Göldróttir bruggarar hyggjast kaupa hluta af húsnæði Hólmadrangs

Í einu af húsum rækju­vinnslunnar Hólma­drangs er búið að koma fyrir brugghúsi. Anna Björg Þórarins­dóttir, eiginkona annars stofnenda þess, segir að brugg­húsið Galdur sé samfélags­verkefni Stranda­manna, en margir einstak­lingar í samfélaginu hafa lagt því til hlutafé.

Galdur
Galdur Anna Björg Þór­ar­ins­dóttir og Philipp Ewer brugg­meist­ari í gesta­stofu brugg­húss­ins, sem verið var að leggja loka­hönd á undir lok júní. Mynd: Heiða Helgadóttir

Að finna einhverja starfsemi í atvinnu­húsnæði Hólma­drangs er eitt helsta verkefnið sem blasir við nú þegar búið er að stöðva starfsemi fyrir­tækisins, en húsin eru stór og miðsvæðis í elsta hluta bæjarins.

Hluti húsnæðisins hefur þó þegar fengið nýtt hlutverk, en brugg­húsið Galdur hefur á undan­förnu ári komið upp verksmiðju í hluta af einu húsinu og er blaða­maður og ljós­myndari Heimildarinnar litu við var verið að leggja lokahönd á gesta­stofu, lítinn bar inn af brugg­húsinu þar sem hægt verður að tylla sér og smakka á fram­leiðslunni. 

Stranda­mennirnir Finnur Ólafsson og Aleksandar Kuzmanic áttu hugmyndina að brugg­húsinu. Anna Björg Þórarins­dóttir, eiginkona Finns, var á staðnum er Heimildin leit við, ásamt brugg­meistaranum Philipp Ewer. 

Margir litlir hluthafar

Anna Björg sagði frá því að brugg­verksmiðjan væri hálfgert samfélags­verkefni, en ákveðið var að kaupa brugg­verksmiðju í heilu lagi af brugg­húsinu Steðja í Borgar­firði, sem hætti fram­leiðslu. Framleiðslu­getan hjá Galdri …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lokun Hólmadrangs

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár