Heldur um veskið Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Halli á ríkissjóði 46 milljarðar á næsta ári og hlutur í Íslandsbanka seldur

Útgjöld rík­is­sjóðs munu aukast um 7,2 pró­sent milli ára sam­kvæmt fjár­laga­frum­varp­inu. Tekjur hans hafa stór­auk­ist und­an­farin ár og á næsta ári mun gistin­átta­skattur verða end­ur­vak­inn, helm­ingur af eft­ir­stand­andi hlut í Íslands­banka verða seldur og ný gjald­taka af öku­tækjum inn­leidd. Heild­ar­skuldir rík­is­sjóðs í árs­lok 2024 eru áætl­aðar 1.699 millj­arðar króna.

Áætlaður halli rík­is­sjóðs á næsta ári er 46,3 millj­arðar króna. Heild­ar­tekjur eru áætl­aðar 1.348,5 millj­arðar króna en útgjöld 1.394,8 millj­arðar króna.  Samkvæmt þessu munu tekjur rík­is­ins aukast um 134,9 millj­arða króna á næsta ári en útgjöld þess 93,8 millj­arða króna, eða um 7,2 pró­sent. 

Þetta kemur fram í fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2024 sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, kynnti í morgun. 

Þar er einnig hægt að sjá að hall­inn í ár er nú áætl­aður mun minni en hann var áður, eða 41,1 millj­arður króna. Þrátt fyrir að rík­is­sjóður sé enn rek­inn í halla, og safni þar af leið­andi skuldum, er staðan mun skap­legri en hún var á árunum 2021 og 2022. Afkoma rík­is­sjóðs á þeim tveimur árum var sam­an­lagt nei­kvæð um 305,1 millj­arð króna. 

Nýir tekjustofnar og banki seldur

Í fjár­laga­frum­varp­inu er þó gert ráð fyrir því að ríkið haldi áfram að selja eign­ar­hlut sinn í Íslands­banka á næsta ári og fái alls 48,3 millj­arða króna vegna þeirrar eigna­sölu á árinu 2024. Þa er gert ráð fyrir að ríkið selji 21,25 pró­sent, eða helm­ing þess sem það heldur enn á í bank­anum.

Í fjár­laga­frum­varp­inu er svo einnig gert ráð fyrir að eft­ir­stand­andi hlutur, hinn 21,25 pró­sentin í Íslands­banka, verði seldur á árinu 2025. Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar er alls ekki ein­ing innan rík­is­stjórn­ar­innar um að ráð­ast í sölu á hlutum í Íslands­banka með þessum hætti sem lagt er upp með í fjár­laga­frum­varpi næsta árs. 

Þá er gert ráð fyrir því að veiði­gjöld verði 12,2 millj­arðar króna á næsta ári en þar af eru 2,1 millj­arður króna til­kom­inn vegna verð­mæta­gjalds af fisk­eldi. Banka­skattur á að skila 6,5 millj­örðum króna í rík­is­kass­ann á árinu 2025. 

Þá á gistin­átta­skattur, sem var felldur niður tíma­bundið á tímum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, að taka gildi aftur um ára­mót og leggj­ast líka á skemmti­ferða­skip. Hann á að skila tekjum upp á tæp­lega 4,2 millj­arða króna á næsta ári. 

Þá boðar ráð­herra fyrsta skrefið í breyttri gjald­töku af öku­tækjum og umferð á nýju ári. Innleitt verður nýtt kerfi þar sem greiðslur eru í auknum mæli „tengdar notkun svo hægt verði að standa að metn­að­ar­fullri upp­bygg­ingu sam­hliða nauð­syn­legu við­haldi vega­kerf­is­ins.“ Í fjár­laga­frum­varp­inu segir að tekjur af öku­tækjum og elds­neyti séu áætl­aðar 63,3 millj­arðar króna á næsta ári og þar af séu 7,5 millj­arðar króna vegna fyrstu skrefa í inn­leið­ingu nýja kerf­is­ins. 

Sér­stak­lega er þó tekið fram að krónu­tölu­gjöld, utan bif­reiða­gjalda, verða ekki látin fylgja verð­lagi, ólíkt fyrra ári þar sem þau héld­ust í við verð­lags­for­sendur. Þannig munu þau aðeins upp­fær­ast um 3,5 pró­sent um ára­mót en með því eru skatt­arnir um þremur millj­örðum krónum lægri en ef þeir hefðu fylgt verð­lagi.

Enn yfir skuldareglu

Samkvæmt skulda­reglu mega heild­ar­skuldir rík­is­sjóðs, að frá­töldum líf­eyr­is­skuld­bind­ingum og við­skipta­skuldum og að frá­dregnum sjóðum og banka­inn­stæð­um, ekki fara yfir 30 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu. Þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á var sú skulda­regla, sem sett er fram í lögum um opin­ber fjár­mál, tekin úr sam­bandi og skuldir rík­is­sjóðs hafa verið yfir því marki síðan 2019, þegar hún var 22 pró­sent. Samkvæmt fjár­laga­frum­varp­inu verður engin breyt­ing á þeirri stöðu að rík­is­sjóður verði yfir 30 pró­sent mark­inu á næsta ári, en skulda­hlut­fallið í lok þess árs er áætlað 30,8 pró­sent. 

Skuldir rík­is­sjóðs eru áætl­aðar 1.702 millj­arðar króna í lok þessa árs og þær eiga að lækka um þrjá millj­arða króna á því næsta sam­kvæmt frum­varp­inu, niður í 1.699 millj­arða króna. Af þessum skuldum er áætlað að ríkið greiði 110.7 millj­arða króna í vaxta­gjöld á árinu 2024.


Fyr­ir­sögn grein­ing­ar­innar var upp­færð eftir að ábend­ing barst frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu um að sam­kvæmt staðl­inum sem not­aður er við upp­gjör rík­is­sjóðs þá hefur sölu­and­virði Íslands­banka ekki bein áhrif á afkomu rík­is­sjóðs.
Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár