Láta rykið setjast og sjá til

„Þetta er ekki alveg eins og var fyrir 30–40 árum, þegar einu frysti­húsi var lokað. Það eru miklu meiri tæki­færi núna,“ segir Hafdís Gunn­ars­dóttir, sem starfað hafði í 22 ár í rækju­vinnslu Hólma­drangs. Sam­býl­is­maður hennar Hjörtur Númason hafði starfað hjá fyr­ir­tæk­inu og for­verum þess nán­ast frá því hann fermd­ist fyrir hálfri öld.

Láta rykið setjast og sjá til
Hólmavík Hjörtur Númason og Hafdís Gunn­ars­dóttir í gróð­ur­húsi sínu á Hólmavík á dýrð­legum sól­ar­degi undir lok júní. Mynd: Heiða Helgadóttir

Hafdís Gunn­ars­dóttir og Hjörtur Númason státa sam­an­lagt af 72 ára starfs­reynslu hjá rækju­vinnsl­unni Hólma­drangi og for­verum fyr­ir­tæk­is­ins á Hólmavík. Hafdís hefur starfað þar í 22 ár og Hjörtur í hálfa öld.

„Ég er búinn að vera þarna síðan ég var 15 ára. Og ég er 65 ára, þannig að þetta eru orðin nokkur ár,“ segir Hjörtur, sem hefur þó ekki starfað alla tíð í rækju­vinnsl­unni, heldur einnig á tog­ara sem áður var gerður út frá Hólmavík á vegum vinnsl­unnar. 

Blaða­maður sett­ist með þeim í gróð­ur­hús í garði þeirra á fal­legum sum­ar­degi fyrir skemmstu og ræddi málin. Þau segja lokun rækju­vinnsl­unnar ekki hafa komið á óvart, þannig séð. Þau töldu þó lík­legra að gripið yrði til fram­leiðslu­stopps um lengri tíma, fremur en að vinnsl­unni á Hólmavík yrði var­an­lega hætt.

„Það hefur verið tap­rekstur og þetta hefur gengið illa,“ segir Hjörtur, sem verið hefur vél­stjóri rækju­vinnsl­unnar. …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lokun Hólmadrangs

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár