Tilllögur Auðlindarinnar okkar gætu haft mikil áhrif á stórútgerðir

Meiri­háttar upp­stokkun er fyr­ir­sjá­an­leg í eig­enda­hópi stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja lands­ins, nái til­lögur Auð­lind­ar­innar okkar um skýr­ara reglu­verk gegn sam­þjöppun kvóta­eignar, fram að ganga. Samherji þyrfti að helm­inga hlut sinn í Síld­ar­vinnsl­unni. Hlutur Guð­mundar Krist­jáns­sonar í Brimi og Kaup­fé­lags Skag­firð­inga í Vinnslu­stöð­inni kæmu einnig til álita.

Tilllögur Auðlindarinnar okkar gætu haft mikil áhrif á stórútgerðir

Loka­skýrsla Auð­lind­ar­innar okkar var kynnt í dag. Sú til­laga sem mun vafa­laust hafa einna mest bein áhrif snýst um það hvernig skuli flokka tengsl ein­stak­linga eða fyr­ir­tækja, þegar skoðað er hvort kvóta­eign ein­hvers sé orðin umfram það sem lög heim­ila. Í ald­ar­fjórð­ung hafa lög gilt sem ætlað var að koma í veg fyrir að kvóti safn­að­ist í of ríkum mæli á hendur fárra. Skil­grein­ingar á hug­tökum hafa hins vegar vaf­ist fyrir þeim sem falið var að fylgja eftir lög­unum. 

„Raun­veru­leg yfir­ráð“ er það sem strandað hefur á. Þannig hefur að því er virð­ist verið túlkað mjög þröngt hvað telj­ist til raun­veru­legra yfir­ráða eins aðila í öðrum, að í raun þurfi til dæmis Samherji að eiga yfir 50 pró­sent í Síld­ar­vinnsl­unni, til þess að hægt sé að telja kvóta Síld­ar­vinnsl­unnar með þegar metið er hvort eig­endur Samherja séu komnir að eða yfir kvóta­há­mark.

Hvers vegna kvótaþak?

Frá því fyrir alda­mót hafa …

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TLS
    Tryggvi L. Skjaldarson skrifaði
    Hvernig má það vera að hægt er að tala um sjávarútveg án þess að minnast einu orði á uppboðsmarkað? Kvótinn var settur til að vernda fiskinn í sjónum en ekki til að vernda einstakar fiskvinnslur í landi, eftir því sem ég best veit. Er ekki löngu tímabært að klippa milli veiða og vinnslu og tryggja að allur fiskur fari á uppboðsmarkað. Haga okkur eins og við viljum í raun og veru styðja frjálsan markað. Stórir stjórnmálaflokkar boða frelsi en styðja helsi, þegar það hentar. Af hverju eiga fiskvinnslur að vera í þeirri aðstöðu að geta selt sjálfum sér fisk á niðursettu verði, með öllum þeim trixum sem ná frá Kýpur til tunglsins og aftur til baka?
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár