Mynd: Heiða Helgadóttir

Sendiherrann gagnrýnir Ísland: „Kína mun berjast þar til yfir lýkur“

He Rulong, sendi­herra Kína á Íslandi, segir að ríkið muni berj­ast gegn því að Sam­ein­uðu þjóð­irnar beiti sér gegn Kína vegna mann­rétt­inda­brota í Xinijang-hér­aði. Ísland er eitt af þeim ríkjum sem beitir sér nú fyrir því að Sam­ein­uðu þjóð­irnar ræði svarta skýrslu og meinta glæpi Kína gegn mann­kyn­inu. Í við­tali við Stundina fer sendi­herr­ann yfir sam­skipti Kína og Íslands, refsi­að­gerðir þjóð­anna og afstöðu til stríðs­ins.

Eitt það fyrsta sem gestur í sendi­ráði Kína í Brí­et­ar­túni tekur eftir er stærðin á hús­inu. Bygg­ingin er tæp­lega 4.200 fer­metrar, ger­ó­lík húsa­kynnum gamla kín­verska sendi­ráðs­ins sem var stað­sett í miðju íbúða­hverfi á Víðimel. Við erum leidd inn í stóran mót­töku­sal. Á gólf­inu í mót­töku­salnum eru tveir stólar með háu baki og breiðri sessu sem stillt hefur verið upp gegnt hvor öðrum. Til­gangur heim­sókn­ar­innar er að taka við­tal við He Rulong, sendi­herra Kína á Íslandi, sem tók við starf­inu í febr­úar. Við stól sendi­herr­ans stendur stærð­ar­innar kín­verskur fáni.

Um er að ræða fyrsta við­talið sem He Rulong fer í á Íslandi eftir að hann tók við sendi­herra­starf­inu. Hann býður upp á kín­verskt te, kaffi, vor­rúllur og sæta­brauð sem kokkur sendi­ráðs­ins útbjó segir sendi­herr­ann. Meðan á við­tal­inu stendur eru sex starfs­menn sendi­ráðs­ins við­staddir. Þeir taka við­talið upp og smella af ljós­myndum á sím­ana sína við hvert tæki­færi í þá tvo klukku­tíma …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    14000milljónir deilt með 350þús= reiknið svo út hvað er traðkað á mörgum hér í boði vestrænnar spillingar á móti hverjum Íslending eru þúsundir kínverja
    -1
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Ég trúi Kínverjunum vesturlönd fela eigin mannréttindabrot og spillingu með áróðri á aðra. kannski er þetta bara góð hugmynd hjá þeim að koma þessum múslimum sem eru þúsundir ára á eftir öðrum í menningu yfir í nútíman með fræðslu. Ástandið á Íslandi litla glæparíkinu (smáþorpinu sem var yfirtekið af glæpakjánum )er mikið verra miðað við höfðatölu
    -2
  • PH
    Pétur Hilmarsson skrifaði
    Athyglisverð túlkun hans á sjálfstæðu fólki.
    1
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Eins gott að Íslendingar geri sig ekki háða þessum réttlátu og góðhjörtuðu mönnum.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár