Engin breyting á færslugjöldum bankanna

Við­skipta­vinir Íslands­banka, Lands­bank­ans og Arion banka greiða á bil­inu 1.800-2.000 krónur fyrir hverjar hund­rað færslur með debet­kort­inu sínu og hefur ekki orðið breyt­ing þar á þrátt fyrir inn­komu indó á markað sem rukkar engin færslu­gjöld.

Engin breyting á færslugjöldum bankanna

Engin færslu­gjöld og betri vextir eru meðal þess sem spari­sjóð­ur­inn indó stærir sig af. Hann var opn­aður form­lega í lok jan­úar á þessu ári og eru við­skipta­vinir spari­sjóðs­ins nú orðnir tæp­lega 18 þús­und. Enn sem komið er býður indó aðeins upp á debet­korta­reikn­ing en til stendur að auka úrval þjón­ust­unnar í náinni fram­tíð. 

Innkoma indó á íslenskan markað hefur vakið mikla athygli en und­ir­bún­ingur opn­unar spari­sjóðs­ins hefur staðið yfir síð­ustu miss­eri; árið 2020 voru til að mynda sagðar fréttir af því að „fjár­tækni­fyr­ir­tækið indó“ væri nálægt því að fá við­skipta­banka­leyfi, og fyrir ári að „áskor­enda­bank­inn indó“ hafi fengið starfs­leyfi sem spari­sjóður. Stóru bank­arnir hafa því haft nægan tíma til að und­ir­búa sig fyrir inn­komu indó. 

Hækka vexti á sparnaðarreikningum

Hver debet­korta­færsla hjá Íslands­banka kostar 20 krónur, það kostar 19 krónur að borga með debet­korti frá Arion banka og 18 krónur með debet­korti frá Lands­bank­anum. Við­skipta­vinir yngri en 18 ára hjá …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár