Mynd: Heimildin Tómas

Kosningarnar sem hanga í loftinu en margir flokkarnir vilja ekki strax

Rík­is­stjórnin logar í deilum, stuðn­ingur við hana hefur aldrei mælst minni og flokk­arnir sem hana mynda standa allir frammi fyrir afhroði ef kosið yrði í dag. Þá eru kyn­slóða­skipti yfir­vof­andi í for­ystu sumra þeirra og framundan eru erfið við­fangs­efni sem gætu auð­veld­lega aukið óvin­sæld­irnar enn frekar. Það er erfitt að sjá hvaða hag flokk­arnir ættu að hafa af því að sprengja rík­is­stjórn­ina við þessar aðstæður.

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír: Vinstri græn, Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur, hefja þing­vet­ur­inn í verri stöðu en þeir hafa nokkru sinni verið síðan að rík­is­stjórn þeirra, undir for­sæti Katrínar Jak­obs­dóttur, var fyrst mynduð árið 2017. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mælist minni en áður á líf­tíma hennar og í sumum nýlegum könn­unum mælist sam­eig­in­legt fylgi flokk­anna þriggja um þriðj­ungur. Samkvæmt þeim könn­unum hafa þeir tapað fimmt­ungi fylgis síns á tæpum tveimur árum. 

Flokk­arnir hafa allir tapað miklu fylgi og eru allir að mæl­ast á stað sem þeir vilja ekki vera þegar kosið er. Rík­is­stjórnin logar líka í ill­deilum og skærum vegna mála sem engin ein­ing ríkir um milli flokk­anna. Einn vill banna hval­veiðar, annar setja á hval­reka­skatt og þriðji byggja lokað búsetu­úr­ræði með tak­mörk­unum fyrir flótta­fólk. Þegar þingi var slitið í vor gerð­ist það skyndi­lega og hratt, sem var óvænt. Við­mæl­endur Heim­ild­ar­innar segja að það hafi fyrst og síð­ast verið vegna þess að stjórn­ar­flokk­ana skorti …

Kjósa
46
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    ,,Ef boðað yrði til kosninga fyrr en ætlað er gæti flokkurinn staðið frammi fyrir því að þurfa að hraða þeirri vinnu, og þar með skort umboð fyrir ýmsar þeirra breytinga sem Kristrún og fólkið í kringum hana vilja koma í kring. "

    Ég hef staðið í þeirri trú að Kristrún hafi talað um að fara til grunngilda ?
    Hvaða umboð þarf til að fara þangað aftur ?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár