„Þetta eru tíðindi“ í málefnum heimilislausra

Vel­ferð­ar­svið Reykja­víkur hefur sam­þykkt beiðni Samtaka sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um samn­inga­við­ræður vegna þjón­ustu við heim­il­is­laust fólk. Reykja­vík hefur borið hit­ann og þung­ann af þess­ari þjón­ustu og varið um millj­arði í hana það sem af er ári. Borgin hefur ítrekað kallað eftir því að fleiri sveit­ar­fé­lög komi að borð­inu.

„Þetta eru tíðindi“ í málefnum heimilislausra
Gisti­skýlin í Reykja­vík eru yfir­full og vand­inn eykst með hverju ári. Mynd: Reykjavíkurborg

„Þetta eru tíð­indi, að þau séu að leita til okkar og vilji fara í samn­inga­við­ræður um að koma inn í þessa þjón­ustu. Það er alla­vega mjög jákvætt,“ segir Rannveig Ein­ars­dóttir, sviðs­stjóri vel­ferð­ar­sviðs Reykja­vík­ur­borgar, um að Samtök sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu (SSH) vilji semja við borg­ina um aðkomu að fjöl­þættri þjón­ustu fyrir heim­il­is­laust fólk. 

Samkvæmt skýrslu SSH um sam­starf í mál­efnum heim­il­is­lausra sem birt var í mars­mán­uði búa 76 ein­stak­lingar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, utan Reykja­víkur, við heim­il­is­leysi. Þar af eru 20 konur og 56 karlar. 

Fjöldi kvenna vanmetinn

Rann­sóknir sem unnar hafa verið á mál­efna­svið­inu sýna að fjöldi kvenna sem glímir við heim­il­is­leysi er oftar en ekki van­met­inn við kort­lagn­ingu á heim­il­is­leysi þar sem um dul­inn hóp er að ræða, sam­an­borið við karla. Í skýrsl­unni kemur fram að það geti kallað á sér­tækar aðgerðir til að hafa uppi á heim­il­is­lausum konum til að átta sig á fjölda þeirra og högum.

Hingað til hefur Reykja­vík borið hit­ann og þung­ann af þjón­ustu við heim­il­is­laust fólk og bendir Rannveig á að hvorki nágranna­sveit­ar­fé­lögin né ríkið séu með stefnu eða áætl­anir um slíka þjón­ustu. „Við höfum áhyggjur af því,“ segir hún en fagnar frum­kvæði SSH.

Vel­ferð­ar­svið sam­þykkti á fundi sínum í gær beiðni SSH um að semja um aðkomu að þjón­ustu Vett­vangs- og ráð­gjaf­arteymis Reykja­vík­ur­borgar og mögu­legri vetr­ar­opnun sér­staks neyð­ar­skýlis.

Öll útfærsla óákveðin

Vett­vangs- og ráð­gjaf­arteymi Reykja­vík­ur­borgar (VoR-teymið) er þver­fag­legt hreyf­an­legt teymi sem veitir ein­stak­lingum með miklar og flóknar þjón­ustu­þarfir ráð­gjöf og stuðn­ing. VoR-teymið starfar meðal ann­ars með fólki í neyð­ar­skýlum, smá­húsum og í íbúða­kjörnum. Teymið veitir einnig ein­stak­lingum í sjálf­stæðri búsetu stuðn­ing og ráð­gjöf í anda hug­mynda­fræð­innar um Húsnæði fyrst.

Málið er enn á byrj­un­ar­stigi og öll útfærsla óákveðin en fyrsti fund­ur­inn vegna samn­inga­við­ræðn­anna er í næstu viku. Meðal ann­ars þarf að skil­greina þá þjón­ustu sem VoR-teymið getur veitt eða óskað er eftir. 

Milljarður á þessu ári

Rannveig segir að af hálfu Reykja­vík­ur­borgar sé gerð krafa um að kostn­að­ar­skipt­ing við rekstur VoR-teym­is­ins verði jöfn á milli sveit­ar­fé­laga og í sam­ræmi við íbúa­hlut­fall, eins og að jafn­aði er gert í sam­vinnu­verk­efnum SSH. Kostn­að­ur­inn sem miðað er við verði að end­ur­spegla raun­kostnað við þjón­ustu í mála­flokknum.

„Gisti­skýlin eru yfir­full“

„Þetta er dýr þjón­usta. Á þessu ári hefur Reykja­vík­ur­borg varið um millj­arði í þennan mála­flokk. Við viljum bara leggja áherslu á eðli­lega kostn­að­ar­skipt­ingu,“ segir Rannveig en ýmis sveit­ar­fé­lög eru með samn­ing við borg­ina um að greiða svo­kallað gistin­átta­gjald fyrir fólk sem er með lög­heim­ili utan Reykja­víkur en nýti sér gisti­skýlin.

Þá segir hún stöð­una í mála­flokknum erf­iða. „Gisti­skýlin eru yfir­full. Við viljum auð­vitað sjá fólk í við­un­andi búsetu. Gisti­skýlin eru ekki úrræði sem hentar nema í neyð,“ segir hún.

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Heimilisleysi

Heimilislaus með ígerð í báðum handleggjum - „Þú veist hvernig þetta er“
FréttirHeimilisleysi

Heim­il­is­laus með ígerð í báðum hand­leggjum - „Þú veist hvernig þetta er“

Njáll Skarp­héð­ins­son er þreyttur á því að vera heim­il­is­laus. Hann þráir að vera í stöðu til að hitta börnin sín og barna­börn, að bjóða þeim í heim­sókn. Nýverið bland­aði hann sér óvænt í mót­mæli á Aust­ur­velli þar sem fólk gaf honum pen­ing til að fara. Pen­ing­inn ætl­aði hann að nota til að kaupa dóp. „Ég er að verða örmagna,“ segir hann.
Saka meirihlutann um „þöggunartilburði“ og „lítilsvirðingu“ við málefni heimilislausa
FréttirHeimilisleysi

Saka meiri­hlut­ann um „þögg­un­ar­til­burði“ og „lít­ils­virð­ingu“ við mál­efni heim­il­is­lausa

Sam­fylk­ingin gagn­rýndi meiri­hluta Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar í Hafn­ar­firði þegar kemur að mál­efnum heim­il­is­lausra á síð­asta bæj­ar­ráðs­fundi. Beiðni fjöl­skyldu­ráðs um aðgang að verk­lags­reglum um aðgengi fólks með lög­heim­ili í Hafn­ar­firði að neyð­ar­skýlum í Reykja­vík var svarað með óljósu minn­is­blaði. Enn er ósvarað öllum lyk­il­spurn­ingum um hvernig það gat gerst að heim­il­is­lausum manni var vísað frá neyð­ar­skýli að kröfum Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar án þess að nokkur þar tæki á móti honum en hann svipti sig lífi í kjöl­farið.
Leysum ekki vanda heimilislausra „þótt við leggjum fram einhverjar tillögur um þetta eða hitt“
FréttirHeimilisleysi

Leysum ekki vanda heim­il­is­lausra „þótt við leggjum fram ein­hverjar til­lögur um þetta eða hitt“

Rifist var um forms­at­riði og „titt­linga­skít“ í stað þess að ræða neyð heim­il­is­lausra á síð­asta bæj­ar­stjórn­ar­fundi Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar, að mati bæj­ar­full­trúa Við­reisnar. Þar var til­lögum Sam­fylk­ing­ar­innar um aðgerðir vegna mál­efna heim­il­is­lausra vísað frá af meiri­hlut­anum með þeim rökum að sam­bæri­legar hug­myndir væru í vinnslu ann­ars staðar. Bæj­ar­stjóri segir mik­il­vægt að gera mál­efni heim­il­is­lausra ekki póli­tísk. Bæj­ar­full­trúi Sam­fylk­ingar vændi meiri­hlut­ann um að ætla að svæfa málið.
„Í besta falli ósmekkleg gaslýsing“ - Segir Hafnarfjarðarbæ hvetja heimilislausa til að færa lögheimilið
FréttirHeimilisleysi

„Í besta falli ósmekk­leg gas­lýs­ing“ - Segir Hafn­ar­fjarð­arbæ hvetja heim­il­is­lausa til að færa lög­heim­ilið

„Við skulum ekki gleyma því að Hafn­ar­fjarð­ar­bær hefur einnig margoft boð­ist til að aðstoða sína borg­ara við að skrá lög­heim­ili sitt í annað bæj­ar­fé­lag og jafn­vel fyrir greiðslu svo að bær­inn losni við að þjón­usta fólk og minnki kostnað,“ segir Guð­mundur Ingi Þór­odds­son, for­maður Afstöðu. Hann seg­ist sjálfur hafa setið slíkan fund með skjól­stæð­ingi sem bær­inn taldi „óæski­legan borg­ara“.
„Ekki í boði að úthýsa þeim“ – Kalla eftir svörum frá Hafnarfjarðarbæ um aðgengi að neyðarskýlunum
FréttirHeimilisleysi

„Ekki í boði að úthýsa þeim“ – Kalla eftir svörum frá Hafn­ar­fjarð­arbæ um aðgengi að neyð­ar­skýl­unum

Málefni heim­il­is­lausra voru til umræðu á fundi bæj­ar­ráðs Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar í gær eftir að heim­il­is­laus maður sem var ítrekað vísað frá neyð­ar­skýli að kröfu bæj­ar­ins svipti sig lífi. „Þetta er síð­asta úrræði þeirra sem eru á göt­unni og eiga við vanda að stríða, og það er ekki í boði að úthýsa þeim,“ segir Guð­mundur Árni Stef­áns­son, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar. Fjöl­skyldu­ráð bæj­ar­ins hefur kallað eftir að sjá verk­lags­reglur í þessum málum.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár