Slæmt að geta ekki lengur stokkið yfir götuna eftir rækju

Guðrún Ásla Atla­dóttir er eig­andi Café Riis á Hólmavík. Lokun rækju­vinnslu bæj­ar­ins hefur tölu­verð áhrif á hennar rekstur, en hún hefur séð um að elda hádeg­is­mat fyrir starfs­fólk vinnsl­unnar alla virka daga. Á henni er þó engan bil­bug að finna.

Slæmt að geta ekki lengur stokkið yfir götuna eftir rækju

Við­mæl­endur Heim­ild­ar­innar á Hólmavík sögðu allir að áhrifin af lokun rækju­vinnsl­unnar á atvinnu­lífið í bænum væru víð­tæk­ari en ein­ungis þau að tutt­ugu manns væru nú búin að missa vinn­una. 

Fyr­ir­sjá­an­leg afleidd áhrif á annan atvinnu­rekstur væru einnig nokkur, bæði á iðn­að­ar­menn sem hefðu á stundum verið kall­aðir til vinnu í rækju­vinnsl­unni, en kannski einna helst á veit­inga­stað­inn Café Riis, sem stendur í einu elsta húsi Hólma­víkur, beint á móti rækju­vinnsl­unni.

Café Riis hefur séð um að elda mötu­neyt­is­mat alla virka daga fyrir starfs­fólk Hólma­drangs, þegar vinnsla hefur verið í gangi í verk­smiðj­unni. Það hefur tölu­verð áhrif á rekst­ur­inn að missa þau við­skipti, segir Guðrún Ásla Atla­dóttir, sem á og rekur Café Riis, í sam­tali við Heim­ild­ina.

Hún segir lokun rækju­vinnsl­unnar þó ekki breyta hennar áformum um að hafa opið frá hádegi og fram á kvöld í allan vetur, þrátt fyrir að það …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lokun Hólmadrangs

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár