Slæmt að geta ekki lengur stokkið yfir götuna eftir rækju

Guðrún Ásla Atla­dóttir er eigandi Café Riis á Hólmavík. Lokun rækju­vinnslu bæjarins hefur töluverð áhrif á hennar rekstur, en hún hefur séð um að elda hádegismat fyrir starfs­fólk vinnslunnar alla virka daga. Á henni er þó engan bilbug að finna.

Viðmælendur Heimildarinnar á Hólmavík sögðu allir að áhrifin af lokun rækju­vinnslunnar á atvinnu­lífið í bænum væru víðtækari en einungis þau að tuttugu manns væru nú búin að missa vinnuna. 

Fyrir­sjáanleg afleidd áhrif á annan atvinnu­rekstur væru einnig nokkur, bæði á iðnaðar­menn sem hefðu á stundum verið kallaðir til vinnu í rækju­vinnslunni, en kannski einna helst á veitinga­staðinn Café Riis, sem stendur í einu elsta húsi Hólma­víkur, beint á móti rækju­vinnslunni.

Café Riis hefur séð um að elda mötuneytismat alla virka daga fyrir starfs­fólk Hólma­drangs, þegar vinnsla hefur verið í gangi í verksmiðjunni. Það hefur töluverð áhrif á reksturinn að missa þau viðskipti, segir Guðrún Ásla Atla­dóttir, sem á og rekur Café Riis, í samtali við Heimildina.

Hún segir lokun rækju­vinnslunnar þó ekki breyta hennar áformum um að hafa opið frá hádegi og fram á kvöld í allan vetur, þrátt fyrir að það dragi verulega úr umferð …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lokun Hólmadrangs

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár