Velkomin í beina textalýsingu Heimildarinnar.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flytur í kvöld stefnuræðu sína og í framhaldinu verða umræður um hana, þar sem fulltrúar allra flokka á þingi munu flytja ræður.
Þau taka til máls Ræðumenn kvöldsins. Níu konur og sjö karlar. Formenn allra flokka nema Framsóknarflokksins taka til máls. Varaformaður Framsóknar mælir fyrir flokkinn í fyrstu umferð.
MYND: ALÞINGI
Fjárlagafrumvarp næsta árs var kynnt í gær og verður fyrirferðarmikið í störfum þingsins fyrstu vikurnar.
SJÁ EINNIG
Þetta annað kjörtímabil ráðuneytis Katrínar Jakobsdóttur er nú hálfnað. Flokkur forsætisráðherra mælist nú með minnst fylgi allra flokka á Alþingi og sjaldan eða aldrei hefur verið eins grunnt á því góða á milli manna og kvenna innan ríkisstjórnarinnar.
SJÁ EINNIG
Stór mál frá liðnu vori og sumri, hafa hleypt upp á yfirborðið óánægju og hafa stjórnarliðar margir ekki sparað stóru orðin í gagnrýni á ráðherra og þingmenn. Einkum hefur þetta birst í gagnrýni Sjálfstæðismanna á Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra, vegna ákvörðunar hennar um að fresta hvalveiðum. En undir eru líka deilumál sem slegið hefur verið á frest að takast á um, þar til núna.
Bankasölur, virkjanir og vernd, skattamál að ógleymdum útlendingamálum og deilum um auknar valdheimildir lögreglu. Litlar sem engar líkur eru þó taldar á því að ríkisstjórnin springi eða að boðað verði fyrr til kosninga. Það virðist vera það eina sem þingheimur sammælist um þessa dagana, meira að segja þingmenn stjórnarflokkana þriggja.
SJÁ EINNIG
Það verður því forvitnilegt að heyra, sjá og spá í það sem fram kemur í ræðum kvöldsins. En ekki síður að spá í það sem ekki verður sagt.
Forseti Alþingis, Birgir Ármannsson, sem er hvorki þekktur fyrir skreytni né galgopahátt, sagði hreint út í fréttum Sjónvarps hér rétt áðan að það yrði „ábyggilega tekist hart á“.
Auk Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra, tekur Guðmundur Ingi Guðbrandsson til máls fyrir Vinstrihreyfinguna-grænt framboð.
Fyrir Samfylkinguna tala Kristrún Frostadóttir, formaður flokksins, og Jóhann Páll Jóhannsson.
Fjármála- og efnahagsráðherra, Bjarni Benediktsson, og Diljá Mist Einarsdóttir, taka til máls fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins, Lilja Alfreðsdóttir og Ásmundur Einar Daðason fyrir Framsóknarflokk, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir og Arndís Anna Kristíndardóttir Gunnarsdóttir fyrir Pírata, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir fyrir Viðreisn, Inga Sæland og Jakob Frímann Magnússon fyrir Flokk fólksins og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bergþór Ólason fyrir Miðflokkinn.
Væri hægt að stöva hana, vatnsöluna? Er þetta leyfilegt (salan) ?