Einkaneysla dregst minnst saman á Íslandi á Norðurlöndunum

Einka­neysla fólks dregst hlut­falls­lega minna saman hér á landi en á hinum Norð­ur­lönd­unum. Seðla­banki Íslands hefur gagn­rýnt bæði einka­neyslu Íslend­inga og slæm áhrif launa­hækk­ana á eyðslu og þenslu hér á landi. Einka­neysla á Íslandi í fyrra var sú mesta á Íslandi frá árinu 2005.

Einkaneysla dregst minnst saman á Íslandi á Norðurlöndunum
Einka­neysla eykst Einka­neysla á Íslandi heldur áfram að aukast á milli ára og spári Seðla­bank­inn því að hún hafi auk­ist um 6,8 pró­sent á fyrsta árs­fjórð­ungi miðað við sama tíma­bil í fyrra. Mynd: Bára Huld Beck

Einka­neysla fólks á Íslandi breyt­ist minnst á milli mán­aða og ára, þrátt fyrir verð­bólgu og vaxta­hækk­anir, miðað við hin Norð­ur­löndin. Í Svíþjóð dróst einka­neyslan til dæmis saman um 2 og 4 pró­sent á milli ára í febr­úar og mars á þessu ári, miðað við sömu mán­uði í fyrra. Á meðan spáir Seðla­banki Íslands  því í riti sínu, Pen­inga­málum, að einka­neyslan á Íslandi hafi auk­ist um 6,8 pró­sent á milli ára fyrsta árs­fjórð­ungs 2021 og 2022. Sam­bæri­leg tala í Svíþjóð er að að einka­neyslan hefur dreg­ist saman um 1,7 pró­sent á þessu sama tíma­bili.

Athygli vekur líka hversu  mikið meira einka­neyslan jókst á Íslandi í fyrra, í kjöl­far Covid, en til dæmis í Svíþjóð.

„Í svona árferði þenslu getur verið auð­veld­ara fyrir fyr­ir­tæki að fleyta verð­hækk­unum í gegn.“
Róbert Farest­veit,
hag­fræð­ingur hjá ASÍ

Hin Norð­ur­löndin hafa einnig upp­lifað tals­verða verð­bólgu og stýri­vaxta­hækk­anir þrátt fyrir að vext­irnir hér á landi séu lang­hæstir …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Fimmta hver króna í umferð var "prentuð" á undanförnum rúmlega tveimur árum, EFTIR að verðbólga rauf efri vikmörk verðbólgumarkmiðs stjórnvalda og seðlabankans. Hver sá sem leyfði því að gerast ber óskipta ábyrgð á allri verðbólgu og vaxtahækkunum síðan þá. Það er ekki launafólk því það getur ekki "prentað" peninga heldur aðeins millifært þá. Verðbólga mælir verðlag og verð eru ákveðin af atvinnurekendum. Oft er spurt hvernig eigi að ná tökum á verðbólgunni, en svarið við því er að auðveldasta leiðin til að halda verðbólgu í skefjum er að sleppa því einfaldlega að búa hana til.
    0
  • JÞM
    Jóhann Þór Magnússon skrifaði
    Sigurður Jóhannesson og Gylfi Zoega eru með bestu greininguna. Nefna t.d. báðir mikil áhrif sem hraður vöxtur ferðaþjónustu eftir Covid hefur. Því er nánast ekkert atvinnuleysi og eigendur ferðaþjónustufyrirtækja græða á tá og fingri sem fer í einkaneyslu. Það mættu fara fleiri seðlar úr ferðaþjónustu í ríkiskassann líkt og í samanburðarlöndunum, það mundi snar hægja á einkaneyslunni og verðbólgunni. Annað sem má benda á er að stuðningsaðgerðir ríkisstjórnarinnar við ferðaþjónustu- og ótrúlegustu fyrirtæki í Covid, var mjög rausnarlegur greiði sem endurspeglaðist í því að algjör methagnaður var af fyrirtækjum út úr Covid kreppunni. Í raun glórulaus peningaprentun sem er núna eftir Covid að flæða af krafti frá fyrirtækjaeigendum út í einkaneyslu og verðbólgu.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lífskjarakrísan

Býr sig undir „skell fasteignaeigenda á næsta ári“
FréttirLífskjarakrísan

Býr sig undir „skell fast­eigna­eig­enda á næsta ári“

Ásta Sigrún Helga­dóttir, umboðs­maður skuld­ara, segir að emb­ættið sé að búa sig undir fjölda umsókna frá fast­eigna­eig­endum í fjár­hags­vanda. Greina megi auk­inn óró­leika og jafn­vel kvíða hjá fólki sem þiggur síma­ráð­gjöf hjá emb­ætt­inu. Flest sem fá aðstoð eru öryrkjar og lág­launa­fólk á leigu­mark­aði og segir Ásta Sigrún að rík­is­stjórnin verði að bregð­ast við vanda þess hóps.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár