Bók einræðisherrans á íslensku kostuð af kínverska ríkinu

Ein af óvænt­ari bók­unum sem komu út á íslensku fyrir síð­ustu jól var áróð­urs­rit Xi Jinping, ein­ræð­is­herra í Kína. Bóka­for­lag Jónasar Sig­ur­geirs­sonar gaf út bók­ina út en hann er þekktur frjáls­hyggju­maður. Jónas segir að hann sé alhliða útgef­andi sem gefi út bækur um allt milli him­ins og jarðar. Hann hrósar Kín­verj­unum fyrir sam­starfið við útgáf­una og úti­lokar ekki fleiri bækur.

Bók einræðisherrans á íslensku kostuð af kínverska ríkinu

Jónas Sig­ur­geirs­son, bóka­út­gef­andi hjá Almenna bóka­fé­lag­inu, gaf út bók eftir Xi Jinping, aðal­rit­ara Kín­verska komm­ún­ista­flokks­ins, síð­ast­liðið haust að til­stuðlan kín­verska sendi­ráðs­ins á Íslandi. Bóka­for­lag Jónasar fékk hand­ritið sent í íslenskri þýð­ingu frá kín­verskri rík­is­stofnun sem heitir Foreign Langu­ages Press co. „Ég fæ bók­ina þýdda, ég fæ bara hand­ritið og svo fer það í gegnum próförk. Það er ekk­ert að þess­ari þýð­ingu enda var hún líka marglesin. Ég var aldrei í sam­skiptum við þýð­and­ann.“ Enginn þýð­andi er til­greindur í bók­inni en í svari frá kín­verska sendi­ráð­inu kemur fram að hann heiti Ragnar Bald­urs­son. 

Um er að ræða fyrsta bindið í bóka­flokki eftir Xi Jinping sem komið hefur út í Kína á síð­ustu árum. Bókin kom fyrst út á kín­versku árið 2014 og hefur síðan verið gefin út á mörgum tungu­málum, meðal ann­ars ensku, frönsku, arab­ísku og spænsku.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Tang-tímabilinu. Ópíum stríðið var árásarstríð Breta gegn Kína frá 1840 til 1842.Breska ríkisstjórnin sendi innrásarher til Kína í kjölfar andstöðu Kínverja gegn innflutningi Breskra kaupmanna á ópíum til Kína undir yfirskyni verndunar breskra viðskiptahagsmuna. Árið 1842 réðust Breskar hersveitir inn á árósasvæði Jangtsefljóts og þvinguðu Qing-keisaraættarinnar til að undirrita Nanking samningin, sem var fyrsti ójafni nauðungarsamningur útlendinga við Kínverja í nútímasögu Kína.
    0
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Fór og náði í hana fæst í Eymundson kostar 5999kr. Formálin efnisyfirlitið og fyrstu 50 blaðsíðurnar lofa góðu. Kannski hefðu allir gott af að lesa hana áður en þeir gleipa allt hrátt úr íslenskum fjölmiðlum
    0
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Þessa bók verður maður að skoða
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár