Forstjóri Símans með 9,7 milljónir króna að meðaltali á mánuði í fyrra

Launa­pakki for­stjóra Símans hækk­aði um 53 pró­sent milli 2021 og 2022, að mestu vegna kaupauka upp á næstum 43 millj­ónir króna. Síminn er búinn að skila hlut­höfum sínum 31,5 millj­arði króna eftir söl­una á Mílu og ætla að skila 15,7 millj­örðum króna í við­bót á þessu ári.

Forstjóri Símans með 9,7 milljónir króna að meðaltali á mánuði í fyrra
For­stjóri Orri Hauksson hefur verið for­stjóri Símans frá því í októ­ber 2013. Mynd: Síminn

Orri Hauksson, for­stjóri Símans, fékk sam­tals 116,4 millj­ónir króna í laun, kaupauka og mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð á árinu 2022, eða 9,7 millj­ónir króna á mán­uði. Ári áður fékk hann 76,2 millj­ónir króna í sömu greiðslur, eða tæp­lega 6,4 millj­ónir króna. Laun hans hækk­uðu því um 53 pró­sent milli ára. Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi Símans.

Mestu munar um mikla aukn­ingu á greiðslu kaupauka. Orra fékk 42,6 millj­ónir króna í slíkan í fyrra sem var næstum fjórum sinnum hærri en kaup­auk­inn sem hann fékk árið 2021. Til við­bótar fengu fram­kvæmda­stjórar innan Símans, alls fimm ein­stak­lingar og þar af tveir sem störf­uðu frá miðju ári, 71 milljón í kaupauka. Það er 48,1 milljón krónum meira en þeir kaupaukar sem greiddir voru út til fram­kvæmda­stjórnar á árinu 2021, sem þá taldi fjóra ein­stak­linga. Um er að ræða rúm­lega þre­földum á kostn­aði við kaupauka til fram­kvæmda­stjóra Símans. Alls jókst heild­ar­launa­kostn­aður vegna fram­kvæmda­stjórn­ar­innar, að for­stjóra frá­töldum, um 43 pró­sent milli ára. 

Til sam­an­burðar má nefna að lág­marks­laun á Íslandi þorra árs í fyrra voru 368 þús­und krónur á mán­uði, eða um 4,4 millj­ónir króna á ári. Mán­að­ar­laun for­stjóra Símans voru því 120 pró­sent hærri en árs­laun þess sem var á lág­marks­launum hér­lendis á síð­asta ári.

Hluthafar fá tugi milljarða króna

Síðasta rekstr­arár var það besta í sögu Símans. Félagið skil­aði 38,3 millj­arða króna hagn­aði, en hann hafði verið 5,2 millj­arðar króna árið 2021. Ástæðan er salan á Mílu, dótt­ur­fé­lagi Símans byggir upp og rekur inn­viði fjar­skipta á lands­vísu, til franska sjóð­stýr­inga­fyr­ir­tæk­is­ins Ardian France SA. Kaup­verðið var greitt í sept­em­ber 2022, ann­ars vegar með 32,7 millj­örðum króna í hand­bæru fé og hins vegar skulda­bréfi upp á 17,5 millj­arða króna. Þegar þær skuldir Mílu sem Ardian yfir­tók eru taldar með var sölu­verðið 69,5 millj­arðar króna og sölu­hagn­að­ur­inn bók­færður á 37,8 millj­arða króna. Um síð­ustu ára­mót var eigið fé Símans 35,3 millj­arðar króna.

Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar vegna útgáfu árs­reikn­ings­ins er haft eftir Orra að þegar samn­ingar um sölu Mílu hafi upp­haf­lega verið gerðir hafi stjórn Símans ákveðið að stjórn­endur skyldu kanna hvort félagið gæti nýtt það fé, sem vænta mátti úr söl­unni, að hluta eða öllu leyti í arð­bær­ari verk­efni en þau sem hlut­hafar Símans gætu fundið á eigin spýtur. „Í ljós kom að mögu­legar fjár­fest­ingar Símans á Íslandi verða ekki af þeirri stærð­argráðu að þörf sé á sölu­verð­mæti Mílu. Þá kom í ljós að hlut­hafar Símans telja almennt ekki að hið skráða rekstr­ar­fé­lag Síminn hf. eigi að varð­veita á eigin bókum háar upp­hæðir til að leita að verk­efnum fyrir Símann utan Íslands [...] Skapist í fram­tíð­inni fjár­fest­inga­tæki­færi fyrir Símann af slíkri stærð­argráðu, að þau útheimti á ný aukna fjár­mögnun til handa félag­inu, mun sam­talið snú­ast við og stjórn og stjórn­endur munu þá óska eftir nýju hlutafé frá hlut­höfum.“

Því var sölu­verð­mæt­unum skilað til hlut­hafa. Í nóv­em­ber var hlutafé lækkað og hlut­haf­arnir fengu 31,5 millj­arð króna í sinn hlut. Stærsti hlut­haf­inn í Símanum, og sá sem ræður ferð­inni í stefnu­mótun félags­ins, er fjár­fest­inga­fé­lagið Stoðir sem á 15,93 pró­sent hlut. Um fimm millj­arðar króna af þess­ari útgreiðslu fór því til Stoða. Aðrir stórir hlut­hafar eru stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins. Þrír stærstu sjóð­irnir: Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins, Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna (sem félags­menn VR greiða meðal ann­ars í) og Gildi (sem félags­menn Eflingar greiða meðal ann­ars í) eru þar fyr­ir­ferða­mestir. 

Í lok jan­úar síð­ast­lið­ins var skulda­bréfið upp á 17,5 millj­arða króna sem Ardian gaf út vegna söl­unnar svo selt til félags á vegum Ardian á 15,7 millj­arða króna. Stjórn Símans mun gera til­lögu um það á kom­andi aðal­fundi að þeim fjár­munum verði einnig skilað að öllu leyti til hlut­hafa með lækkun á hlutafé. 

Gangi þau áform eftir munu hlut­haf­arnir hafa fengið 47,2 millj­arða króna í reiðufé frá því í nóv­em­ber. Þar af munu 7,5 millj­arðar króna rata til Stoða, sem stýrt er af stjórn­ar­for­manni Símans, Jóni Sig­urðs­syni. Auk þess á Orri Hauksson, for­stjóri Símans, 0,8 pró­sent hlut í félag­inu. Hann ætti því að fá alls um 390 millj­ónir króna í sinn hlut vegna útgreiðslna úr félag­inu eftir söl­una á Mílu sam­þykki stjórn Símans að færa niður hluta­féð á kom­andi aðal­fundi. 

Mikil hækkun á enska boltanum

Fyrir utan söl­una á Mílu var hagn­aður af áfram­hald­andi starf­semi Símans tæp­lega 2,1 millj­arðar króna, en hann hafði verið rúm­lega 1,7 millj­arður króna árið 2021. Inni í þeirri tölu eru fjár­muna­tekjur upp á 748 millj­ónir króna, sem er 366 millj­ónum krónum meira en árið áður. Þar skiptir máli að sölu­and­virði Mílu var ávaxtað á banka­reikn­ingi í tæpa tvo mán­uði en í haust greindi Síminn frá því að mán­að­ar­legir vextir af reiðu­fénu sem fékkst fyrir söl­una á Mílu væru 160 millj­ónir króna. 

Velta dróst lít­il­lega saman milli ára og var rétt undir 24 millj­örðum króna. Tekjur af far­síma­þjón­ustu hækk­uðu um átta pró­sent milli ára, og skipti mikil aukn­ing vegna reiki­tekna þar miklu máli, en hana má rekja til stór­auk­ins fjölda ferða­manna sem komu til Íslands í fyrra í sam­an­burði við árið 2021. Þá var umtals­verður vöxtur í tekjum af sjón­varps­þjón­ustu, sem hækk­uðu um 339 millj­ónir króna milli ára. Í fjár­festa­kynn­ingu Símans kemur fram að aðal­lega sé um að ræða tíu pró­sent tekju­aukn­ingu í Premium þjón­ustu Símans og því að Síminn Sport, sem sýnir enska bolt­ann, hafi skilað 23 pró­sent hærri tekjum. 

Síminn Sport kost­aði 3.500 krónur í lok árs 2021 en verðið fyrir þann sjón­varp­s­pakka var hækkað í 4.500 krónur í byrjun árs í fyrra. Í lok árs 2022 var það komið upp í 4.900 krónur og frá 1. febr­úar síð­ast­liðnum var það hækkað í 6.500 krónur. Verð­mið­inn á Síminn Sport hefur því hækkað um þrjú þús­und krónur á mán­uði frá því í lok árs 2021.

Sjón­varps Símans Premium, efn­isveita félags­ins sem felur meðal ann­ars í sér aðgengi að enska bolt­anum, kostar nú 7.500 krónur ef við­kom­andi leigir mynd­likil frá Símanum á 2.300 krónur á mán­uði. Ef ekki bæt­ast 2.300 krónur við og þá kostar Premium pakk­inn 9.800 krónur.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jack Danielsson skrifaði
    Ef laun Orra er greind enn frekar kemur á daginn að hann hefur 323 þúsund upp úr krafsinu á hverjum einasta degi, jafnt rauðum sem svörtum dögum eða rúmar 10 þúsund krónur á klukkustind, allan sólarhringinn. Þetta er sérlega áhugavert í ljósi þess að daglaun Orra eru nánast eins og mánaðarlaun þeirra sem verst eru settir í samfélaginu.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár