Marga daga að jafna sig eftir mætingu í tíma

Hilmar Smári Finsen lenti í alvar­legu bílslysi árið 2016 og glímir við afleið­ing­arnar. Hann varð að hætta námi í við­skipta­fræði við Háskóla Íslands vegna þess að námið reynd­ist lík­am­lega of erfitt og lít­ill vilji var til að mæta honum. Hann skipti yfir í félags­fræði og lauk BA-prófi í miðjum heims­far­aldri, þegar boðið var upp á fjar­nám fyrir nem­endur skól­ans. Nú stundar hann meist­ara­nám í náms- og starfs­ráð­gjöf.

Marga daga að jafna sig eftir mætingu í tíma
Sam­komu­tak­mark­anir björg­uðu nám­inu Hilmar Smári glímir við tak­mark­aða hreyfi­getu eftir alvar­legt bílslys. Honum reynd­ist því um megn að þurfa alltaf að mæta á stað­inn og sitja lengi við skrif­borð að reikna dæmi fyrir áfanga í við­skipta­fræði. Lítill vilji var til að mæta honum þar til heims­far­aldur skall á og Háskóli Íslands neydd­ist til að koma upp fjar­funda­bún­aði til að halda skóla­starf­inu gang­andi. Breyt­ing­arnar gerðu honum kleift að ljúka námi. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ef ég mæti í tíma þá er ég stundum daga að jafna mig, og er tími þess virði að vera daga að jafna sig? Nei, eig­in­lega ekki,“ segir Hilmar Smári Finsen, 30 ára meist­ara­nemi í náms- og starfs­ráð­gjöf við Háskóla Íslands. Hann segir að tækni­legar lausnir fyrir nám á tímum Covid hafi veru­lega bætt aðgengi að námi við skól­ann. Án þess­ara lausna hefði hann ekki getað klárað BA-námið og gæti ekki séð fyrir sér að klára meist­ara­námið.

Þann 3. mars 2016 lenti Hilmar í bílslysi. Eitt dekkið á bílnum hans sprakk á ferð sem leiddi til þess að hann missti stjórn á bílnum sem end­aði á steini. Í slys­inu þrí­brotn­aði hann á ökkla og brotn­aði einnig á tveimur stöðum á bak­inu. Slysið hafði þær afleið­ingar að hann lifir nú við allt að 70 pró­sent skerta hreyfi­getu. Hreyfi­hömlun hans gerir það að verkum að ein­föld verk­efni geta tekið marg­falt lengri …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Sjá meira

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Anna Bjarnadóttir skrifaði
    Nám í Háskóla Íslands ætti að gera eins aðgengilegt fyrir alla og hugsast getur með algildri hönnun, aðgengi fyrir alla og möguleikum að fjarnámi.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Aðgengi að háskólanámi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í vikunni