Áhugaleysi hjá nágrannasveitarfélögunum - „Þetta er auðvitað bagalegt“

Engar úrbætur hafa verið gerðar í mál­efnum heim­il­is­lausra með miklar og flóknar þjón­ustu­þarfir í Garðabæ, Hafn­ar­firði, Kópavogi, Mos­fellsbæ og Sel­tjarn­ar­nesi, þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir Reykja­vík­ur­borgar til að fá sveit­ar­fé­lögin til sam­starfs.

Áhugaleysi hjá nágrannasveitarfélögunum - „Þetta er auðvitað bagalegt“
Kolbrún gagnýnir að sveit­ar­fé­lög á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, utan Reykja­víkur, virð­ist hafa hafnað því að styðja við heim­il­is­lausa. Mynd: Stundin / Jón Ingi

Þrátt fyrir ítrekuð sam­töl hafa til­raunir Reykja­vík­ur­borgar til að fá Samtök sveit­ar­fé­lög á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til sam­starfs ekki leitt til þess að sveit­ar­fé­lögin hafi sett fram áætl­anir um við­brögð við heim­il­is­leysi ein­stak­linga með miklar og flóknar þjón­ustu­þarfir og hafa lög­heim­ili utan Reykja­víkur en sækja þjón­ustu til höfð­uð­borg­ar­innar. Þetta kemur fram í end­ur­skoð­aðri aðgerða­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar fram til árs­ins 2027 í mál­efnum heim­il­is­lausra með mikla þjón­ustu­þörf sem sam­þykkt var í borg­ar­stjórn í vik­unni.

Vel­ferð­ar­svið Garða­bæjar, Hafn­ar­fjarðar, Kópavogs, Mos­fells­bæjar og Sel­tjarn­ar­ness ákváðu á vor­mán­uðum 2022 að fara af stað með sam­starfs­verk­efni í mála­flokki heim­il­is­lausra. Mark­miðið með verk­efn­inu var að meðal ann­ars að móta til­lögur um það hvernig bæta mætti þjón­ustu við þennan hóp með sam­eig­in­legu átaki aðild­ar­sveit­ar­fé­lag­anna. 

„Önnur sveit­ar­fé­lög virð­ast hafa hafnað því að styðja við þennan hóp“
Kolbrún Áslaugar Bald­urs­dóttir

„Engar úrbætur hafa verið gerðar af hálfu umræddra sveit­ar­fé­laga í kjöl­far þess­arar vinnu sem bendir til áhuga­leysis sveit­ar­fé­lag­anna til úrbóta sem veldur því að þungi af mála­flokknum í Reykja­vík eykst,“ segir í aðgerða­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar þar sem fjallað er um áskor­anir í mála­flokknum.

„Önnur sveit­ar­fé­lög virð­ast hafa hafnað því að styðja við þennan hóp,“ segir í bókun sem Kolbrún Áslaugar Bald­urs­dóttir, áheyrn­ar­full­trúi Flokks fólks­ins í vel­ferð­ar­ráði lagði fram á síð­asta fundi ráðs­ins þar sem hún fjall­aði um áður­nefnt áhuga­leysi nágranna­sveit­ar­fé­lag­anna. Í bók­un­inni segir enn­fremur: „Þetta er auð­vitað baga­legt.“

Í aðgerða­á­ætl­un­inni er enn­fremur gagn­rýnt að Reykja­vík­ur­borg beri eitt sveit­ar­fé­laga hit­ann og þung­ann af þjón­ust­unni og hvetur til þess að ríkið móti sér stefnu í mála­flokknum, en Reykja­vík­ur­borg hefur ítrekað vakið athygli stjórn­valda á stöð­unni. 


Þessi skortur á sam­starfi sveit­ar­fé­lag­anna á sér ýmsar birt­ing­ar­myndir. Heim­ildin greindi frá því sum­arið 2023 að heim­il­is­laus karl­mað­ur svipti sig lífi eft­ir að hafa ver­ið vís­að frá neyð­ar­skýli í Reykja­vík. Ástæða frá­vís­un­ar­inn­ar var krafa Hafna­fjarð­ar­bæj­ar þar sem mað­ur­inn var með lög­heim­ili, en lög­heim­il­is­sveit­ar­fé­lag greiddi þá svo­kallað gistin­átta­gjald ef fólk þurfti að leita skjóls í neyð­ar­skýl­unum sem öll eru í Reykja­vík.

„Hann var með lög­heim­ili í Hafn­ar­firði og Hafn­ar­fjarð­ar­bær neit­aði að borga fyrir hann í gisti­skýl­inu. Honum var vísað frá því Hafn­ar­fjarð­ar­bær sagði bara Fokkaðu þér,“ sagði systir manns­ins í sam­tali við Heim­ild­ina. 

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Heimilisleysi

Heimilislaus með ígerð í báðum handleggjum - „Þú veist hvernig þetta er“
FréttirHeimilisleysi

Heim­il­is­laus með ígerð í báðum hand­leggjum - „Þú veist hvernig þetta er“

Njáll Skarp­héð­ins­son er þreyttur á því að vera heim­il­is­laus. Hann þráir að vera í stöðu til að hitta börnin sín og barna­börn, að bjóða þeim í heim­sókn. Nýverið bland­aði hann sér óvænt í mót­mæli á Aust­ur­velli þar sem fólk gaf honum pen­ing til að fara. Pen­ing­inn ætl­aði hann að nota til að kaupa dóp. „Ég er að verða örmagna,“ segir hann.
„Þetta eru tíðindi“ í málefnum heimilislausra
FréttirHeimilisleysi

„Þetta eru tíð­indi“ í mál­efnum heim­il­is­lausra

Vel­ferð­ar­svið Reykja­víkur hefur sam­þykkt beiðni Samtaka sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um samn­inga­við­ræður vegna þjón­ustu við heim­il­is­laust fólk. Reykja­vík hefur borið hit­ann og þung­ann af þess­ari þjón­ustu og varið um millj­arði í hana það sem af er ári. Borgin hefur ítrekað kallað eftir því að fleiri sveit­ar­fé­lög komi að borð­inu.
Saka meirihlutann um „þöggunartilburði“ og „lítilsvirðingu“ við málefni heimilislausa
FréttirHeimilisleysi

Saka meiri­hlut­ann um „þögg­un­ar­til­burði“ og „lít­ils­virð­ingu“ við mál­efni heim­il­is­lausa

Sam­fylk­ingin gagn­rýndi meiri­hluta Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar í Hafn­ar­firði þegar kemur að mál­efnum heim­il­is­lausra á síð­asta bæj­ar­ráðs­fundi. Beiðni fjöl­skyldu­ráðs um aðgang að verk­lags­reglum um aðgengi fólks með lög­heim­ili í Hafn­ar­firði að neyð­ar­skýlum í Reykja­vík var svarað með óljósu minn­is­blaði. Enn er ósvarað öllum lyk­il­spurn­ingum um hvernig það gat gerst að heim­il­is­lausum manni var vísað frá neyð­ar­skýli að kröfum Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar án þess að nokkur þar tæki á móti honum en hann svipti sig lífi í kjöl­farið.
Leysum ekki vanda heimilislausra „þótt við leggjum fram einhverjar tillögur um þetta eða hitt“
FréttirHeimilisleysi

Leysum ekki vanda heim­il­is­lausra „þótt við leggjum fram ein­hverjar til­lögur um þetta eða hitt“

Rifist var um forms­at­riði og „titt­linga­skít“ í stað þess að ræða neyð heim­il­is­lausra á síð­asta bæj­ar­stjórn­ar­fundi Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar, að mati bæj­ar­full­trúa Við­reisnar. Þar var til­lögum Sam­fylk­ing­ar­innar um aðgerðir vegna mál­efna heim­il­is­lausra vísað frá af meiri­hlut­anum með þeim rökum að sam­bæri­legar hug­myndir væru í vinnslu ann­ars staðar. Bæj­ar­stjóri segir mik­il­vægt að gera mál­efni heim­il­is­lausra ekki póli­tísk. Bæj­ar­full­trúi Sam­fylk­ingar vændi meiri­hlut­ann um að ætla að svæfa málið.
„Í besta falli ósmekkleg gaslýsing“ - Segir Hafnarfjarðarbæ hvetja heimilislausa til að færa lögheimilið
FréttirHeimilisleysi

„Í besta falli ósmekk­leg gas­lýs­ing“ - Segir Hafn­ar­fjarð­arbæ hvetja heim­il­is­lausa til að færa lög­heim­ilið

„Við skulum ekki gleyma því að Hafn­ar­fjarð­ar­bær hefur einnig margoft boð­ist til að aðstoða sína borg­ara við að skrá lög­heim­ili sitt í annað bæj­ar­fé­lag og jafn­vel fyrir greiðslu svo að bær­inn losni við að þjón­usta fólk og minnki kostnað,“ segir Guð­mundur Ingi Þór­odds­son, for­maður Afstöðu. Hann seg­ist sjálfur hafa setið slíkan fund með skjól­stæð­ingi sem bær­inn taldi „óæski­legan borg­ara“.
„Ekki í boði að úthýsa þeim“ – Kalla eftir svörum frá Hafnarfjarðarbæ um aðgengi að neyðarskýlunum
FréttirHeimilisleysi

„Ekki í boði að úthýsa þeim“ – Kalla eftir svörum frá Hafn­ar­fjarð­arbæ um aðgengi að neyð­ar­skýl­unum

Málefni heim­il­is­lausra voru til umræðu á fundi bæj­ar­ráðs Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar í gær eftir að heim­il­is­laus maður sem var ítrekað vísað frá neyð­ar­skýli að kröfu bæj­ar­ins svipti sig lífi. „Þetta er síð­asta úrræði þeirra sem eru á göt­unni og eiga við vanda að stríða, og það er ekki í boði að úthýsa þeim,“ segir Guð­mundur Árni Stef­áns­son, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar. Fjöl­skyldu­ráð bæj­ar­ins hefur kallað eftir að sjá verk­lags­reglur í þessum málum.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár