„Óligarkinn okkar“ leystur undan skyldum sem ræðismaður Íslands

Aleksander Mos­hen­sky, hví­trúss­neski auð­jöf­ur­inn sem íslensk stjórn­völd beittu sér fyrir að yrði und­an­skil­inn við­skipta­þving­unum ESB og flutti íslenskan mak­ríl til Rúss­lands þrátt fyrir við­skipta­bann, hefur lokið 18 ára setu sinni sem ræð­is­maður Íslands í Belarús.

„Óligarkinn okkar“ leystur undan skyldum sem ræðismaður Íslands
Aleksander Mos­hen­sky Fisk­inn­flytj­andi og náinn banda­maður Lukashenko er ekki lengur ræð­is­maður Íslands.

Aleksander Mos­hen­sky hefur verið leystur undan störfum sem ræð­is­maður Íslands í Belarús.

Mos­hen­sky hefur verið sagður einn nán­asti banda­maður Aleksand­ers Lukashenko, for­seta Belarús frá árinu 1994, og í hópi manna sem upp­nefndir eru „veski Lukashenko“. Mos­hen­sky var umboðs­maður for­seta­fram­boðs Lukashenko árið 2010 og beitti sér til að tryggja áfram­hald­andi völd manns­ins sem hefur sjálfur kallað sig „síð­asta ein­ræð­is­herra Evrópu“.

RÚV greindi frá því í morgun að utan­rík­is­ráðu­neytið hafi leyst ell­efu ræð­is­menn Íslands undan skyldum sínum í vor, þar á meðal Mos­hen­sky. Ekki hefur verið skip­aður nýr ræð­is­maður í hans stað.

Stundin, fyr­ir­renn­ari Heim­ild­ar­innar, greindi frá því árið 2022 að íslensk stjórn­völd hefðu beitt sér fyrir því að taka nafn Mos­hen­sky af lista þeirra Hvít-Rússa sem Evr­ópu­sam­bandið hugð­ist beita við­skipta­þving­unum. Full­trú­ar ut­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins hringdu hátt í þrjá­tíu sím­töl í ESB fyrir hönd Mos­hen­sky.

„Ísland fjar­lægði hann af list­anum“

„Það hefur ekki verið neitt leynd­ar­mál í sam­skiptum okkar við ESB að það hafi verið við­skipta­hags­munir Mos­hen­sky á Íslandi sem gerðu gæfumun­inn fyrir hann,“ sagði Natalia Kaliada, einn þekkt­asti stjórn­ar­and­stæð­ing­ur­inn í Belarús. „Okkur var sagt hreint út oftar en einu sinni: „Ísland fjar­lægði hann af list­anum“.“

Flutti makríl til Rússlands þrátt fyrir viðskiptabann

Mos­hen­sky hefur átt við­skipti við íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki frá alda­mótum og var skip­aður kjör­ræð­is­maður Íslands í Belarús árið 2006.

Eftir inn­rás Rúss­lands í Úkraínu og inn­limun Krím­skaga árið 2014 mættu Rússar við­skipta­þving­unum frá ESB sem Íslend­ingar skrif­uðu undir. Rússar settu á móti við­skipta­bann á íslenskan fisk árið 2015. Fyr­ir­tæki Mos­hen­sky hófu þá inn­flutn­ing á íslenskum mak­ríl í millj­arða­vís, sem síðan var umpakkað og hann sendur til Rúss­lands og sagður hvít-rúss­nesk fram­leiðsla. Fyrir daga við­skipta­banns­ins, hafði Mos­hen­sky lítið sem ekk­ert keypt af mak­ríl frá Íslandi. Gott sam­band hans við yf­ir­völd í Belarús bjó þannig til hjá­leið með ís­lensk­an mak­ríl til Rúss­lands.

Þá flutti hann tugi millj­arða króna til dul­ar­fulls af­l­ands­fé­lags á Seychell­es-eyj­um með að­stoð fé­lags sem stýrt er úr heima­húsi í Reykja­vík, ávinn­ing af fisk­við­skipt­um og lán­veit­ing­um til fyr­ir­tækja hans í Aust­ur-Evr­ópu, sem allt benti til að hafi verið til að koma hagn­aði und­an skött­um.

Pólsk stjórn­völd beittu Mos­hen­sky nýverið refsi­að­gerðum en hann hefur ferð­ast á milli Minsk og Varsjár og stundað við­skipti. Mos­hen­sky gat náð sér í dval­ar­leyfi í Póllandi eftir að eig­in­kona hans og dóttir komust yfir kýp­versk vega­bréf. Þau veittu rétt til búsetu og ferða­frelsis innan ríkja ESB. Sem maki hand­hafa þess háttar vega­bréfs gat Mos­hen­sky fengið sama rétt. Þannig gat hann auð­veld­lega ekið dag­lega til Brest í Belarús, fáeinna klukku­tíma leið, er í Brest eru höf­uð­stöðvar fyr­ir­tækja­veldis hans.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁJ
    Ástþór Jóhannsson skrifaði
    Ætli hann hafi fengið símtöl frá íslenskum kvótaleiguhöfum, um "hvernig hann hefði það"
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ólígarkinn okkar

Pólverjar æfir vegna ólígarkans okkar
FréttirÓlígarkinn okkar

Pól­verjar æfir vegna ólíg­ar­kans okkar

Áhrifa­miklir pólskir stjórn­mála­menn brugð­ust í vik­unni harka­lega við fréttum af því að ólíg­arki frá Belarús, sem ítrekað hefur verið reynt að beita við­skipta­þving­unum, vegna tengsla hans við ein­ræð­is­stjórn­ina í Minsk, hefði komið sér fyrir í Varsjá. Um er að ræða íslenska kjör­ræð­is­mann­inn í Belarús, sem fer allra sinna ferða í skjóli verndar sem sendi­full­trúi Belarús. Óásætt­an­legt er að hann sé full­trúi Íslands, segir sér­fræð­ingur.
Úkraínskt orkufyrirtæki flutt af nafni ólígarka í skúffufélag í Smáíbúðahverfinu
AfhjúpunÓlígarkinn okkar

Úkra­ínskt orku­fyr­ir­tæki flutt af nafni ólíg­arka í skúffu­fé­lag í Smá­í­búða­hverf­inu

Íslenskur banka­maður, Karl Kon­ráðs­son, er sagður hafa keypt helm­ings­hlut í úkra­ínsku orku­fyr­ir­tæki nýverið af Aleksander Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­manni Íslands og ólíg­arka í Belarús. Áður hafði Karl eign­ast breskt félag Mos­hen­skys fyrir slikk. Þá og nú átti Mos­hen­sky á hættu að sæta við­skipta­þving­unum, vegna tengsla sinna við stjórn­völd í Belarús.
Tugir milljarða í skattaskjól í gegnum Smáíbúðahverfið
RannsóknÓlígarkinn okkar

Tugir millj­arða í skatta­skjól í gegnum Smá­í­búða­hverfið

Kjör­ræð­is­maður Íslands í Belarús hefur á und­an­förnum árum flutt tugi millj­arða króna til dul­ar­fulls aflands­fé­lags á Seychelles-eyjum með aðstoð félags sem stýrt er úr heima­húsi Reykja­vík. Um er að ræða ávinn­ing af fisk­við­skiptum og sér­kenni­legum lán­veit­ingum til fyr­ir­tækja kjör­ræð­is­manns­ins í Austur-Evrópu, sem allt bendir til að séu gerð til að koma hagn­aði undan sköttum.
Gagnrýndi stjórnvöld fyrir hræsni í málefnum Belarús
FréttirÓlígarkinn okkar

Gagn­rýndi stjórn­völd fyrir hræsni í mál­efnum Belarús

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­kona Pírata sak­aði íslensk stjórn­völd og utan­rík­is­ráð­herra um hræsni, í umræðum um bar­áttu lýð­ræð­is­sinna í Belarús á Evr­ópu­ráðs­þing­inu í gær. Íslensk stjórn­völd gætu ekki látið sér nægja að sitja fyrir á myndum og segj­ast styðja stjórn­and­stöðu lands­ins, á sama tíma og þeir hefðu náinn sam­verka­mann ein­ræð­is­stjórn­ar­innar í emb­ætti kjör­ræð­is­manns.
Ólígarkinn okkar fastagestur í einkaþotum einræðisherrans
AfhjúpunÓlígarkinn okkar

Ólíg­ar­k­inn okkar fasta­gestur í einka­þotum ein­ræð­is­herr­ans

Alex­ander Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­maður Íslands í Hvíta-Rúss­landi, hefur flogið hátt í þrjá­tíu sinnum með einka­þotum ein­ræð­is­stjórnar Lukashenko á síð­ast­liðnum ára­tug, sam­kvæmt gögnum sem lekið var nýlega. Eingöngu fjöl­skylda og nán­ustu banda­menn Aleksand­ers Lukashenko nota þot­urnar. Bæði þot­urnar og flestir far­þega hennar hafa verið sett í ferða­bann um Evrópu og Norður-Ameríku.
Úkraína frysti eignir Moshensky-fjölskyldunnar
FréttirÓlígarkinn okkar

Úkraína frysti eignir Mos­hen­sky-fjöl­skyld­unnar

Úkraínsk yfir­völd eru sögð hafa kyrr­sett eigur og fryst banka­reikn­inga fyr­ir­tæk­is­ins Santa Kholod í Kænu­garði. Yfirvöld þar telja hví­trúss­nesk fyr­ir­tæki fjár­magna inn­rás Rússa með óbeinum hætti, vegna stuðn­ings ein­ræð­is­stjórnar Lukashenko. Santa Kholod er hluti af fyr­ir­tækja­keðju Aleksand­ers Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­manns Íslands, fisk­inn­flytj­anda og ólíg­arka í Hvíta-Rúss­landi. Sagður hafa skráð fyr­ir­tæki á dóttur sína til að verj­ast þving­unum ESB.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár