Mynd: Heiða Helgadóttir

Einni bílaviðgerð frá vandræðum

Afborg­anir allra lána hafa hækkað á síð­ustu miss­erum og hefur það knúið Sigtrygg Ara Jóhanns­son ljós­mynd­ara til að skoða af alvöru að flytja búferlum til ann­ars lands til að kom­ast í skjól. „Ég átta mig á því að það er ekki eins og happ­drætt­is­vinn­ingur að flytja í annað land,“ segir hann, „en ein­hverju er hægt að fórna fyrir stöð­ug­leika.“

„Já, þetta er nátt­úr­lega sturlun, þetta ástand. Þetta er algjört rugl,“ segir ljós­mynd­ar­inn Sig­tryggur Ari Jóhanns­son um aukna greiðslu­byrði sam­fara verð­bólgu og síhækk­andi vöxtum. Und­an­farið eitt og hálft ár hefur greiðslu­byrðin af íbúð­ar­lán­inu hans vaxið um fjöru­tíu pró­sent; hækkað úr rúmum 140 þús­und krónum í rúmar 200 þús­und krónur. 

Lánið tók hann árið 2021 til að kaupa hóf­lega íbúð fyrir sig og dætur sínar tvær. „Ég keypti mér íbúð eftir skiln­að­inn fyrir einu og hálfu ári síðan. Hún kost­aði 50 millj­ónir, bara lítil og ég gat ekki keypt her­bergi fyrir alla, sem er allt í lagi. Ég átti tíu millj­ónir og tók svo lán. Ég var að borga svona hund­rað og fjöru­tíu þús­und á mán­uði af því. Sem er komið upp fyrir 200 þús­und krónur hjá mér í dag,“ …

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lífskjarakrísan

Býr sig undir „skell fasteignaeigenda á næsta ári“
FréttirLífskjarakrísan

Býr sig undir „skell fast­eigna­eig­enda á næsta ári“

Ásta Sigrún Helga­dóttir, umboðs­maður skuld­ara, segir að emb­ættið sé að búa sig undir fjölda umsókna frá fast­eigna­eig­endum í fjár­hags­vanda. Greina megi auk­inn óró­leika og jafn­vel kvíða hjá fólki sem þiggur síma­ráð­gjöf hjá emb­ætt­inu. Flest sem fá aðstoð eru öryrkjar og lág­launa­fólk á leigu­mark­aði og segir Ásta Sigrún að rík­is­stjórnin verði að bregð­ast við vanda þess hóps.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár