Forseti virkjar 71. greinina

Forseti Alþingis hefur ákveðið að virkja 71. grein þing­skap­ar­laga.

Þórunn Sveinjarnardóttir tilkynnti að 71 grein yrði virkjuð.
Þórunn Sveinjarn­ar­dóttir til­kynnti að 71 grein yrði virkjuð.

Forseti Alþingis, Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, til­kynnti í upp­hafi þing­fundar klukkan tíu, að virkja 71. Grein þing­skap­ar­laga. Það þýðir að ræðu­tími þing­manna verður styttur og gengið til atkvæða­greiðslu. Á þetta við um aðra umræðu um lög um veiði­gjöld.

Þórunn hélt ræðu vegna máls­ins og benti á að umræðan hófst 14 júní síð­ast­liðnum og að fluttar hefðu verið um 2500 ræður um málið. Þá var á það bent að ítrekað hafði verið reynt að ná sam­komu­lagi á milli flokka um málið.

Kristrún Frosta­dóttir tók því næst til máls og sagð­ist virða ákvörðun for­seta og að Alþingi verði að leiða mál til lykta með lýð­ræð­is­legri nið­ur­stöðu. 

Umræða um atkvæða­greiðsl­una stendur nú yfir og er hápunktur atburð­ar­rásar sem hófst í gær þegar Kristrún Frosta­dóttir ávarp­aði þingið sér­stak­lega og hleypti illu blóði í þing­heim. 

Guðrún Haf­steins­dóttirFormaður Sjálf­stæð­is­flokks­ins var ómyrkur í máli.

Guðrún Haf­steins­dóttir, for­maður …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Loksins, en hvað með framsalsheimildir útgerðarinnar
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár