að verk­lags­reglum um aðgengi fólks með lög­heim­ili í Hafn­ar­firði að neyð­ar­skýlum í Reykja­vík var svarað með óljósu minn­is­blaði. Enn er ósvarað öllum lyk­il­spurn­ingum um hvernig það gat gerst að heim­il­is­lausum manni var vísað frá neyð­ar­skýli að kröfum Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar án þess að nokkur þar tæki á móti honum en hann svipti sig lífi í kjöl­farið.
Leysum ekki vanda heimilislausra „þótt við leggjum fram einhverjar tillögur um þetta eða hitt“
FréttirHeimilisleysi

Leysum ekki vanda heim­il­is­lausra „þótt við leggjum fram ein­hverjar til­lögur um þetta eða hitt“

Rifist var um forms­at­riði og „titt­linga­skít“ í stað þess að ræða neyð heim­il­is­lausra á síð­asta bæj­ar­stjórn­ar­fundi Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar, að mati bæj­ar­full­trúa Við­reisnar. Þar var til­lögum Sam­fylk­ing­ar­innar um aðgerðir vegna mál­efna heim­il­is­lausra vísað frá af meiri­hlut­anum með þeim rökum að sam­bæri­legar hug­myndir væru í vinnslu ann­ars staðar. Bæj­ar­stjóri segir mik­il­vægt að gera mál­efni heim­il­is­lausra ekki póli­tísk. Bæj­ar­full­trúi Sam­fylk­ingar vændi meiri­hlut­ann um að ætla að svæfa málið.
„Í besta falli ósmekkleg gaslýsing“ - Segir Hafnarfjarðarbæ hvetja heimilislausa til að færa lögheimilið
FréttirHeimilisleysi

„Í besta falli ósmekk­leg gas­lýs­ing“ - Segir Hafn­ar­fjarð­arbæ hvetja heim­il­is­lausa til að færa lög­heim­ilið

„Við skulum ekki gleyma því að Hafn­ar­fjarð­ar­bær hefur einnig margoft boð­ist til að aðstoða sína borg­ara við að skrá lög­heim­ili sitt í annað bæj­ar­fé­lag og jafn­vel fyrir greiðslu svo að bær­inn losni við að þjón­usta fólk og minnki kostnað,“ segir Guð­mundur Ingi Þór­odds­son, for­maður Afstöðu. Hann seg­ist sjálfur hafa setið slíkan fund með skjól­stæð­ingi sem bær­inn taldi „óæski­legan borg­ara“.
„Ekki í boði að úthýsa þeim“ – Kalla eftir svörum frá Hafnarfjarðarbæ um aðgengi að neyðarskýlunum
FréttirHeimilisleysi

„Ekki í boði að úthýsa þeim“ – Kalla eftir svörum frá Hafn­ar­fjarð­arbæ um aðgengi að neyð­ar­skýl­unum

Málefni heim­il­is­lausra voru til umræðu á fundi bæj­ar­ráðs Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar í gær eftir að heim­il­is­laus maður sem var ítrekað vísað frá neyð­ar­skýli að kröfu bæj­ar­ins svipti sig lífi. „Þetta er síð­asta úrræði þeirra sem eru á göt­unni og eiga við vanda að stríða, og það er ekki í boði að úthýsa þeim,“ segir Guð­mundur Árni Stef­áns­son, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar. Fjöl­skyldu­ráð bæj­ar­ins hefur kallað eftir að sjá verk­lags­reglur í þessum málum.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár