Arctic Fish um laxaförgun í Tálknafirði: „Fiskivelferð í fyrirrúmi hjá okkur“

Arctic Fish á Ísafirði seg­ist hafa fiski­vel­ferð í fyr­ir­rúmi eftir að birtar voru myndir af sár­ugum eld­is­löxum eftir lús í sjó­kvíum fyr­ir­tæk­is­ins í Tálkna­firði. Norskur eig­andi Arctic Fish segir að hækka þurfi stand­ar­dinn í rekstri Arctic Fish og kennir stjórn­völdum á Íslandi að hluta til um tjónið vegna laxa­förg­un­ar­innar.

Arctic Fish um laxaförgun í Tálknafirði: „Fiskivelferð í fyrirrúmi hjá okkur“
Fiski­vel­ferð í fyr­ir­rúmi í svari Arctic Fish segir að fiski­vel­ferð sé í fyr­ir­rúmi hjá fyr­ir­tæk­inu. Myndin sýnir sáruga eld­is­laxa eftir laxa­lús og bakt­er­íusmit í kví fyr­ir­tæk­is­ins í Tálkna­firði í lok síð­ustu viku. Mynd: Veiga Grétarsdóttir

Sjó­kvía­eld­is­fyr­ir­tækið Arctic Fish segir að fyr­ir­tækið hafi „fiski­vel­ferð í fyr­ir­rúmi“ í svari sínu við frétta­flutn­ingi Heim­ild­ar­innar um lúsafar­ald­ur­inn og laxa­förg­un­ina hjá fyr­ir­tæk­inu í Tálkna­firði síð­ustu vik­urnar. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu á Facebook. 

Þar segir meðal ann­ars: „Við tökum þess­ari stöðu mjög alvar­lega enda er fiski­vel­ferð í fyr­ir­rúmi hjá okkur. Ýmsar ástæður er fyrir því að þessi staða er komin upp og fara þarf vel í gegn um hvað má betur fara í þeim efnum. Fiskur sem tek­inn er út fer til fóð­ur­gerðar.“ Um og yfir milljón eld­is­laxar hafa drep­ist eða þeim hefur verið fargað hjá Arctic Fish og Arn­ar­laxi. 

Heim­ildin fjall­aði um laxa­förg­un­ina hjá fyr­ir­tæk­inu í gær en hún er án hlið­stæðu í íslensku lax­eldi. Karl Steinar Ósk­ars­son hjá MAST sagði ein­fald­lega að eng­inn hefði séð svona ástand áður í íslensku sjó­kvía­eldi. Um er að ræða fyrsta skiptið sem slíkur lúsafar­aldur kemur upp í íslensku lax­eldi. 

„Slíkir atburðir geta komið upp í allri mat­ar­fram­leiðslu á dýrum, en það sem við sjáum hér er mjög gagn­rýni­vert og óásætt­an­legt.“
Svar Mowi við fréttum af laxa­förg­un­inni

Mowi vonar að standardinn hjá Arctic Fish hækki

Umfjöll­unin um laxa­dauð­ann og -förg­un­ina hjá Arctic Fish hefur vakið tals­verða athygli, bæði á Íslandi og í Noregi. Ástæðan er meðal ann­ars sú að Arctic Fish er í meiri­hluta­eigu norska lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Mowi sem er stærsta lax­eld­is­fyr­ir­tæki í heimi.

Norska stór­blaðið Dagens Nær­ingsliv fjall­aði til dæmis um málið strax í gær og leit­aði við­bragða hjá Mowi. Upp­lýs­inga­full­trúi Mowi, Ola Helge Hjetland, sagði þá við blaðið að því miður hefði komið upp „alvar­legur atburður“ hjá Arctic Fish. Orðrétt sagði Ola: „Slíkir atburðir geta komið upp í allri mat­ar­fram­leiðslu á dýrum, en það sem við sjáum hér er mjög gagn­rýni­vert og óásætt­an­legt.“

Í blað­inu kom fram að Mowi ynni að því að starf­semi Arctic Fish næði sama stand­ardi og rekstur Mowi á öðrum stöðum þar sem félagið stundar sjó­kvía­eldi. 

Mowi kennir stjórn­völdum umStærsti eig­andi Arctic Fish, norski lax­eld­is­ris­inn Mowi, kennir kerf­inu á Íslandi um lúsafar­ald­ur­inn sem geisar hjá Arctic Fish. Stein Ove Tveiten er for­stjóri Arctic Fish.

Mowi bendir á stjórnvöld á Íslandi

Þá sagði upp­lýs­inga­full­trú­inn einnig að hluti ástæð­unnar fyrir lúsafar­aldr­inum og laxa­dauð­anum væri að finna hjá stjórn­völdum á Íslandi sem ekki hefðu sett nægi­lega góðar reglur svo eld­is­fyr­ir­tækin geti brugð­ist við laxa­lús þegar hún kemur upp. „Auk þess eru regl­urnar því miður þannig á Íslandi að sjó­kvía­eld­is­fyr­ir­tækin geta ekki brugð­ist hratt og örugg­lega við bráðum vanda vegna laxalúsar. [...] Í fram­tíð­inni þurfa opin­berar stofn­andir og lax­eld­is­fyr­ir­tækin að vinna saman til að búa til reglu­verk um við­brögð við laxalúsa­vanda­málum sem virkar,“ segir í svar­inu sem Dagens Nær­ingsliv birtir.  

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • FSK
    Fríða S. Kristinsdóttir skrifaði
    Það er hræðilegt að sjá laxana á þessum myndum.
    0
  • MGÁ
    Marteinn Gísli Árnason skrifaði
    Þetta gengur ekki lengur,það er nokkurn veginn sama hvar Mowi kemur við
    sögu það eru alltaf mistök s.s. suður america, norður america o.sv.f.þetta er
    ekkert nytt það þarf engan norskan serfræðing til að sja þetta allt til i opinberum gögnum
    viða um heim.
    Hver rannsakar foðrið sem er buið til ur þessum milljonum laxa SEM ERU SYKTIR OG MIKIÐ AF EITUREFNUM ER BUIÐ AÐ STRA YFIR I GEGNUM ARIN?
    Hver borgar tjonið sem þetta eldi hefur a natturu ISLANDS.

    Eitt er klart að Mowe og fl. tapa engu" null" a þessum hörmungum.
    4
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    „Fiskivelferð í fyrirrúmi hjá okkur“

    En hvað með velferð og virðingu fyrir náttúrinni ?
    4
  • Sigurður Sigurðsson skrifaði
    Islensk stjórnvöld...Þessi er lúsugur í heilanum. Ætla að reyna að gera betur? Reyna?
    3
  • Ásta Jensen skrifaði
    Hvers konar dýraníð er það að vera með fiskeldi?
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár