Mál skrifstofustjórans talið sýna þörf á strangari reglum um snúningsdyravandann

Tvær þing­konur Sam­fylk­ing­ar­innar segja að laga­setn­ing til að koma í veg fyrir hags­muna­á­rekstra hjá fólki í opin­berum störfum þurfi að vera strang­ari. Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir segir að mál skrif­stofu­stjór­ans og lög­fræð­ings­ins í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu sýni fram á þetta.

Mál skrifstofustjórans talið sýna þörf á strangari reglum um snúningsdyravandann
Mál Jóhanns sýnir brest­ina Mál Jóhanns Guð­munds­sonar og sam­skipti hans við Baldur Pálma Erlings­son, starfs­mann Arnarlax og fyrr­ver­andi lög­fræð­ing í ráðu­neyt­inu, sýnir brest­ina í laga­setn­ingu um hags­muna­á­rekstra á Íslandi segir þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Samsett / Heimildin

Setja þarf lög eða reglur til að koma í veg fyrir að stjórn­mála- og emb­ætt­is­menn fari ekki strax í vinnu hjá einka­fyr­ir­tækjum sem tengj­ast opin­berum störfum þeirra eftir að þeir hætta í þjón­ustu rík­is­ins. Þetta segir Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, aðspurð um hvort hún telji að setja þurfi reglur eða lög hér á landi til að koma í veg fyrir þetta.

„Það er alveg aug­ljóst að við þurfum að taka á þessu“
Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir,
þing­maður og for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar

„Við þurfum auð­vitað að hafa svona reglur. Fisk­eldið er auð­vitað bara nýjasta dæmi um það. Það er alveg aug­ljóst að við þurfum að taka á þessu,“ segir Þórunn. „Mér finnst blasa við að lög­gjaf­ar­þingið og Stjórn­ar­ráðið verði að hafa um þetta skýrar reglur þannig að ekki sé hægt að fara beint úr starfi fyrir hið opin­bera, eða sem kjör­inn full­trúi, og beint yfir í störf …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mál Jóhanns Guðmundssonar

Skrifstofustjóri í ráðuneyti sendi trúnaðargögn til ráðgjafa Arnarlax
FréttirMál Jóhanns Guðmundssonar

Skrif­stofu­stjóri í ráðu­neyti sendi trún­að­ar­gögn til ráð­gjafa Arnarlax

Skrif­stofu­stjór­inn í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu sem lét fresta birt­ingu nýrra laga um fisk­eldi vill fá rúm­lega 30 millj­ónir króna frá rík­inu vegna ólög­mætrar upp­sagnar. Í dómi í máli hans er sagt frá því hvernig sam­skiptum hans við ráð­gjafa lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arnarlax var háttað. Ráð­gjaf­inn var fyrr­ver­andi sam­starfs­maður hans í ráðu­neyt­inu.
Kæran sagði Jóhann hafa hyglað Arnarlaxi í ráðuneytinu
FréttirMál Jóhanns Guðmundssonar

Kæran sagði Jóhann hafa hyglað Arn­ar­laxi í ráðu­neyt­inu

Kæra vegna hátt­semi Jóhanns Guð­munds­sonar, skrif­stofu­stjóra í atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu, sner­ist um að hann hefði gengið erinda lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arnarlax. Jóhann beitti sér fyrir því að gild­is­töku laga um lax­eldi yrði seinkað um sum­arið 2019. Arnarlax skil­aði inn gögnum um lax­eld­is­á­form sín einum degi áður en lögin tóku eftir að Jóhann lét seinka gild­is­töku þeirra.
Skrifstofustjóri í ráðuneyti var til rannsóknar hjá héraðssaksóknara
FréttirMál Jóhanns Guðmundssonar

Skrif­stofu­stjóri í ráðu­neyti var til rann­sóknar hjá hér­aðs­sak­sókn­ara

Mál Jóhanns Guð­munds­sonar, fyrr­ver­andi skristofu­stjóra í atvinnu­vega-og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu, sem kom að því að láta fresta gild­is­töku nýrra laga um fisk­eldi sum­arið 2020 var sent til lög­regl­unnar og hér­aðs­sak­sókn­ara. Rannsókn máls­ins var hins vegar felld niður þar sem ekki var talið að um ásetn­ing hefði verið að ræða. Fjallað er um málið í nýrri skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um sjó­kvía­eldi á Íslandi.
Dómsmálaráðherra telur að rétt hafi verið staðið að birtingu laga um laxeldi
FréttirMál Jóhanns Guðmundssonar

Dóms­mála­ráð­herra telur að rétt hafi verið staðið að birt­ingu laga um lax­eldi

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra telur að ekki hafi verið óeðli­legt hvernig Jóhann Guð­munds­son hlut­að­ist til um birt­ingu laga í fyrra. Þetta er annað mat en hjá ráðu­neyti Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar. Vanda­málið snýst um að ganga út frá því að starfs­menn hljóti að vinna sam­kvæmt vilja ráð­herra en ekki sam­kvæmt eigin geð­þótta.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár