Það kostar að fara út úr dyrunum

Edda Þöll Kentish upp­lifir breyttan veru­leika í verð­bólgu og vaxta­þenslu sem staðið hefur síð­ustu miss­eri. Hún og mað­ur­inn hennar reyndu að sýna var­kárni og spenna bog­ann ekki um of þegar þau keyptu sér íbúð en þurfa nú að hugsa sig tvisvar um áður en nokkuð er keypt eða nokk­urt er keyrt.

Það kostar að fara út úr dyrunum
Varkár en hissa Edda segir að það hafi komið þeim á óvart hversu hratt við­skipta­bank­arnir hækk­uðu vexti og hversu hækk­an­irnar komu skart í kjöl­far hverrar nýrrar stýri­vaxta­á­kvörð­unar. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Við keyptum eign­ina okkar í fyrra og miðað við for­sendur í greiðslu­mati, verð­bólgu á kaup­tíma sem og upp­haf­lega vexti sem lánin báru var upp­haf­leg mán­að­ar­leg greiðslu­byrði um 300.000 krónur. Í dag er hún um 388.000 krónur,“ segir Edda Þöll Kentish, sem eins og margir Íslend­ingar upp­lifa breyttar aðstæður vegna verð­bólgu og síhækk­andi vaxta. 

Til að kaupa íbúð­ina tóku þau blandað íbúða­lán, það er bæði verð­tryggt og óverð­tryggt. Hvor hluti skipt­ist svo í grunn­lán og við­bót­ar­lán þannig í heild­ina voru fjögur lán tekin til að fjár­magna íbúð­ar­kaup. Óverð­tryggðu vext­irnir voru í upp­hafi 4,65 pró­sent á grunn­lán­inu og 5,75 pró­sent á við­bót­ar­lán­inu. Vext­irnir hafa tekið breyt­ingum í takt við vaxta­hækk­anir Seðla­bank­ans og í dag eru þeir 9,25 pró­sent og 10,25 pró­sent. „Ég reikna fast­lega með því að vext­irnir eigi eftir að hækka aftur eftir síð­ustu stýri­vaxta­á­kvörðun Seðla­bank­ans,“ segir Edda. Á verð­tryggða grunn­lán­inu eru 1,5 pró­sent vextir og áfallnar verð­bætur 2,6 millj­ónir …

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lífskjarakrísan

Býr sig undir „skell fasteignaeigenda á næsta ári“
FréttirLífskjarakrísan

Býr sig undir „skell fast­eigna­eig­enda á næsta ári“

Ásta Sigrún Helga­dóttir, umboðs­maður skuld­ara, segir að emb­ættið sé að búa sig undir fjölda umsókna frá fast­eigna­eig­endum í fjár­hags­vanda. Greina megi auk­inn óró­leika og jafn­vel kvíða hjá fólki sem þiggur síma­ráð­gjöf hjá emb­ætt­inu. Flest sem fá aðstoð eru öryrkjar og lág­launa­fólk á leigu­mark­aði og segir Ásta Sigrún að rík­is­stjórnin verði að bregð­ast við vanda þess hóps.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár