Svona bíta hærri vextir og aukin verðbólga á venjulegu fólki

Þrálát verð­bólga er á Íslandi og við­búið að bar­áttan við hana verði lang­vinn. Til þess að berj­ast við hana hefur Seðla­bank­inn hækkað stýri­vexti þrettán sinnum í röð, sem hækka greiðslu­byrði heim­ila af íbúða­lánum veru­lega. Áhrifin á dag­legt líf eru veru­leg og kaup­máttur launa fólks er að drag­ast saman. Það fær minna fyrir pen­ing­ana sína og þarf sam­tímis að nota stærra hlut­fall þeirra í að borga fyrir þak yfir höf­uðið.

Stýri­vextir hafa nú verið hækk­aðir þrettán sinnum í röð og standa nú í 8,75 pró­sentum. Síðasta hækkun, sem kynnt var í lið­inni viku, var sú skarpasta til þessa. Vext­irnir voru hækk­aðir um 1,25 pró­sentu­stig. Það er raunar mesta hækkun stýri­vaxta í einu skrefi síðan í októ­ber 2008, í kjöl­far þess að íslenska banka­kerfið hrundi. Þá hækk­uðu vext­irnir úr 12 í 18 pró­sent. 

Ástæðan fyrir því að stýri­vextir eru að hækka er þrá­lát verð­bólga. Í henni felst að verð­lag hækkar og kaup­máttur pen­inga minnkar. Fólk fær minna magn vöru og þjón­ustu fyrir hverja krónu. Í við­leitni sinni við að hemja verð­bólg­una er Seðla­bank­inn að reyna að kæla hag­kerfið. Fá fólk og fyr­ir­tæki til að eyða minna af pen­ingum, meðal ann­ars með því að gera greiðslu­byrði af lánum þeirra hærri. Því fleiri krónur sem fara í að borga af lánum, því færri eru eftir í annað. 

Þetta er einn hluta umfjöll­unar Heim­ild­ar­innar …

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lífskjarakrísan

Býr sig undir „skell fasteignaeigenda á næsta ári“
FréttirLífskjarakrísan

Býr sig undir „skell fast­eigna­eig­enda á næsta ári“

Ásta Sigrún Helga­dóttir, umboðs­maður skuld­ara, segir að emb­ættið sé að búa sig undir fjölda umsókna frá fast­eigna­eig­endum í fjár­hags­vanda. Greina megi auk­inn óró­leika og jafn­vel kvíða hjá fólki sem þiggur síma­ráð­gjöf hjá emb­ætt­inu. Flest sem fá aðstoð eru öryrkjar og lág­launa­fólk á leigu­mark­aði og segir Ásta Sigrún að rík­is­stjórnin verði að bregð­ast við vanda þess hóps.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár