Ekki bara pest að kjósa Framsókn

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er óvænt orðin heitasta lumma íslenskra stjórn­mála. Ungt fólk, sér­stak­lega ungar konur, virð­ast lað­ast að flokknum. Spill­ing­ar­stimp­ill­inn sem loddi við hann eins og fluga við skít, virð­ist horf­inn. Hvað gerð­ist? Gengur vofa bæj­arra­dikal­anna ljósum logum í flokknum?

Ekki bara pest að kjósa Framsókn

„Skærustu stjörn­u­rnar brutu sér leið gegnum ljós­meng­un­ar­hjúp­inn sem lá yfir borg­inni, gróf okkur í birtu.“

Stemn­ingin á fjórðu hæð gömlu bæj­ar­út­gerð­ar­innar í Reykja­vík, síð­asta laug­ar­dag­inn í sept­em­ber í fyrra, var eins og blanda af þeirri sem mynd­ast á árs­há­tíð fjár­fest­inga­banka og á lands­leik í fót­bolta. Það er fullt út úr dyrum. Ungt fólk fyr­ir­ferð­ar­mest. Gestir hafa augun á sjón­varps­út­send­ingu á risa­skjá. Súlurit birt­ast og hóp­ur­inn tryllist úr fagn­að­ar­látum. Það eru kosn­ingar.

Ef ekki væri fyrir áber­andi ljós­grænan lit væri auð­velt að slá því föstu að þarna væru reffi­legir og sig­ur­vissir ungir Sjálf­stæð­is­menn búnir að fjöl­menna á kosn­inga­vöku eigin flokks; aðsniðin jakka­fötin svo óað­finn­an­leg og í réttri stærð á hverjum og einum þeirra ungu mann­anna. En þetta eru ekki Sjálf­stæð­is­menn. Þetta eru Fram­sókn­ar­menn. Og þeir eru að fagna sigri.

Fram­tíðin ræðst á miðj­unni. Á sama tíma eru Sjálf­stæð­is­menn að kepp­ast við að sann­færa sig og aðra um að þeir hafi, þrátt …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Mummi Týr skrifaði
    Það eina sem við höfum lært af stjórnmálasögu Íslands er að við höfum ekkert lært af stjórnmálasögu Íslands. Held að við eigum heimsmet í glötuðum og illa upplýstum kjósendum... útkoma kosninga í gegnum tíðina styður þá kenningu.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár