Húsfyllir á fundi um þjónustusvipt flóttafólk - „Mér svíður að þetta hafi gerst,“ segir ráðherra

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, félags­mála­ráð­herra segir að sér svíði að fólk, sem hefur verið synjað um vernd, hafi verið svipt grunn­þjón­ustu. Um þrjá­tíu félaga­sam­tök héldu sam­ráðs­fund vegna máls­ins síð­degis. Þrjár konur frá Nígeríu sem eru í þess­ari stöðu segj­ast verða þving­aðar aftur í vændi verði þær sendar frá Íslandi „Við erum ekki á göt­unni. Íslend­ingar hafa verið að hjálpa okkur,“ segja þær í sam­tali við Heim­ild­ina.

Húsfyllir á fundi um þjónustusvipt flóttafólk - „Mér svíður að þetta hafi gerst,“ segir ráðherra
Fjöldi fólks Marg­menni mætti á fund um stöðu fólks á flótta sem hefur verið svipt allri þjón­ustu og er á göt­unni. Mynd: Heiða Helgadóttir

Hús­fyllir var í sal Hjálp­ræð­is­hers­ins við Suð­ur­lands­braut í Reykja­vík síð­degis á sam­ráðs­fundi 28 félaga­sam­taka vegna fólks á flótta sem hefur verið svipt opin­berri þjón­ustu.

Samtökin höfðu boðið ráð­herrum, sveit­ar­stjórn­ar­fólki og rík­is­lög­reglu­stjóra á fund­inn en Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, félags­mála­ráð­herra, var sá eini úr rík­is­stjórn­inni sem mætti.

Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, sem stýrði fund­inum sagði að þetta væri sögu­leg stund því aldrei hefðu þessi 28 sam­tök sam­ein­ast um mál sem þarf að ræða og boðað til fundar til að gera einmitt það. Þetta sýndi alvar­leika máls­ins. „Ég held að þetta sé í fyrsta sinn sem svo mörg félaga­sam­tök senda frá sér sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu. Það sýnir alvar­leika máls­ins,“ sagði Drífa. 

Á fund­inum voru einnig nokkur úr hópnum sem hafa verið svipt þjón­ustu eftir að hafa verið synjað um vernd. Þeirra á meðal kon­urnar þrjár sem fjallað hefur verið um í fjöl­miðlum, þær Mary Hichioyah, Blessing Uzoma og Esther Omoregie.

…
Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Viðar Magnússon skrifaði
    Ætli Guðmundur Ingi hafi ekki vitað hvað hann var að samþykkja á Alþingi
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár