Fundu hátt í fjörtíu þolendur mansals hér á landi

Lög­reglan á Íslandi fann 36 ein­stak­linga sem grun­aðir eru um að vera tengdir man­sali hér á landi. Mikið af því var tengt vændi.

Fundu hátt í fjörtíu þolendur mansals hér á landi
Ung­verska lög­reglan tók þátt í aðgerð­unum, og má sjá þol­anda mansals ásamt lög­reglu­þjónum á mynd­inn hér fyrir ofan.

Íslenska lög­reglan, ásamt fimmtán þús­und öðrum lög­reglu­þjónum í 43 löndum, tóku þátt í meiri­háttar aðgerð alþjóð­legu lög­gæslu­stofn­un­ar­innar Europol, Frontex og Interpol, og beind­ist aðgerðin gegn man­sali. Á Íslandi fund­ust 36 ein­stak­lingar sem grunur leikur á að séu þolendur mansals, þá sér­stak­lega vændis, þving­aða­brota­starf­semi og betls. Aðgerðin fór fram hér á landi fyrstu vik­una í júní

Hér á landi var farið á þriðja tug staða og heim­ila og athugað með um 250 manns. 36 af þeim voru taldir hugs­an­legir þolendur mansals og var öllum boðið við­eig­andi aðstoð. Lang­flestir þolend­urnir voru frá Rúmeníu og konur í miklum meiri­hluta, eða 32. Af hugs­an­legum þolendum mansals seldu 34 sig í vændi, en fólkið er á aldr­inum 19-54 ára. Umrædda daga voru enn fremur greind 215 flug með til­liti til hugs­an­legra fórn­ar­lamba mansals og brota­manna.

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, lög­reglan á Suð­ur­nesjum, emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra og toll­gæslan tóku þátt í aðgerð­unum.

…
Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • KEP
    Kolbrún Erna Pétursdóttir skrifaði
    Hvað er þetta? Blaðamaður segir að: ,,Af hugsanlegum þolendum mansals seldu 34 sig í vændi..." Þær seldu sig varla sjálfar ef þær eru þolendur mansals. Endilega setja ábyrgðina á þolendur!
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár