SFS vonar að Alþingi sjái sársaukann sem frumvarpinu fylgi

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi gagn­rýnir rík­is­stjórn­ina fyrir frum­varp um veiði­gjöld og segir það muni valda fyr­ir­tækjum í sjáv­ar­út­vegi miklum sárs­auka.

SFS vonar að Alþingi sjái sársaukann sem frumvarpinu fylgi
Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir Fram­kvæmda­stjóri SFS gagn­rýnir Alþingi og ótt­ast afleið­ingar af frum­varpi um veiði­gjöld.

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi sendu frá sér harð­orða yfir­lýs­ingu eftir að meiri­hluti Alþingis sam­þykkti að virkja 71. Grein þing­skap­ar­laga sem tak­markar ræðu­tíma þing­manna. Það er gert eftir að Íslands­met í mál­þófi var slegið fyrr í vik­unni. 

Í yfir­lýs­ingu SFS sem for­maður og fram­kvæmda­stjóri sam­tak­anna eru skrifuð fyrir, þau Gunnþór Ingv­ars­son og Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, segir að fjöldi fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi standi frammi fyrir erf­iðum ákvörð­unum á næstu miss­erum verði frum­varpið sam­þykkt. 

Rík­is­stjórnin til­kynnti í maí að með þeim breyt­ingum sem frum­varpið gerir ráð fyrir má áætla að álagt veiði­gjald verði um 19,5 millj­arðar árið 2026 en að teknu til­liti til frí­tekju­marks má áætla að inn­heimt veiði­gjöld verði 17,3 millj­arðar árið 2026. Án þeirrar leið­rétt­ingar væri áætlað álagt veiði­gjald um 11,2 millj­arðar króna á grund­velli núgild­andi laga. Frum­varpið gerir ráð fyrir að 30 stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin greiði 90% af veiði­gjöldum að loknum breyt­ingum. 

Kjósa
-4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Flosi Guðmundsson skrifaði
    Það sjá og heyra allir sársaukann. Samúðin er hinsvegar lítil. Sjálfum finnst mér vællinn í SFS bara hlægilegur.
    0
  • Sveinn Ingólfsson skrifaði
    Mikið kenni ég í brjóstum sægreifana. Ég skil vel að þeir gráti. Nú geta þeir síður keypt upp fyrirtækin í landinu. Kannski þarf Samherji að selja hlut sinn í Eimskip og svo framvegis. Ég á samt von á því að sægreifarnir fari létt með að halda áfram að kaupa upp fyrirtæki því þessi veiðigjöld eru aðeins örlitill hluti af hagnaði þeirra. Að mínu áliti eru veiðigjöldin enn alltof lág. Afstaða stjórnarandstöðunnar mun aðeins minnka fylgi þeirra. T.d. er Framsókn í hættu að fara niður fyrir 5 % og detta út af þingi. Það kemur í ljós í næstu kosningum. Ég veit að margir framsóknarmenn eru óánægðir með framgöngu Sigurðar Inga. Ég væri ekki hissa þó skipt yrði um formann fljótlega. Hans framferði í þessu máli er furðuleg. Ég býst við að hann haldi að hann vinni atkvæði í sjárvarþorpum sem kvótakerfið hefur nú þegar farið mjög illa með. Það er tálsýn.
    Fólkið þar áttar sig á staðreyndum og veit að kvótakerfið og sægreifarnir hafa tekið frá því möguleikann á að veiða fisk og þar með lifa blómlegu atvinnulífi í sinni heimasveit.
    Mér finnst einnig ósanngjarn og furðulegt að hægt sé að leiga afnot af eign sem þjóðin á en ekki sá sem hirðir einn milljarð á ári í leigu í eigin vasa en ekki þjóðin sem á þó eignina samkvæmt lögum. Ég skora á stjórnvöld að gera eitthvað í málinu svo réttur eigandi fái leiguna.
    Samkvæmt lögum á þjóðinn fiskinn í sjónum og á því að fá leiguna.
    Sá sem á eign á að fá afraskur eignarinnar ekki einhver annar.
    7
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Kontóristinn verður örugglega lækkaður í launum út af veiðigjöldunum.
    2
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Það eina rétta til að allir geti veirð sáttir er að kvótinn verði tímabundinn og fari á markað. Útgerðirnar geta þá boðið það verð sem þær telja eðlilegt að borga, og málið leyst.
    8
  • ÁJ
    Ástþór Jóhannsson skrifaði
    Æ það er strax byrjað að hóta "heimilisofbeldi af því þú gerðir þetta." Þessi þarna á SFS kontórnum hótar að við fáum ekki mikið lengur að sjá nyveiddan fisk hér á landi, því nú verði aflinn fluttur óunninn til útlanda...Já einmitt Alþingi er svo óþægt og vont. Ríkisstjórnin gerir ekkert sem hann Vilhjálmur segir.
    9
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár