Ásmundur Einar ber af sér sakir - „Þess vegna steig ég út úr þessum átökum“

Ásmundur Einar Daðason hefur rofið þögn­ina eftir umfjöllun fjöl­miðla um ásak­anir sem settar eru fram á hendur honum í hlað­varp­inu Lömbin þagna ekki. Þar er hann meðal ann­ars sak­aður um inn­brot. Í yfir­lýs­ingu Ásmundar Einars segir hann þær fjöl­skyldu­deilur sem þarna er fjallað um séu honum óvið­kom­andi og vekur athygli á að hann hafi aldrei verið ákærður fyrir neitt í þessu sam­hengi.

Ásmundur Einar ber af sér sakir - „Þess vegna steig ég út úr þessum átökum“
Aldrei verið ákærður Ásmundur Einar Daðason seg­ist aldrei hafa verið ákærður fyrir neitt í þessu sam­hengi. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Þær sorg­legu fjöl­skyldu­deilur sem verið hafa í opin­berri umræðu á síð­ustu dögum vegna erfða­deilu innan systk­ina­hóps föður míns eftir frá­fall afa míns árið 2007 eru mér með öllu óvið­kom­andi og hafa verið um langt ára­bil,“ segir í yfir­lýs­ingu sem Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barna­mála­ráð­herra, hefur sent frá sér í kjöl­far fjöl­miðlaum­fjöll­unar um hlað­varpið Lömbin þagna ekki. Yfir­lýs­ingin er send frá net­fangi hans hjá ráðu­neyt­inu.

Að baki hlað­varp­inu eru þrjár systur, tengdar Ásmundi Einari, þar sem þær fjalla um deilur um jörð­ina Lambeyri í Dölum.

Sakaður um innbrot

Þær sendu til­kynn­ingu til fjöl­miðla þegar fyrstu þátt­ur­inn kom út á dög­unum. Í kynn­ingu á honum segir: „Rétt­læt­is­hlað­varpið "Lömbin þagna ekki" segir sann­leik­ann um ætt­ar­deilur Ásmundar Einars Daða­sonar, ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins. Í fyrsta þætti er fjallað um upp­haf átak­anna, þ.e. þegar afi Ásmundar fellur frá. Meðal ann­ars er farið yfir það þegar Ásmundur var stað­inn að verki við inn­brot, hvernig Daði Ein­ars­son (faðir ráð­herra) kom ætt­ar­jörð­inni í þrot, og því er lýst þegar Ásmundur hóf að sýsla með ann­arra manna fé án leyfis.“

Þá hafa bæði Mbl.is og Vísir.is birt fréttir um að þeir hafi ekki náð tali af Ásmundi Einari vegna máls­ins.

Vonar að þessu ljúki sem fyrst

Í yfir­lýs­ing­unni sem hann sendir frá sér nú seg­ist hann hafa í upp­hafi tekið afstöðu með föður sínum. „Engu að síður er langt síðan mér var það ljóst að nær­vera mín í þessum ágrein­ingi gerði hvorki mér, fjöl­skyldu minni, né öðrum nokk­urt gagn. Þess vegna steig ég út úr þessum átökum í eitt skipti fyrir öll fyrir mörgum árum síðan og mun ekki tjá mig um málið á öðrum vett­vangi en þeim sem þar til bærir opin­berir aðilar kunna mögu­lega að leita eftir. Ég á mér fyrst og fremst þá ein­lægu von að þessum fjöl­skyldu­harm­leik ljúki sem allra fyrst,“ segir hann.

Þá seg­ist Ásmundur Einar aldrei hafa „verið ákærður fyrir ólög­mætt athæfi vegna þess­ara deilna né heldur yfir­heyrður vegna ein­hverra máls­at­vika.“

„Enda þótt reynt sé að bendla mig við þetta mál, vænt­an­lega til þess að beina að því sterkara kast­ljósi en ella, mun ég ekki glæða þá elda sem nú er reynt að kveikja með útskýr­ingum né heldur með því að bera af mér end­ur­teknar rangar sak­ar­giftir,“ segir þar enn­fremur.

Var bóndi á Lambeyri

Eins og Stundin, annar for­veri Heim­ild­ar­innar, fjall­aði um árið 2017 um þá var Ásmundur Einar var bóndi á Lambeyri þar til árið 2009 þegar hann sett­ist á þing fyrir Vinstri græn en rekst­ur­inn á jörð­inni var skráður á föður hans, Daða Ein­ars­son. Jörðin sjálf var hins vegar í eigu félags­ins Lamb­eyrar ehf. sem er í eigu Daða og systk­ina hans allra, sem eru 8 tals­ins: Daða, Skúla, Jóhönnu, Jónínu, Ólafar, Valdísar  Svan­borgar og Valdi­mars.  Rekst­ur­inn var sem sagt í sér­stöku félagi sem Daði átti einn, Ásmundur Einar bjó svo á jörð­inni til árs­ins 2009, en systk­inin öll voru skráðir eig­endur jarð­ar­innar og leigðu hana til félags Daða í gegnum eign­ar­halds­fé­lag. 

Búið sem Daði rak á jörð­inni varð gjald­þrota og missti hann í kjöl­far­ið eign­ar­hlut sinn í jörð­inni yf­ir til systk­ina sinna sjö. Bróð­ir Daða hefur vænt feðg­ana um inn­brot í íbúð­ar­hús á Lambeyr­um, líkt og syst­urnar gera nú.

Hér má lesa nánar um málið:

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðrún Aðalsteinsdóttir skrifaði
    Það hefur nú komið fram að þar stendur hnífurinn í kúnni að,, lögreglan vann hugsanlega ekki sína vinnu hugsanlega ekki af heilindum vegna stéttar og stöðu Ásmundar Daða.
    3
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Yfirlýsing Ásmundar Daða er í véfréttastíl. Hann hafi að vísu tekið fullan þátt í aðgerðum með föður sínum, en hafi síðan hætt, þegar hann áttaði sig á, að hann kynni að vera þátttakandi í vafasömu athæfi. Aðalatriði sé, að hann hafi (enn þá?) ekki verið kærður til lögreglunnar eða dæmdur.
    4
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "Yfirlýsingin er sent frá netfangi hans hjá ráðuneytinu."
    - Skyldi hann misnota aðstöðu sína í ráðuneytinu til fleiri hluta?
    4
    • Haukur Haraldsson skrifaði
      Hvernig getur það verið misnota aðstöðu sína sð nota persónulegt netfang sitt?
      -1
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Svar ráðherrans er sannarlega athyglisvert !!!!!!!!!!

    Það að maðurinn hafi ekki verið yfirheyrður eða ákærður þýðir engan veginn að hann sé saklaus af því sem hann er sakaður um.
    10
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár