Ákvæðinu beitt fimm sinnum í sögunni: „Áróðurinn trompar allt“

Dagur B. Egg­erts­son gagn­rýnir Morg­un­blaðið og ver beit­ingu þess sem blaðið kallar „kjarn­orku­á­kvæðið“ í grein sem birt var sam­hliða umræðum um málið á Alþingi í dag.

Ákvæðinu beitt fimm sinnum í sögunni: „Áróðurinn trompar allt“
Dagur B. Egg­erts­son Þing­maður Sam­fylk­ingar segir að skipu­leggja þurfi þing­störf betur. Mynd: Golli

Dagur B. Egg­erts­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, birti grein á Vísi hálf­tíma eftir að þing­fundur hófst í dag, meðan umræður um beit­ingu Þórunnar Svein­bjarn­ar­dóttur á 71. grein þing­skap­a­laga stóðu yfir.

Í grein­inni ver hann beit­ingu ákvæð­is­ins og gagn­rýnir Morg­un­blaðið fyrir frétta­flutn­ing af því. „Þegar ég las fyrir nokkru að Morg­un­blaðið væri farið að kalla 71. gr. þing­skapa „kjarn­orku­á­kvæði“ var mín fyrsta hugsun að það væri tak­mörkuð þekk­ing á kjarn­orku á þeim bænum,“ skrifar Dagur. „Áróð­ur­inn trompar allt.“

Ákvæðið gefur for­seta kost á að tak­marka ræðu­tíma um mál og kalla fram atkvæða­greiðslu. Í þetta sinn er það gert til að greidd verði atkvæði um frum­varp um veiði­gjöld.

„Ákvæðið í 71. gr. þing­skapanna er sann­ar­lega ekki nýtt,“ skrifar Dagur. „Þvert á móti er það að stofni til frá 1875 í þeim bráða­birgða­þing­sköpum sem Dana­kon­ungur lagði fram með stjórn­ar­skránni sem hann færði Íslend­ingum (einsog það var orðað) sama ár. Þjóð­þingið hélt ákvæð­inu óbreyttu í þing­sköpum sem sam­þykkt var eftir yfir­legu árið eftir, 1876. Ákvæðið í núver­andi mynd er frá 1936 og þá bætt­ist við að óheim­ilt væri að tak­marka umræður með ákvæð­inu nema þær hefðu þegar staðið í að minnsta kosti þrjár klukku­stundir.

Í þing­tíð­indum má lesa að þing­menn úr öllum eða nær öllum flokkum hafa fært rök fyrir gildi ákvæð­is­ins á síð­ustu öld. Þeirra á meðal Stefán Jóhann Stef­áns­son fyrrv. for­sæt­is­ráð­herra Alþýðu­flokks­ins, Hermann Jónasson fyrrv. for­sæt­is­ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins, Benedikt Sveins­son faðir Bjarna Bene­dikts­sonar eldri og aðrir for­ystu­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins.“

Ákvæðinu beitt fimm sinnum í sögunni

Nefnir Dagur að ákvæð­inu hafi verið beitt fimm sinnum í sögu Alþingis. „Ljóst er af lestri umræðna á Alþingi frá síð­ustu öld að búist var því að greinin yrði meira notuð en raunin hefur orðið,“ skrifar hann. „Það er þó ekki svo að hún hafi ekki verið notuð. Fyrst árið eftir að hún varð til í núver­andi mynd, árið 1937 í umræðu um Slíld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins. Árið 1947 í umræðu um dýr­tíð­ar­ráð­staf­anir (verð­bólgu) sem staðið hafði í átta klukku­stundir. Árið 1949 í umræðu um aðild­ina að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu var umræðan tak­mörkuð við þrjár klukku­stundir í upp­hafi umræð­unnar með atkvæða­greiðslu á grund­velli grein­ar­innar. Árið 1959 í umræðu um fjár­mála­ráð­staf­anir sem staðið höfðu fram á nótt. Að end­ingu var grein­inni beitt árið 1989, einnig að næt­ur­lagi, en þá gætti for­seti þess ekki að bera til­lögu sína undir atkvæði og baðst í kjöl­farið afsök­unar.“

Þá fjallar Dagur um sam­bæri­leg ákvæði í nágranna­ríkjum sem sjaldan eru not­aðar. „Ástæðan er sú að fyrir margt löngu hefur verið tekið á skipu­lagi þing­starfa þannig að umfjöllun þings­ins er skipu­lögð fram í tím­ann en ekki frá degi til dags, einsog það hefur verið fram á þennan dag á Alþingi Íslend­inga,“ skrifar Dagur, sem tók fyrst sæti á Alþingi eftir kosn­ingar í fyrra.

„Það hefur satt best að segja verið merki­legt að kynn­ast því að vita ekki að kvöldi hvernig dag­skrá morg­un­dags­ins er líkt og ára­tuga hefð er fyrir á Alþingi. Þó mætti ætla að þing­menn þyrftu að und­ir­búa sig vel fyrir mik­ils­verðar umræður. Allir sem fylgj­ast með umræðum á þingi vita að í mál­þófi fer skipu­lag og inni­hald veg allrar ver­aldar og stjórn­ar­and­staðan ein­okar jafnan ræðu­stól­inn.“

Vilji Alþingis komi fram með atkvæðagreiðslu

Dagur skrifar að Alþingi hafi verið hik­andi að beita ákvæð­inu þar sem það hafi ekki þurft. „Ég kann þess þó engin dæmi að stjórn­ar­and­staðan hafi gefið skýrt til kynna að stöðv­aður verði fram­gangur allra þing­mála vegna and­stöðu stjórn­ar­and­stöð­unnar við eitt mál,“ skrifar hann og vísar þar í frum­varpið um veiði­gjöld.

„Nú er uppi af hálfu stjórn­ar­and­stöðu ófrá­víkj­an­leg krafa um að frum­varp um veiði­gjöld þurfi að draga til baka eða breyta. Það er ólýð­ræð­is­legt. Það er ekki í sam­ræmi við nið­ur­stöðu síð­ustu Alþing­is­kosn­inga. Það er ekki í sam­ræmi við þing­ræðið. Þetta er staðan nú og því er að mínu mati algjör­lega eðli­legt að beita ákvæð­inu þótt það hafi ekki verið planið. 71. gr er í núver­andi stöðu er eðli­legur hluti þing­skapa til að tryggja fram­gang lýð­ræð­is­ins frekar en að ógna því á nokkurn hátt enda hefur allt verið reynt áður en til hennar er gripið.“

„Það er ekki í sam­ræmi við nið­ur­stöðu síð­ustu Alþing­is­kosn­inga“

Dagur segir að vilji þings­ins muni koma fram með því að greidd verði atkvæði um veiði­gjalda­málið. „Það mun án efa taka ein­hvern tíma og kalla á umræðu. Það er eðli­legt. Fram­haldið varð­andi afgreiðslu ann­arra mála getur ráð­ist af frek­ari við­ræðum stjórnar og stjórn­ar­and­stöðu eða það verður gripið til þess að skipu­leggja frek­ari þing­störf á grunni þing­skapa næstu vikur,“ skrifar hann.

Hvetur hann til þess að þing­störf til fram­tíðar verði skipu­lögð, bæði viku­lega og allan þing­vet­ur­inn fyr­ir­fram. „Hvorugt hefur eitt­hvað með kjarn­orku að gera heldur myndi fyrst og fremst leiða til betri og mark­viss­ari vinnu­bragða,“ skrifar Dagur. „Hvoru tveggja væri til bylt­inga­kenndra bóta og myndi bæta starfs­að­stæður þings­ins, þing­manna, almenn­ings og fjöl­miðla. Allt hefur þetta verið gert og oft fyrir margt löngu í nágranna­lönd­unum. Allir aðrir vinnu­staðir á Íslandi eru líka löngu komnir inn í nútím­ann að þessu leyti. Þar á meðal borg­ar­stjórn og sveit­ar­stjórnir. Það er löngu kom­inn tími til þess á Alþingi.“

Kjósa
97
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TF
    Tryggvi Felixson skrifaði
    Gott lýðræði byggir á skipulagi! Góð og gagnleg greining Dags á vanda Alþingis..
    9
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Fær Heimildin eitthvað fyrir að flagga þesum svika pésa?
    -21
  • Óskar Þór Árnason skrifaði
    Góð grein,en ekki órökstutt blaður eins og á " sumum bæjum"
    15
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár