Þessi grein birtist fyrir meira en ári.

Borgin þarf tíma til að svara hver örlög séra Friðriks og drengsins verða

Í kjöl­far upp­ljóstr­ana um meint kyn­ferð­is­brot séra Frið­riks Frið­riks­son­ar sem um er fjall­að í bók Guð­mund­ar Magnús­son­ar sagn­fræð­ings um ævi og störf manns­ins sem stofn­aði Val, Hauka og KFUM á Ís­landi, hafa vakn­að spurn­ing­ar um styttu af Frið­riki með dreng sér við hlið sem stend­ur við Lækj­ar­götu.

Borgin þarf tíma til að svara hver örlög séra Friðriks og drengsins verða
Sérann og drengurinn Styttan af Friðriki og drengnum stendur í miðbæ Reykjavíkur. Mynd: Shutterstock

Friðrik og drengirnir hans er nýútkomin bók eftir Guðmund Magnússon sagnfræðing og blaðamann. Í bókinni er fjallað um ævi og störf séra Friðriks Friðrikssonar, sem hylltur hefur verið sem einn mesti æskulýðsleiðtogi Íslands, m.a. vegna aðkomu sinnar að stofnun Vals og Hauka og KFUM á Íslandi á fyrri hluta síðustu aldar.

Guðmundur greindi hins vegar frá því í viðtali í sjónvarpsþættinum Kiljunni í gær að Friðrik hafi beitt ungan dreng kynferðislegu ofbeldi, leitað á og káfað á honum. Maðurinn leitaði til Stígamóta árið 2018 þegar afmælis Friðriks var minnst með pompi og prakt.

Drengurinn sem um ræðir er nú karlmaður um áttrætt sem hafði samband við Guðmund er hann var að vinna að ævisögu séra Friðriks. Guðmundur leitaði margvíslegra heimilda við bókarskrifin, m.a. í bréf séra Friðriks og sjálfsævisögu hans. „Ég var svo hissa á því af hverju þær hefðu ekki vakið meiri umræðu – af hverju engin þeirra hefði orðið til opinberrar umræðu; um það hvernig hann til dæmis talar um drengina sína, og drengi [almennt],“ sagði Guðmundur í Kiljunni í gær.

Á horni Amtmannsstígs og Lækjargötu stendur stytta sem ber nafnið „Séra Friðrik og drengurinn“. Styttan er eftir Sigurjón Ólafsson myndhöggvara sem nam í æsku kristinfræði hjá Friðriki og var hlýtt til hans, líkt og segir á vef Listasafns Reykjavíkur.

Á stríðsárunum voru þeir báðir innlyksa í Danmörku þar sem Sigurjón gerði höfuðmynd af sr. Friðriki árið 1943 „áður en það yrði um seinan“ eins og hann komst að orði. Höfuðmyndin var til sýnis meðal annarra mannamynda Sigurjóns í Listvinasalnum 1952. „Vaknaði þá áhugi meðal gamalla nemenda sr. Friðriks á að láta reisa hinum aldna æskulýðsleiðtoga verðugt minnismerki og var Sigurjón sjálfkjörinn til verksins,“ segir á vef Listasafnsins. Valtýr Stefánsson, ritstjóri Morgunblaðsins, tók að sér fjársöfnun vegna minnismerkisins og samdi við yfirvöld, ríki og borg, um staðsetningu þess.

Friðrik hóf að sitja fyrir hjá Sigurjóni vorið 1952 og varð þá til 60 sentímetra há formynd úr leir sem listamaðurinn stækkaði til muna í Kaupmannahöfn þá um sumarið. „Fyrirmynd drengsins sem stendur við hlið sr. Friðriks var annars vegar tréstytta af dreng eftir Tove, konu Sigurjóns, hins vegar ungur sonur samstarfsmanns hans,“ segir í umfjöllun um styttuna.

Hlið við hlið

„Stelling sr. Friðriks og uppbygging verksins ræðst ekki eingöngu af aldri hans og dvínandi þrótti, heldur birtist í þeim næmur skilningur á persónu og lífsstarfi kennimannsins,“ segir þar ennfremur og er svo vitnað í orð Björns Th. Björnssonar: Með því að stilla þeim hlið við hlið, prestinum og drengnum, og tengja þá saman með einfaldri skipan handanna, tekst Sigurjóni að gefa til kynna „hvílandi, góðlátan virðuleika“ séra Friðriks og „innilegt samband hans við „drenginn, sem eru allir drengir“,“ líkt og segir í ævisögu Sigurjóns og vitnað er til á vef listasafnsins.

„Að auki er sjálft höfuð sr. Friðriks frábær mannlýsing, þar sem allir fletir andlitsins bregðast við minnstu breytingu birtunnar,“ segir á vef listasafnsins.

En skuggi hefur hins vegar fallið á manninn og styttuna frá því að viðtalið við Guðmund sagnfræðing birtist í gær. Og margir hafa velt fyrir sér hvað gera eigi við styttu af meintum barnaníðingi og dreng sem stendur á besta stað í borginni.

Heimildin beindi fyrirspurn um þetta mál til borgaryfirvalda og fékk þau svör að málið sé nýuppkomið, að margir starfsmenn séu í fríi vegna vetrarleyfa í skólum. „Við þurfum því meiri tíma til að geta svarað,“ sagði í skriflegu svari frá upplýsingafulltrúa hjá borginni.

Stytta af Sevile fjarlægð

Ekki er óþekkt að styttur af mönnum sem taldir voru skara fram úr en reyndust níðingar séu felldar. Það var m.a. gert við risastóra styttu af sjónvarpsmanninum Jimmy Savile. Styttan sú stóð í lystigarði í miðborg Glasgow en eftir að upp komst um óteljandi kynferðisbrot mannsins sem taldi fólki trú um að hann væri barnavinur mesti ákváðu forsvarsmenn garðsins að láta fjarlægja styttuna. Ýmis önnur minnismerki um Savile voru skemmd af almennum borgurum með ýmsum hætti áður en yfirvöld ákváðu að taka þau niður.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Nei, Hitlers-kveðja Musks var EKKI ævaforn rómversk kveðja
1
Flækjusagan

Nei, Hitlers-kveðja Musks var EKKI æva­forn róm­versk kveðja

Hin við­ur­styggi­lega nas­ista­kveðja Elons Musks dag­inn sem Don­ald Trump var sett­ur í embætti hef­ur að von­um vak­ið mikla at­hygli. Kannski ekki síst vegna þess að kveðj­una lét Musk flakka úr ræðu­stól sem var ræki­lega merkt­ur for­seta Banda­ríkj­anna. Hin fasíska til­hneig­ing margra áhang­enda Trumps hef­ur aldrei fyrr birst á jafn aug­ljós­an hátt — enda lét Musk sér ekki nægja að heilsa...
Sigmundur Davíð ver Musk með hæpnum samanburði
2
Greining

Sig­mund­ur Dav­íð ver Musk með hæpn­um sam­an­burði

Á með­an að öfga­menn og nýnas­ist­ar víða um heim upp­lifa vald­efl­ingu og við­ur­kenn­ingu og fagna an­kanna­legri kveðju Elons Musks spyr fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Ís­lands hvort ís­lensk­ir fjöl­miðl­ar ætli í al­vöru að flytja þá fals­frétt að handa­hreyf­ing sem leit út eins og nas­ista­kveðja, frá manni sem veit­ir öfga­full­um sjón­ar­mið­um vængi flesta daga, hafi ver­ið nas­ista­kveðja.
Yfirgangstal með óþægilega hliðstæðu
3
StjórnmálBandaríki Trumps

Yf­ir­gangstal með óþægi­lega hlið­stæðu

Embætt­i­staka Don­alds Trumps vek­ur upp spurn­ing­ar sem við Ís­lend­ing­ar þurf­um að hugsa alla leið, með­al ann­ars í ljósi yf­ir­lýs­inga hans gagn­vart Græn­landi og Kan­ada, seg­ir Frið­jón R. Frið­jóns­son borg­ar­full­trúi. Hann kveðst einnig hafa „óþæg­inda­til­finn­ingu“ gagn­vart því að vellauð­ug­ir tækni­brós­ar hjúfri sig upp að Trump, sem nú fer á ný með fram­kvæmda­vald­ið í lang­vold­ug­asta ríki heims.
Birkir tapaði fyrir ríkinu í Strassborg
5
Fréttir

Birk­ir tap­aði fyr­ir rík­inu í Strass­borg

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evr­ópu hafn­aði öll­um kæru­lið­um Birk­is Krist­ins­son­ar vegna máls­með­ferð­ar fyr­ir ís­lensk­um dóm­stól­um. Birk­ir var dæmd­ur til fang­elsis­vist­ar í Hæsta­rétt­ið ár­ið 2015 vegna við­skipta Glitn­is en hann var starfs­mað­ur einka­banka­þjón­ustu hans. MDE taldi ís­lenska rík­ið hins veg­ar hafa brot­ið gegn rétti Jó­hann­es­ar Bald­urs­son­ar til rétt­látr­ar máls­með­ferð­ar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Sigurjón sagði hana einfalda en skemmtilega - Enginn mannanna fékk samþykki
3
Fréttir

Sig­ur­jón sagði hana ein­falda en skemmti­lega - Eng­inn mann­anna fékk sam­þykki

Eng­inn þeirra karl­manna sem komu á heim­ili þroska­skertr­ar konu til að hafa kyn­mök við hana var ákærð­ur. Þó hafði eng­inn þeirra feng­ið sam­þykki henn­ar. Sál­fræð­ing­ur seg­ir hana hafa upp­lif­að sjálfs­vígs­hugs­an­ir á þessu tíma­bili. Óút­skýrð­ar taf­ir á lög­reglu­rann­sókn leiddu til mild­un­ar refs­ing­ar yf­ir Sig­ur­jóni Ól­afs­syni, fyrr­ver­andi yf­ir­manni kon­unn­ar.
Það rís úr djúpinu 1: Gríðarlegt vatnsmagn leynist á 660 kílómetra dýpi, og demantar
4
Flækjusagan

Það rís úr djúp­inu 1: Gríð­ar­legt vatns­magn leyn­ist á 660 kíló­metra dýpi, og dem­ant­ar

Fyr­ir fá­ein­um dög­um birti vef­rit­ið Science Al­ert fregn um rann­sókn, sem raun­ar var gerð ár­ið 2022, en hef­ur ekki far­ið hátt fyrr en nú. Hér er frá­sögn Science Al­ert. Rann­sak­að­ur var ör­lít­ill dem­ant­ur sem fund­ist hafði í dem­antanámu í rík­inu Bótsvana í suð­ur­hluta Afr­íku. Hér er sagt frá þeirri rann­sókn í vef­rit­inu Nature.com. Í ljós kom að dem­ant­ur­inn hafði mynd­ast...
Fyrsta barnið fætt á Seyðisfirði í yfir 30 ár - „Fór allt á besta veg miðað við aðstæður“
6
Fréttir

Fyrsta barn­ið fætt á Seyð­is­firði í yf­ir 30 ár - „Fór allt á besta veg mið­að við að­stæð­ur“

Fyrsta barn­ið í yf­ir þrjá ára­tugi fædd­ist á Seyð­is­firði í dag eft­ir snjó­þunga nótt þar sem Fjarð­ar­heið­in var ófær. Varð­skip­ið Freyja var einnig til taks ef flytja þyrfti móð­ur­ina á Nes­kaups­stað. „Þetta er enn ein áminn­ing­in um ör­ygg­is­leys­ið sem við bú­um við,“ seg­ir ný­bök­uð móð­ir­in.

Mest lesið í mánuðinum

Viðskiptaáætlun Carbfix: Földu áform sín fyrir íbúum
1
RannsóknCarbfix-málið

Við­skipta­áætl­un Car­bfix: Földu áform sín fyr­ir íbú­um

Fyr­ir­ætlan­ir Car­bfix eru mun um­fangs­meiri en fram hef­ur kom­ið. Stefnt er að því að dæla nið­ur allt að 4,8 millj­ón­um tonna af kol­díoxí­ði (CO2) og fyr­ir­tæk­ið von­ast til þess að velta hátt í þrjú hundruð millj­örð­um á full­um af­köst­um. Það er hærri upp­hæð en stærsta fyr­ir­tæki lands­ins velt­ir í dag. Á með­al við­skipta­vina er fyr­ir­tæki sem framdi glæp gegn mann­kyni og vill dæla nið­ur CO2 á Ís­landi.
Móðir Kolfinnu Eldeyjar: „Ég segi mína sögu því að samfélagið þarf að vakna“
2
Fréttir

Móð­ir Kolfinnu Eld­eyj­ar: „Ég segi mína sögu því að sam­fé­lag­ið þarf að vakna“

Ingi­björg Dagný Inga­dótt­ir, móð­ir Kolfinnu Eld­eyj­ar Sig­urð­ar­dótt­ur, opn­ar sig um and­lát dótt­ur sinn­ar. Hún seg­ir kerf­in hafa brugð­ist barns­föð­ur sín­um, sem hef­ur ver­ið ákærð­ur fyr­ir að hafa ráð­ið dótt­ur þeirra bana. „Ég vissi strax í hjarta mínu að hann hefði ekki tek­ið með­vit­aða ákvörð­un um að gera svona lag­að“.
Grátbað um myndatöku fyrir barnið sem leiddi í ljós heilaæxli
5
ViðtalMóðursýkiskastið

Grát­bað um mynda­töku fyr­ir barn­ið sem leiddi í ljós heila­æxli

Mán­uð­um sam­an þurfti Hrund Ólafs­dótt­ir að grát­biðja lækni um að senda Sigrúnu, dótt­ur henn­ar, í mynda­töku vegna al­var­legra veik­inda sem voru skil­greind sem mígreni. „Barn­ið bara kvald­ist og kvald­ist og kvald­ist og kvald­ist.“ Þeg­ar hún loks fékk ósk sína upp­fyllta kom í ljós fimm sentí­metra stórt æxli í litla heila Sigrún­ar.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár