„Lokaðist frammi á gangi“

Margrét Lilja Arn­heið­ar­dóttir, for­maður Sjálfs­bjargar, þekkir af eigin reynslu allar þær hindr­anir sem mæta nem­endum með fatl­anir við Háskóla Íslands. Henni var sagt að hún gæti ekki klárað námið vegna þess að það væri ekki aðgengi fyrir fatl­aða að bygg­ingum og kennslu­stofum skól­ans.

„Lokaðist frammi á gangi“
Öráreiti Margrét Lilja segir að lítil mann­leg mis­tök, eins og of háir speglar og snagar, sem hjóla­stóla­not­endur ná ekki upp í, hrann­ast upp og valdi öráreiti. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Maður lok­að­ist frammi á gangi og komst ekki inn og var bara sagt að maður gæti ekki klárað námið því það væri ekki aðgengi,“ segir Margrét Lilja Arn­heið­ar­dóttir, for­maður Sjálfs­bjargar. Hún bendir á að á Íslandi séu hreyfi­haml­aðir háskóla­nemar hlut­falls­lega mun færri heldur en á hinum Norð­ur­lönd­unum, sem hún telur afleið­ingu slæms aðgengis að háskóla­bygg­ingum á land­inu. Þrátt fyrir að miklar breyt­ingar hafi átt sér stað á síð­ustu árum í aðgeng­is­málum við háskóla á Íslandi virð­ist það ekki enn hafa haft áhrif á fjölda hreyfi­haml­aðra sem sækja nám við háskóla á Íslandi.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá náms- og starfs­ráð­gjöf Háskóla Íslands voru aðeins sjö nem­endur í hjóla­stól við Háskóla Íslands á síð­asta starfs­ári. Tíu nem­endur voru lög­blindir, fimm sem tala tákn­mál og um 170 nem­endur með hreyfiskerð­ingu eða úthalds­leysi, til dæmis vegna langvar­andi veik­inda, lyfja­með­ferðar, verkja, gigtar, MS, MND og fleira. Lunginn af hópnum var með les­blindu, ADHD, á ein­hverfu­rófi eða …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Aðgengi að háskólanámi

Marga daga að jafna sig eftir mætingu í tíma
ViðtalAðgengi að háskólanámi

Marga daga að jafna sig eftir mæt­ingu í tíma

Hilmar Smári Finsen lenti í alvar­legu bílslysi árið 2016 og glímir við afleið­ing­arnar. Hann varð að hætta námi í við­skipta­fræði við Háskóla Íslands vegna þess að námið reynd­ist lík­am­lega of erfitt og lít­ill vilji var til að mæta honum. Hann skipti yfir í félags­fræði og lauk BA-prófi í miðjum heims­far­aldri, þegar boðið var upp á fjar­nám fyrir nem­endur skól­ans. Nú stundar hann meist­ara­nám í náms- og starfs­ráð­gjöf.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár