Úkraínskt orkufyrirtæki flutt af nafni ólígarka í skúffufélag í Smáíbúðahverfinu

Íslenskur banka­maður, Karl Kon­ráðs­son, er sagður hafa keypt helm­ings­hlut í úkra­ínsku orku­fyr­ir­tæki nýverið af Aleksander Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­manni Íslands og ólíg­arka í Belarús. Áður hafði Karl eign­ast breskt félag Mos­hen­skys fyrir slikk. Þá og nú átti Mos­hen­sky á hættu að sæta við­skipta­þving­unum, vegna tengsla sinna við stjórn­völd í Belarús.

Fyrst banki og nú orkuveita
Fyrst banki og nú orku­veita Karl Kon­ráðs­son fyrr­ver­andi banka­maður hjá MP banka hefur nú í tvígang eign­ast verð­mæt fyr­ir­tæki sem áður til­heyrðu íslenska kjör­ræð­is­mann­inum í Belarús. Eig­enda­skiptin hafa í bæði skiptin orðið í tengslum við það þegar yfir­völd erlendra ríkja hugð­ust refsa Aleksander Mos­hen­sky fyrir sam­band hans og stuðn­ing við ein­ræð­is­herr­ann í Belarús. Margt bendir til þess að um mála­mynda­gjörn­inga sé að ræða. Mynd: Heimildin Tómas

Íslenskur banka­maður, sem allt bendir til að hafi tekið að sér að leppa eign­ar­hald á fjár­fest­inga­fé­lagi fyrir kjör­ræð­is­mann Íslands í Belarús, var nýlega skráður eig­andi að helm­ings­hlut í úkra­ínsku orku­fyr­ir­tæki, sem áður var skráð á auð­jöf­ur­inn Mos­hen­sky. Yfir­vof­andi refsi­að­gerðir yfir­valda og alþjóða­stofn­ana vofðu yfir kjör­ræð­is­mann­inum í aðdrag­anda þess að eign­ar­haldið var flutt til Íslands, fyrir mála­mynda­verð.

Samkvæmt upp­lýs­ingum úr fyr­ir­tækja­skrá í Úkraínu er Íslend­ing­ur­inn Karl Kon­ráðs­son nú skráður eig­andi helm­ings­hlutar í orku­fyr­ir­tæk­inu Ekotechnik Velyka Dobron (EVD), sem fram­leiðir og selur raf­magn sem aflað er í gegnum tvö stór sól­ar­orku­ver fyr­ir­tæk­is­ins í Vestur-Úkraínu á sam­tals 50 hekt­ara land­svæði.

Í sigti refsiaðgerða

EVD, sem stofnað var árið 2012, býr yfir getu til að fram­leiða allt að 30 megawött af raf­magni og er í hópi 20 stærstu sól­ar­orku­fram­leið­enda lands­ins. Margir tugir slíkra fyr­ir­tækja hófu starf­semi á síð­ast­liðnum ára­tug, eftir að þar­lend stjórn­völd gerðu end­ur­nýj­an­lega orku­fram­leiðslu að for­gangs­máli. Hluti af því voru lof­orð úkra­ínska rík­is­ins um íviln­anir til fjár­fest­inga í geir­anum auk þess að skuld­binda sig til að kaupa alla orku sem fram­leidd yrði.

EVD átti sam­kvæmt upp­gjöri árs­ins 2021 eignir sem metnar voru á ríf­lega 2,2 millj­arða íslenskra króna. Það sama ár var hagn­aður af rekstri þess ríf­lega jafn­virði 300 millj­óna króna. Ekki fylgdi sög­unni af þessum eig­enda­skiptum hve verð­mæti við­skipt­anna var, eða á hvaða for­sendum þau fóru fram.

Í fréttum fjöl­miðla í Belarús og Úkraínu er sterk­lega gefið í skyn að þetta nýjasta strand­högg Íslend­inga í alþjóða­við­skiptum sé gert í þeim til­gangi að forða eigna­hlutnum frá við­skipta­þving­unum sem vofðu að sögn yfir fyrri eig­anda fyr­ir­tæk­is­ins. Sá er ólíg­ar­k­inn Aleksander Mos­hen­sky frá Belarús, og kjör­ræð­is­maður Íslands í land­inu.

Mos­hen­sky hafði áður fært eign­ar­hald þessa félags á nafn dóttur sinnar á þrí­tugs­aldri, sem að sögn stundar nám í Bret­landi. Það gerði hann árið 2020 þegar ESB virt­ist ætla að leggja við­skipta­bann á Mos­hen­sky og fyr­ir­tæki hans vegna tengsla hans við ein­ræð­is­herr­ann í Belarús. Nokkuð sem Mos­hen­sky tókst að afstýra, ekki síst fyrir orð og þrýst­ing íslenskra stjórn­valda, að því er Heim­ildin hefur áður greint frá.

Þessi eigna­til­færsla innan fjöl­skyldu Mos­hen­skys virt­ist ekki duga eftir inn­rás­ina í Úkraínu. Í maí í fyrra lögðu þar­lend yfir­völd hald á og frystu eignir félags hans, Santa Kholod, en það flytur inn, selur og dreifir sjáv­ar­af­urðum í Úkraínu. Kyrr­setn­ingin var, sam­kvæmt fréttum, fram­kvæmd á grund­velli ákvæðis úkra­ínskra hegn­ing­ar­laga um bann við mis­notkun stjórn­enda einka­fyr­ir­tækis á eignum þess, þá helst með vísan til fjár­mögn­unar aðgerða þar sem beita á valdi til að breyta stjórn­skipan, taka völd í land­inu, breyta landa­mærum. Það er að segja: fjár­magna land­ráð.

Í umfjöllun fjöl­miðla var vakin athygli á því að þetta ákvæði hafi verið notað í sams konar málum gegn öðrum fyr­ir­tækjum tengdum Belarús frá því að inn­rás Rússa í Úkraínu hófst. Samkvæmt skil­grein­ingu Sam­ein­uðu þjóð­anna eru yfir­völd í Belarús þátt­tak­endur í hinni ólög­mætu inn­rás. 

Ekki löngu eftir þessar aðgerðir flutt­ist eign­ar­hald úkra­ínska orku­fyr­ir­tæk­is­ins frá Mos­hen­sky til Karls Kon­ráðs­sonar, í gegnum félagið, Max Credit Invest­ments ltd (MCI). Félagið MCI er skráð í London en því stýrir Karl að sögn frá heim­ili sínu í Smá­í­búða­hverf­inu í Reykja­vík. 

MCI eign­að­ist Karl raunar á svip­aðan hátt og orku­fyr­ir­tækið nú, þegar hann tók yfir hlut Mos­hen­skys í því í árs­byrjun árið 2020. Það gerði Karl í gegnum íslenska félagið Slark ehf., sem síðan stofn­aði félagið Slark invest í London, sem Karl nýtti svo til að kaupa MCI. Fyrir MCI greiddi Karl and­virði 140 þús­und íslenskra króna. Kaupverð sem vart getur talist annað en reyfara­kaup þegar litið er til verð­mæt­anna sem fylgdu með í kaup­unum.

MCI átti enda rúm­lega hálfs millj­arðs króna eignir umfram skuldir og var umfangs­mik­ill lán­veit­andi sem veltir millj­örðum króna ár hvert. Karl Kon­ráðs­son hafði áður verið skráður stjórn­andi MCI, svo að segja frá því það var stofnað af fyrrum vinnu­veit­endum hans, MP-banka árið 2008, af úti­búi íslensku lög­manns­stof­unnar Logos í Lundúnum. Þrátt fyrir þessa Íslands­teng­ingu hefur félagið aldrei svo vitað sé átt í neinum við­skiptum hér á landi eða haft hingað teng­ingar. 

Ekki aðrar en þær að vera eins konar fjár­mögn­un­ar­mið­stöð fyr­ir­tækja­sam­steypu, kjör­ræð­is­manns Íslands í Belarús. Aleksander Mos­hen­sky hefur fjár­magnað starf­semi fyr­ir­tækja sinna í Rúss­landi, Úkraínu og Litáen, með lán­veit­ingum frá MCI, sem aftur hefur verið fjár­magnað með lánum frá aflands­fé­lag­inu Alpha Mar Foundation á Seychelles-eyjum. Í stað­inn hafa vaxta­greiðslur af sömu lánum runnið úr starf­semi fyr­ir­tækj­anna í Austur-Evrópu, óskatt­lagðar, til MCI og þaðan til Seychelles-eyja, þar sem hagn­að­ur­inn safn­ast upp sára­lítið eða ekk­ert skatt­lagður.

Lengi vel var á huldu hver ætti félagið á Seychelles-eyjum, sem á end­anum hagn­ast á allri þess­ari hringekju. Auk þess að vera alræmt skatta­skjól eru Seychelles-eyjar líka vin­sæl stað­setn­ing fyrir þá sem vilja af ein­hverjum sökum leyna raun­veru­legu eign­ar­haldi. Mos­hen­sky vildi ekki svara því þegar Heim­ildin innti hann svara við því fyrir ári hvort hann ætti félagið. En jafn­vel þótt Karl Kon­ráðs­son hafi stað­fest að Mos­hen­sky ætti félagið neit­aði hann að gefa upp til hverra hann vís­aði þegar hann tal­aði um eig­endur félags­ins í fleir­tölu.

Svarið fannst á Kýpur

Aukin áhersla ESB-ríkja á aukið gagn­sæi vegna fyr­ir­tækja sem stund­uðu við­skipti í Rúss­landi eða Belarús, virð­ist svo hafa orðið til þess að yfir­völd á Kýpur kröfðu Mos­hen­sky um að gefa upp hver væri svo­kall­aður „raun­veru­legur eig­andi“ kýp­versk dótt­ur­fé­lags fyr­ir­tæk­is­ins á Seychelles-eyjum, í lok síð­asta árs. Sá var Aleksander Mos­hen­sky sjálfur.

Þannig varð end­an­lega ljóst að þessi um margt flókna hringekja, sem teygði sig milli landa og heims­álfa, var í raun lítið annað en við­skipti eins og sama manns­ins við sjálfan sig til þess eins gerð að færa hagnað úr fyr­ir­tækjum í Litáen, Úkraínu. Rúss­landi og Belarús, undan sköttum og í skatt­frelsið á Seychelles-eyjum. 

Samkvæmt nýjasta árs­reikn­ingi MCI sem skilað var nú í byrjun ágúst, hefur félagið flutt pen­inga áfram til Seychelles-eyja sem aldrei fyrr síðan eign­ar­hald MCI færð­ist til Íslands. Á ríf­lega einu og hálfu ári, frá miðju ári 2020 til árs­loka 2022, fóru 13 millj­arðar króna með þessum hætti í gegnum MCI, frá fyr­ir­tækjum Mos­hen­skys til félags hans á Seychelles-eyjum.

Því til við­bótar hefur svo MCI nú eign­ast orku­fyr­ir­tækið EVD í Úkraínu.

Neitar að tjá sig

Þegar Heim­ildin fjall­aði fyrst um hin sér­kenni­legu fyr­ir­tækjaum­svif Karls Kon­ráðs­sonar fyrir ári síðan, hafn­aði hann því alfarið að um væri að ræða ein­hvers konar mála­mynda­gjörn­ing, í því skyni að bregð­ast við yfir­vof­andi hættu á við­skipta­þving­unum eða afskiptum skatta­yf­ir­valda í Úkraínu af félag­inu MCI. Hann hefði ein­ungis séð tæki­færi í við­skipt­unum sem hann ætl­aði að sinna heiman frá sér. 

Spurður um nýj­ustu við­skipti sín, í úkra­ínska orku­fyr­ir­tæk­inu, vildi Karl engu svara þegar Heim­ildin innti hann svara við því, nú fyrir helgi.

„Ég hef ekk­ert við ykkur að segja,“ sagði Karl þegar Heim­ildin náði af honum tali og innti hann upp­lýs­inga um nýfrá­gengin fyr­ir­tækja­kaup sín í Úkraínu. Hann vildi engum spurn­ingum svara um við­skipti sín eða fyr­ir­tæk­is­ins MCI.

„Ég hef ekk­ert við ykkur að segja“
Karl Kon­ráðs­son,
skráður eig­andi orku­fyr­ir­tækis í Úkraínu

Spurður hvort skatta­yf­ir­völd hefðu sett sig í sam­band við hann vegna mál­efna félags­ins, stað­festi Karl að svo hefði verið, en sagði aðspurður „bara allt í góðu“ og neit­aði því að nokkur rann­sókn væri í gangi. Eins og áður hefur verið greint frá halda úkra­ínsk skatta­yf­ir­völd því fram að eitt úkra­ínskra félaga Mos­hen­skys, hafi komið hagn­aði undan sköttum þar í landi, með lán­tökum hjá MCI, sem þrátt fyrir að annað hefði verið gefið í skyn, væri í raun nátengt félag því úkra­ínska.   

Að sama skapi kom fram í umfjöllun litáíska rík­is­sjón­varps­ins á dög­unum að margt þætti grun­sam­legt við lán­veit­ingar MCI til litá­ensks félags Mos­hen­sky, af sömu ástæðu. Samkvæmt lýs­ingum yfir­manns skatt­rann­sókna hjá litáíska skatt­inum var sú upp­setn­ing sem þar hafði verið komið upp, lík­leg til að sæta afskiptum yfir­valda. Ekki liggur fyrir hvort það hafi gerst í fram­haldi af umfjöllun Heim­ild­ar­innar, LRT og BIC um málið.

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÞTÞ
    Þóroddur Tryggvi Þórhallsson skrifaði
    Þetta þarf eingum að koma á óvart. Það vita þeir sem vilja vita að Úkraína er gjörspilt land, alveg á pari við Ísland. Enda undi Hunter Biden hag sínum vel þar.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ólígarkinn okkar

FréttirÓlígarkinn okkar

Pól­verjar æfir vegna ólíg­ar­kans okkar

Áhrifa­miklir pólskir stjórn­mála­menn brugð­ust í vik­unni harka­lega við fréttum af því að ólíg­arki frá Belarús, sem ítrekað hefur verið reynt að beita við­skipta­þving­unum, vegna tengsla hans við ein­ræð­is­stjórn­ina í Minsk, hefði komið sér fyrir í Varsjá. Um er að ræða íslenska kjör­ræð­is­mann­inn í Belarús, sem fer allra sinna ferða í skjóli verndar sem sendi­full­trúi Belarús. Óásætt­an­legt er að hann sé full­trúi Íslands, segir sér­fræð­ingur.

9 mín. lestur

RannsóknÓlígarkinn okkar

Tugir millj­arða í skatta­skjól í gegnum Smá­í­búða­hverfið

Kjör­ræð­is­maður Íslands í Belarús hefur á und­an­förnum árum flutt tugi millj­arða króna til dul­ar­fulls aflands­fé­lags á Seychelles-eyjum með aðstoð félags sem stýrt er úr heima­húsi Reykja­vík. Um er að ræða ávinn­ing af fisk­við­skiptum og sér­kenni­legum lán­veit­ingum til fyr­ir­tækja kjör­ræð­is­manns­ins í Austur-Evrópu, sem allt bendir til að séu gerð til að koma hagn­aði undan sköttum.

9 mín. lestur

FréttirÓlígarkinn okkar

Gagn­rýndi stjórn­völd fyrir hræsni í mál­efnum Belarús

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­kona Pírata sak­aði íslensk stjórn­völd og utan­rík­is­ráð­herra um hræsni, í umræðum um bar­áttu lýð­ræð­is­sinna í Belarús á Evr­ópu­ráðs­þing­inu í gær. Íslensk stjórn­völd gætu ekki látið sér nægja að sitja fyrir á myndum og segj­ast styðja stjórn­and­stöðu lands­ins, á sama tíma og þeir hefðu náinn sam­verka­mann ein­ræð­is­stjórn­ar­innar í emb­ætti kjör­ræð­is­manns.
AfhjúpunÓlígarkinn okkar

Ólíg­ar­k­inn okkar fasta­gestur í einka­þotum ein­ræð­is­herr­ans

Alex­ander Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­maður Íslands í Hvíta-Rúss­landi, hefur flogið hátt í þrjá­tíu sinnum með einka­þotum ein­ræð­is­stjórnar Lukashenko á síð­ast­liðnum ára­tug, sam­kvæmt gögnum sem lekið var nýlega. Eingöngu fjöl­skylda og nán­ustu banda­menn Aleksand­ers Lukashenko nota þot­urnar. Bæði þot­urnar og flestir far­þega hennar hafa verið sett í ferða­bann um Evrópu og Norður-Ameríku.
FréttirÓlígarkinn okkar

Úkraína frysti eignir Mos­hen­sky-fjöl­skyld­unnar

Úkraínsk yfir­völd eru sögð hafa kyrr­sett eigur og fryst banka­reikn­inga fyr­ir­tæk­is­ins Santa Kholod í Kænu­garði. Yfirvöld þar telja hví­trúss­nesk fyr­ir­tæki fjár­magna inn­rás Rússa með óbeinum hætti, vegna stuðn­ings ein­ræð­is­stjórnar Lukashenko. Santa Kholod er hluti af fyr­ir­tækja­keðju Aleksand­ers Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­manns Íslands, fisk­inn­flytj­anda og ólíg­arka í Hvíta-Rúss­landi. Sagður hafa skráð fyr­ir­tæki á dóttur sína til að verj­ast þving­unum ESB.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár