Göldróttir bruggarar hyggjast kaupa hluta af húsnæði Hólmadrangs

Í einu af húsum rækju­vinnsl­unnar Hólma­drangs er búið að koma fyrir brugg­húsi. Anna Björg Þór­ar­ins­dóttir, eig­in­kona ann­ars stofn­enda þess, segir að brugg­húsið Galdur sé sam­fé­lags­verk­efni Stranda­manna, en margir ein­stak­lingar í sam­fé­lag­inu hafa lagt því til hlutafé.

Göldróttir bruggarar hyggjast kaupa hluta af húsnæði Hólmadrangs
Galdur Anna Björg Þór­ar­ins­dóttir og Philipp Ewer brugg­meist­ari í gesta­stofu brugg­húss­ins, sem verið var að leggja loka­hönd á undir lok júní. Mynd: Heiða Helgadóttir

Að finna ein­hverja starf­semi í atvinnu­hús­næði Hólma­drangs er eitt helsta verk­efnið sem blasir við nú þegar búið er að stöðva starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins, en húsin eru stór og mið­svæðis í elsta hluta bæj­ar­ins.

Hluti hús­næð­is­ins hefur þó þegar fengið nýtt hlut­verk, en brugg­húsið Galdur hefur á und­an­förnu ári komið upp verk­smiðju í hluta af einu hús­inu og er blaða­maður og ljós­mynd­ari Heim­ild­ar­innar litu við var verið að leggja loka­hönd á gesta­stofu, lít­inn bar inn af brugg­hús­inu þar sem hægt verður að tylla sér og smakka á fram­leiðsl­unni. 

Stranda­menn­irnir Finnur Ólafsson og Aleksandar Kuzmanic áttu hug­mynd­ina að brugg­hús­inu. Anna Björg Þór­ar­ins­dóttir, eig­in­kona Finns, var á staðnum er Heim­ildin leit við, ásamt brugg­meist­ar­anum Philipp Ewer. 

Margir litlir hluthafar

Anna Björg sagði frá því að bruggverk­smiðjan væri hálf­gert sam­fé­lags­verk­efni, en ákveðið var að kaupa bruggverk­smiðju í heilu lagi af brugg­hús­inu Steðja í Borg­ar­firði, sem hætti fram­leiðslu. Fram­leiðslu­getan hjá …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lokun Hólmadrangs

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár