KFUM vill ekki „breiða yfir sannleikann“ um séra Friðrik

Forysta KFUM og KFUK seg­ist brugðið að heyra af vitn­is­burði manns um að séra Friðrik Frið­riks­son, sem stofn­aði sam­tökin á Íslandi, hafi leitað á hann.

KFUM vill ekki „breiða yfir sannleikann“ um séra Friðrik
Prest­ur­inn og æsku­lýðs­for­ing­inn Séra Friðrik Frið­riks­son stofn­aði KFUM, Val og Hauka.

„Við í KFUM og KFUK viljum hvorki breiða yfir sann­leik­ann né sög­una. Ef hægt er að leiða í ljós að stofn­andi sam­tak­anna hafi gerst sekur um brot gagn­vart börnum, teljum við slíkt upp­gjör nauð­syn­legt.“ 

Þetta er meðal þess sem fram kemur í yfir­lýs­ingu frá for­ystu KFUM og KFUK vegna upp­ljóstrana um kyn­ferð­is­of­beldi séra Friðriks Frið­riks­sonar, stofn­anda sam­tak­anna, gegn ungum dreng. Maðurinn, sem er um átt­rætt í dag, greindi Guðmundi Magn­ús­syni sagn­fræð­ingi frá reynslu sinni og er hún rakin í nýút­kominni bók Guð­mundar, Séra Friðrik og drengirnir hans.

„Okkur í for­ystu KFUM og KFUK er brugðið við að heyra frá­sögn um að sr. Friðrik hafi brugð­ist trausti þeirra sem hann starf­aði fyrir. Það hryggir okkur meira en orð fá lýst,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Í henni er rakið hvaða kröfur séu í dag gerðar til þeirra sem koma að starfi með börnum og ung­mennum á vett­vangi sam­tak­anna. „Þau sem starfa á okkar vegum þurfa að stand­ast ítar­lega bak­grunns­at­hugun og fá einnig þjálfun og upp­fræðslu um siða­reglur, barna­vernd og mörk í sam­skiptum.“

Hafi ein­stak­lingar orðið fyrir kyn­ferð­is­legu áreiti eða ofbeldi á vett­vangi KFUM og KFUK hvetur for­ysta sam­tak­anna við­kom­andi til að til­kynna um það, hversu langt sem liðið er. Það má t.d. gera með því að hafa sam­band við sam­skipta­ráð­gjafa íþrótta- og æsku­lýðs­starfs. https://www.samskiptaradgjafi.is/

Sendi unglingi ástarbréf

Séra Friðrik var dýrk­aður og dáður æsku­lýðs­for­ingi. Hann stofn­aði KFUM árið 1899 eftir að hann kom heim úr námi í Danmörku þar sem hann hafði kynnst starfi sam­tak­anna. 

Sagn­fræð­ingurGuð­mundur Magn­ús­son, höf­undur bók­ar­innar um Friðrik, greindi frá frá­sögn átt­ræðs manns, er séra Friðrik beitti ofbeldi, í Kiljunni.

Ástæða þess að Guð­mundur hóf að skoða ævi og störf Friðriks má að hans sögn rekja til bréfa sem hann fann er hann var að rita ævi­sögu ann­ars manns, Eggerts Claessen. Um var að ræða gömul sendi­bréf frá Friðriki til Eggerts sem rituð voru á árunum 1890-1895. Þau voru frá Friðriki meðan hann var enn í skóla, þá 21 til 27 ára gam­all. Eggert var aftur á móti 12 til 17 ára. „Næstum tíu ára ald­urs­munur var á þeim og Eggert í raun­inni bara barn þegar kynni þeirra hefj­ast,“ skrifar Guð­mundur á heima­síðu sína um aðdrag­and­ann. „Þessi bréf vöktu for­vitni mína vegna þess hve inni­lega eða ást­úð­lega þau eru skrifuð. Mörg þeirra hafa ásýnd ást­ar­bréfa eins og piltar skrif­uðu stúlkum eða stúlkur piltum á þessum tíma. Mjög lítið er varð­veitt um sam­kynja ástir frá 19. öld, efnið var algjört tabú í gamla þjóð­fé­lag­inu, og mér fannst ég þess vegna þurfa að kynna mér betur hvernig sam­skiptum þeirra Friðriks og Eggerts var háttað.“  

KFUM varð­veitir skjöl Friðriks í höf­uð­stöðvum sínum við Holtaveg og reynd­ust nokkur bréf Eggerts til Friðriks vera þar varð­veitt. „Þau eru allt ann­ars eðlis en bréfin til hans frá Friðriki, líkj­ast frekar venju­legum kunn­ingja- eða vina­bréfum,“ skrifar Guð­mundur. „Jafn­framt fór ég að lesa mér til um sögu séra Friðriks og kom þá margt mér mjög á óvart, sér­stak­lega hvernig hann lýsir sam­skiptum sínum við drengi og pilta.“

Öll púslin komu svo saman er mað­ur­inn sem Friðrik hafði leitað á er hann var drengur steig fram og sagði Guðmundi sögu sína.

Styttan vakti bælt atvik

Guð­mundur hefur einnig birt ítar­legan pistil á heima­síðu sinni um upp­lýs­ingar sem hann fann eftir að hann lauk við skrif ævi­sög­unnar. Um var að ræða ferða­bók danska rit­höf­und­ar­ins og list­sögu­fræð­ings­ins Poul Vad sem kom út árið 1994 og var gefin út í íslenskri þýð­ingu nokkrum árum síðar. Vad hafði á ung­lings­aldri hitt séra Friðrik í Danmörku.

Í mið­bænumSigurjón Ólafsson mynd­höggv­ari gerði stytt­una af séra Friðrik og drengnum sem afhjúpuð var árið 1855. Fyr­ir­mynd drengs­ins var m.a. sótt í son sam­starfs­manns Sig­ur­jóns.

Poul kom til Íslands 1970, rúm­lega fer­tugur, og lýsir því í bók­inni þegar hann rekst á stytt­una af séra Friðriki og drengnum við Lækj­ar­götu. Í fram­hald­inu rifj­ast upp kynnin af honum í Danmörku.

„Það var mann­hæð­arhá brons­stytta, sett upp í Reykja­vík miðri, sem vakti til lífs minn­ing­una um þetta bælda eða kannski bara gleymda atvik. Styttan er af sitj­andi, grann­vöxnum, síð­skeggj­uðum öld­ungi, sem réttir hægri hand­legg alveg fram og leggur hönd­ina um höf­uðið á ungum pilti sem stendur fyrir framan hann,“ skrifar Vad. Hann seg­ist ekki hafa þurft að lesa á brons­plöt­una á sökkli högg­mynd­ar­innar til að gera sér ljóst að gamli mað­ur­inn væri Friðrik Frið­riks­son, en það kemur honum „á óvart að þessi prestur nyti svo mik­illar virð­ingar að mönnum hefði þótt knýj­andi að minn­ast hans í höf­uð­stað lands­ins með þessu feikna minn­is­merki.“

Þoldi ekki stúlkur nærri sér

Er hann hitti Friðrik var hann orð­inn gam­all maður en vakti slíka lotn­ingu að slíku hafði Vad aldrei áður kynnst. Sérann sat í hæg­inda­stól sem við­staddir hnöpp­uð­ust um, líkt og Vad orðar það. „Það skal hér tekið fram að við­staddir, sem eins og áður sagði hnöpp­uð­ust um hæg­inda­stól­inn, voru allir karl­kyns, því að þessi kristni höfð­ingi, sem kom­inn var siglandi til okkar yfir Atl­ants­hafið, hafði einkum og sér í lagi öðl­ast orðstír sinn sem for­göngu­maður ung­linga og leið­togi en fyrir honum voru ung­lingar drengir. Stúlk­unum hafði hann ekki áhuga á. Þær voru honum sem loft. Hann þoldi þær ekki nærri sér. 

Sem drengur, eða öllu heldur: táp­mik­ill drengur, hafði maður þau for­rétt­indi ekki aðeins að heilsa Friðriki Frið­riks­syni heldur líka að dvelja í návist hans, já vera svo að segja hafður honum til sýnis og vera grand­skoð­aður líkt og sá sem er sér­lega útval­inn – en sam­kvæmt við­mið­unum sem aldrei urðu ljósar. Því víst var kyn­ferð­is­stikan umborin af þjóð­fé­lag­inu og bein­línis við­ur­kennd en hér var hún opin­skátt dregin fram á kyn­legan hátt líkt og fram­andi andi, í og með vegna inn­reiðar hans, sem vakti okkur til vit­undar sem við gátum ekki fyr­ir­vara­laust brugð­ist við.“

Hann segir Friðrik hafa horft rann­sak­andi á sig. „Þetta var ann­ar­legt augna­ráð,“ skrifar hann.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    Þetta er Sorgleg saga en þvi miður sönn, eg mun ekki fjalla nanar um þetta En gott að þessi Bok hristir upp i þessu löngu liðna Mali, Barna niðingar smeigðu ser inn i samtök þar sem börn og unglingar voru. Kirjan atti sina Sökudolga Iþrottir og annar Vetvangur þar sem ungir voru Obenber heimili þar sem nyðst var a Börum. A Irlandi var Þjoðin i Heljar greipum Katolsku Kirkjunar, nu loksins er þvi Svarta timabili lokið. I Bretlandi Lek Barnaniðingurinn og starfsmaður BBC Jimmy Savile Laos i 50 ar og svivirti Börn i massa vis hann var Aðlaður og Margaret Thatcher hafði mið dalæti a Honum. I dag i Bretlandi hafa öll Minismerki um hann verið Fjarlægð, Risa stor Seinn a leiði hans Fjalægður. Hann kvilir nu i Omerkti Gröf. Netflix gerði þessu ljota timabili goð skil i þætti Nyverið. Sama er a Islandi Öll merki um Barnaniðinga þarf að Þurka ut, KFUM a Islandi er þar engin undantekning, Ne Þjoðkirkjan sem Islenska rikið Rekur.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár