Samþykkt að slökkva á málþófi með 71. grein þingskaparlaga

Þung orð féllu í dramat­ískri atkvæða­greiðslu á Alþingi þar sem sam­þykkt var að beita 71. grein þing­skap­ar­laga.

Samþykkt að slökkva á málþófi með 71. grein þingskaparlaga
Kristrún Frosta­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra.

Rík­is­stjórnin sam­þykkti til­lögu Þórunnar Svein­bjarn­ar­dóttur, for­seta Alþingis sem lagði til 71. grein þing­skap­ar­laga og er því gengið til atkvæða­greiðslu um umdeilt frum­varp um breyt­ingar á veiði­gjöldum. Um er að ræða sögu­lega stund en 71. Greinin hefur örsjaldan verið beitt frá stofnun lýð­ræð­is­ins og þýðir í reynd að ræðu­tími þing­manna er tak­mark­aður. Greidd voru 34 atkvæði með til­lög­unni, 20 gegn henni.

Þung orð voru látin falla í atkvæða­greiðsl­unni sem var fram­kvæmd með nafna­kalli af hálfu minni­hlut­ans en á heild­ina litið var sú gagn­rýni algeng­ust að minni­hlut­inn liti svo á að meiri­hlut­inn væri ófær um að koma á samn­ingum. 

Þessu var svarað af hörku af hálfu Hönnu Katrínar Frið­riks­sonar, atvinnu­vega­ráð­herra, sem sagði það lýsa samn­ings­vilja minni­hlut­ans, að þeir ætl­uð­ust til þess að meiri­hlut­inn tæki upp frum­varp minni­hlut­ans sem aftengdi grund­vall­ar­breyt­ingar í frum­varpi meiri­hlut­ans. Kristrún Frosta­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, sagði að það hefði verið eitt­hvað sem fyrri rík­is­stjórn hefði sjálf aldrei sætt sig …

Kjósa
34
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Anna Bjarnadóttir skrifaði
    Minnihlutinn hefur ekki neitunarvald á Alþingi Íslendinga. Stjórnarandstaðan hefur fengið rúman tíma til að ræða málið en þau hafa flutt 3.500 ræður í 160 klukkutíma. Einstaka ræðumenn hafa talað um 200 sinnum. Málþófið hefur teppt önnur mikilvæg mál að komast í gegnum þingið. Það var fyrir löngu mál að linnti.
    3
  • Rannveig Lind skrifaði
    Takk kærlega
    0
  • JL
    Jón Logi skrifaði
    Stjórnarandstaðan skorin niður úr snörunni.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár